Bæjarbót - 05.01.1990, Síða 9
Janúar 1990
Bæjarbót, óháð fréttablað 9
Bæjarbót útnefnir íþróttamenn
Grindavíkur 1989
í körfuknattleik, golfi, knattspyrnu, júdó,
handknattleik og pílukasti
Bœjarbót hefur nú valið íþróttamenn ársins 1989, einn fyrir hverja íþróttagrein. Eftir
miklar vangaveltur og samanburð standa uppi sem sigurvegarar sex einstaklingar sem allir
leggja mikla rcekt við íþrótt sína og hafa náð árangri sem er á landsmœlikvarða. Það er
orðinn fasturþáttur hjá blaðinu að velja íþróttamenn ársins íhverrigrein, ísamvinnu við
sérdeildir UMFG, eftir því sem tök eru á.
Þetta er vissulega erfitt því margir snjallir íþróttamenn eru í bœnum og það er von
blaðsins að íþróttamenn sœkist eftirþessari tilnefningu og leggi jafnvel enn harðar að sér
fyrir vikið. Að mati blaðsins eru eftirtaldir íþróttamenn deildanna keppnisárið 1989.
Guðmundur Bragason
Hjálmar Hallgrímsson
Sigurður H. Bergmann
Sigurrós Ragnarsdóttir
Handknattleikur
# Bæjarbót útnefnir Sigurrósu Ragn-
arsdóttur handknattleiksmann ársins
1989 í Grindavík. Hún er 15 ára og
stundar nám við Grunnskóla Grinda-
víkur. Sigurrós leikur í 3ja aldursflokki
og er yfirburðamaður í liði UMFG, sem
tryggt hefur sér rétt til að leika í fyrstu
deild. Þetta er annað árið sem Sigurrós
hlýtur þessa tilnefningu blaðsins.
Knattspyrna
• Bæjarbót útnefnir Hjálmar Hall-
grímsson knattspyrnumann ársins 1989
í Grindavík. Hjálmar er 23ja ára, starfar
sem lögreglumaður og hefur verið fastur
maður í liði UMFG nokkur undanfarin
ár og átti stóran þátt í að tryggja liðinu
sæti í 2. deild sl. haust. Hann er sterkur
miðjuleikmaður og hefur góða knatt-
meðferð. Einnig er keppnisskapið í
góðu lagi.
Júdó
• Bæjarbót útnefnir Sigurð H. Berg-
mann júdómann ársins 1989 í Grinda-
vík. Hann náði ágætum árangri á árinu.
Hæst ber silfurverðlaunasæti á Opna
Breska mótinu, sem er mjög sterkt. Hér
heima varð Sigurður 2. á íslandsmótinu
og einnig í opna flokknum, en sigraði
hins vegar á afmælismóti JSÍ. Hann tók
þátt í Evrópumeistaramótinu í Helsingi
og var hársbreidd frá verðlaunasæti.
Körfuknattleikur
# Bæjarbót útnefnir Guðmund Braga-
son körfuknattleiksmann ársins 1989 í
Grindavík. Þetta er fjórða árið í röð sem
hann hlýtur þessa tilnefningu. Hann
hefur verið lykilmaður í liði UMFG og
einnig í landsliðinu á árinu. Um áramót
hafði hann hlotið 54 punkta hjá blaðrnu
fyrir leik sinn, eða 3.37 að meðaltali. Þá
hafði hann skorað 384 stig, eða 24 stig í
leik.
Guðjón Hauksson
Sigurgeir Guðjónsson
Pílukast
Golf
# Bæjarbót útnefnir Guðjón Hauksson
pílukastara ársins 1989 í Grindavík.
Hann tekur því við titlinum af Pétri
bróður sínum. Guðjón varð 2. á íslands-
mótinu í einmenningi. Þá varð hann
Suðurnesjameistari í einmenningi og tví-
menningi, ásamt Ægi Ágústssyni. Hann
var í landsliði íslands og keppti m.a. við
landslið Dana og Svía.
# Bæjarbót útnefnir Sigurgeir Guð-
jónsson golfmann ársins 1989 í Grinda-
vík, en hann hlaut einnig þá útnefningu í
fyrra. Sigurgeir varð meistari Golf-
klúbbs Grindavíkur og tryggði sér þann
titil í fimmta sinn á sjö árum og sýnir sá
árangur best styrk hans, en framfarir
hafa verið miklar í íþóttinni á árinu. Sig-
urgeir hefur lægstu forgjöf golfara í
Grindavík.
íþróttamenn ársins í Grindavík
Körfuknattleikur:
1986 Guðmundur Bragason
1987 Guðmundur Bragason
1988 Guðmundur Bragason
1989 Guðmundur Bragason
Knattspyrna:
1986 Ragnar Eðvarðsson
1987 Rúnar Sigurjónsson
1988 Pálmi Ingólfsson
1989 Hjálmar Hallgrímsson
Handknattleikur:
1986 Guðrún Bragadóttir
1987 Vigdís Ólafsdótir
1988 Sigurrós Ragnarsdóttir
1989 Sigurrós Ragnarsdóttir
Golf:
1986 Guðmundur Bragason
1987 Jóhann P. Ander'sen
1988 Sigurgeir Guðjónsson
1989 Sigurgeir Guðjónsson
Júdó:
1986 Sigurður H. Bergmann
1987 Guðmundur Másson
1988 Sigurður H. Bergmann
1989 Sigurður H. Bergmann
Pílukast:
1987 Ægir Ágústsson
1988 Pétur Hauksson
1989 Guðjón Hauksson