Bæjarbót - 01.09.1990, Síða 6

Bæjarbót - 01.09.1990, Síða 6
6 Bæjarbót, óháð fréttablað September 1990 borg. Eftir það hugðist ég fara aftur til Keflavíkur, en var þó alveg til í að breyta svolítið til. Þegar ég svo sá að Grindvíkinga vantaði bæði orgelleikara og skólastjóra fyrir Tónlistarskól- ann ákvað ég að slá til enda þekki ég vel til hérna og veit að hverju ég geng“. Hvað er að frétta af starfsemi Tónlistarskólans, er boðið upp á nýjungar? ,,Já, þetta hefur farið mjög vel af stað. Skólanefndin, sem skipuð er Guðmundi Kristjáns- syni, Einari Bjarnasyni og Fanný Erlingsdóttur, er kröft- ug og full af áhuga. Einnig er mikill vilji hjá bæjaryfirvöldum til að gera veg skólans sem mest- an. Aðsókn er framúrskarandi góð. Þegar eru komnir um 50 nemendur í einkatíma, fyrir utan blásarasveit og forskóla. Helstu nýjungar verða kennsla á tréblásturshljóðfæri, klarinett og þverflautur. Einnig hef ég fengið gítarkennara, sem kennir klassískan gítarleik. Síðan eru auðvitað málmblásturshljóð- færin, þau eru flest gengin út, þó er hægt að bæta við á básúnur og dýpri blásturshljóðfæri. Einnig kennum við á píanó, orgel og harmonikku“. Hvað geturðu sagt lesendum um kórastarfsemi hér í vetur? ,,Ég tel að í svona litlu bæjar- félagi sé óþarft að vera með tvo kóra, þ.e. samkórinn og kirkju- kórinn. Þannig að ég bryddaði upp á því hvort þeir vildu ekki bara starfa saman, sem einn blandaður kór. Mér sýnist að i M svo geti orðið og æfingar eru þegar hafnar. Þetta verður um 30 manna kór og andrúmsloftið er aldeilis gott! Við verðum alltaf með sameiginlegar æfing- ar á fimmtudagskvöldum kl. 8.30-10.30 og við æfum bæði upp veraldlegt og kirkjulegt pró- gram. Margir halda að þetta verði mikil binding í kirkjunni, en það er það ekki þegar við höfum svona fjölmennan kór, því við guðþjónustur þarf alls ekki fjölmennan kór. Séræfing- ar, raddæfingar, fyrir karla og konur verða svo á mánudögum. Við stefnum að því að syngja á Aðventutónleikum 9. desember í kirkjunni. Ég vil endilega geta þess að nýjar raddir eru hjartan- lega velkomnar í kórinn. Ef fólk vill efla sig í frábærum félags- skap er kórinn tilvalinn vett- vangur“. Líst þér vel á að vera kominn hingað til Grindavíkur til starfa? ,,Já, mjög vel. Ég hef mætt mjög jákvæðu hugarfari og straumum í sambandi við störf mín hér. Sérstaklega vil ég þakka skólanefndinni sem hefur stutt vel við mig. Ég vænti þess að það verði virkilegur menn- ingarauki að starfinu, að við komum upp góðri blásarasveit og góðum kór, sem mikils má vænta af. Þá er hugmyndin að koma upp barna og unglinga- kór. Það verður nóg að gera hér og hér ætla ég að búa og helga mig mínum störfum og mér líst mjög vel á þetta. Er raunar full- ur bjartsýni“ sagði Siguróli Geirsson að lokum. Siguróli Geirsson í Bœjarbótarviðtali: „Hér hef ég mætt jákvæðu hugarfari og straumum til tónlistarmála“ — milli 70 og 80 nemendur við nám í Tonlistarskóla Grindavíkur. Fastir kennarar 3 og 2 stundakennarar Siguróli Geirsson er fertugur Keflvíkingur. Hann er nú geng- inn til liðs við Grindvíkinga á tónlistarsviðinu. Orðinn organ- isti við Gríndavíkurkirkju og skólastjóri Tónlistarskóla Grindavíkur. Foreldrar Siguróla voru Geir Þórarinsson organisti og vélstjóri, ættaður úr Arnes- sýslu og Margrét Eyjólfsdóttir frá Buðlungu í Grindavík. Þau bjuggu fyrst í Grindavík og fluttust til Keflavíkur um 1940. Tiu árum síðar fæddist þeim sonurinn Siguróli. Á vissan hátt má segja að hann sé nú kominn heim. Bæjarbót bað Siguróla fyrst að segja frá fyrstu kynnum sínum af tónlistinni. ,,Faðir minn var mikið í tón- list, hafði yndi af söng og var organisti í Keflavík og Njarðvík 1960-1977. Þannig að strax í bernsku minni var töluvert um tónlist á heimilinu, bæði söng og hljóðfæraleik. Síðan þegar stofnuð var drengjalúðrasveit við Barnaskólann í Keflavík fór ég í hann og lærði á klarinett. Þá var ég 10 eða 11 ára. Upp úr því fór ég í Tónlistarskólann og fór í píanónám og hljómfræði. Byrjaði sem organisti í Keflavík 1968 við barnastarfið. Þaðan lá leiðin í Tónskóla Þjóðkirkjunn- ar til Dr. Róberts Abraham Ottóssonar. Hann kom mér svo inn í Tónlistarskólann í Reykja- vík. Var svo samhliða í báðum þessum skólum þar til ég lauk burtfararprófi árið 1975 úr tón- mennta- og blásarakennara- deildum með fagott sem aðal- hljóðfæri“. Að námi loknu hafa væntan- lega mörg verkefni beðið þín? ,,Á þessum tíma starfaði ég mikið með kórum og spilaði náttúrulega við barna- og æsku- lýðsstarfið í Keflavík. Ég var með Selkórinn á Seltjarnarnesi og eftir námið fór ég aftur suður með sjó og tók að mér kennslu í Tónlistarskóla Njarðvíkur, jafnframt því sem ég var þar organisti. Þar var ég í eitt ár með sameiginlegan kór úr Innri- og Ytri Njarðvík og starfaði með séra Páli heitnum Þórðarsyni og því samstarfi lauk með mjög skemmtilegri ferð til Skotlands. Sungum þar við messur í Edin- borg. Eftir það tók ég við af föður mínum sem organisti við Keflavíkurkirkju, haustið 1977. Þar starfaði ég samfellt í 11 ár, jafnframt kennslu við Tón- listarskólana á svæðinu. Á þess- um árum starfaði ég m.a. með Karlakór Keflavíkur og fór með honum í söngferð til Kanada og Bandaríkjanna. Kór Keflavíkur- kirkju var afar virkur á þessum tíma og við fórum til Luxem- borgar og síðan í eftirminnilega og fræga ferð til ísraels og Egyptalands um jólin 1985 og sungum þar á kóramóti og tók- um þátt í helgihaldi. Þetta er svona það helsta en af nógu er að taka“. Hvernig bar svo til að þú ákvaðst að koma til Grindavík- ur. „Síðast liðinn vetur dvaldi ég í Þýskalandi í framhaldsnámi í orgelleik og kórstjórn í Ham-

x

Bæjarbót

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarbót
https://timarit.is/publication/1421

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.