Bæjarbót - 05.01.1990, Blaðsíða 10
10 Bæjarbót, óháð fréttablað
Janúar 1990
Þessi mynd var tekin þegar nokkrir þingmenn kjördæmisins, samgönguráðherra og embættis-
menn, ásamt fulltrúum frá Grindavíkurbæ, fóru vestur í Bót til að skoða landbrotið sem varð í
óveðrinu 9. janúar.
Mikil þörf á brimvarnargörðum:
Landbrot gæti reynst
byggðinni hættulegt
— góðar vonir um fjármagn til framkvæmda
segir bæjarstjóri
Jón Gunnar Stefánsson bæjarstjóri.
Þegar veðurhamnum slotaði
þann 9. janúar blasti við mönn-
um eyðilegging sem fáa óraði
fyrir að gæti átt sér stað.
Skemmdir á mannvirkjum við
Grindavíkurhöfn hafa verið
tiundaðar ítarlega í fjölmiðlum,
en minna hefur verið rætt um
hið geigvænlega landbrot sem
átti sér stað umrædda óveðurs-
nótt og er auðsætt hverjum
þeim sem t.d. leggur leið sína
vestur í Bót eða út í Hópsnes.
Nokkuð hefur verið byggt af
sjóvarnargörðum, sem vörðu
landið vel, en betur má ef duga
skal. Bæjarbót spurði bæjar-
stjórann, Jón Gunnar Stefáns-
son, hvað framundan væri í
gerð slíkra varnargarða.
„Við höfum góðar vonir um
að það sem skemmdist verði
bætt að fullu og fyrirsjáanlegt
að við komum til með að fá betri
mannvirki en áður, vegna þess
að menn sjá nú þörfina fyrir að
gera hér verulegar endurbætur á
brimvarnargörðum og það var
einmitt álit forsætisráðherra,
eftir að hafa skoðað þetta, að
ekki mætti láta þetta tækifæri
ónotað, á meðan atburðirnir
væru í fersku minni fólks, að
standa myndarlega að úrbótum
strax“.
Nú er nýbúið að samþykkja
fjárlög, hvernig á að fjármagna
framkvæmdirnar?
„Þegar þörfin er jafn augljós
og hér finna menn alltaf einhver
úrræði. Með lántökum svo hef-
ur Viðlagatryggingarsjóður
fjármuni sem ekki er óeðlilegt
að lána til svona verks, til að
koma í veg fyrir stærri tjón
síðar“.
Hvað má búast við að endur-
bæturnar kosti?
„Menn hafa giskað á að okk-
ur vanti snarlega um 30 milljónir
til að betrumbæta sjóvarnar-
garðana. Við höfum fengið um
4 milljónir til þessa og menn sjá
strax árangur af þeim görðum,
sem reistir voru fyrir það fé. Við
þurfum þetta fé til þess að verja
byggðina fyrir svona áhlaupum,
því landbrotið verður ótrúlega
mikið, auk þess sem sjórinn
molar landið hægt og bítandi
með Atlantshafsöldunni alla
daga“ sagði Jón Gunnar að lok-
um.
Gleðilegt ár! Þakka viðskiptin
á árinu sem leið!
Athugið!
Lokað verður fyrir hádegi, nema
laugardaga, frá 28. janúar-
25 febrúar.
Reiðhjólaverkstæði M.J.
Hafnargötu 55 - Keflavík
Munið
Getraunanúmer
UMFG: 240
Knattspyrnudeildin
- Fasteignagjöld —
1990
Gjalddagar verða sjö (jan-júlí).
Gíróseðlar verða sendir út mán-
aðarlega.
Gjaldendur eru hvattir til að
gera skil svo komist verði hjá
dráttarvöxtum.
Grindavík 18. janúar 1990
Innheimta Grindavíkurbæjar
Nýjar perur!
íþróttahús Grindavíkur:
Erum komin með splunku nýjar perur
í ljósabekkinn!
«*
Bjóðum þér gæðasól í skammdeginu!
• * ,í'
^'
Þeir spara sem kaupa kort! ^ %
• 10 tímar — kr. 2.600.-
• Stakir tímar — kr. 320.-
• 10% skólaafsláttur
Hvaða tími hentar þér?
Opið kl. 08.00-23.00 alla virka daga.
Einnig opið um helgar.
íþróttahús Grindavíkur
Sími 68244