Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 0 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 7 . M A Í 2 0 2 0 ✿ Aðgerðir stjórnvalda fyrir einstaklinga n Of litlar 41,0% n Hæfilegar 55,6% n Of miklar 3,5% ✿ Aðgerðir stjórnvalda fyrir fyrirtæki n Of litlar 18,5% n Hæfilegar 63,7% n Of miklar 17,8% Hágæða harðparket í miklu úrvali Harðparket er með einstaklega sterkt yfirborð sem býður upp á mikinn umgang og viðhaldið er svo til ekkert, svo er það líka fallegt! Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • parki@parki.is • 595 0570 EFNAHAGSMÁL Meiri ánægja ríkir með þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa þegar kynnt fyrir fyrirtæki í landinu en fyrir einstaklinga. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið. Könnunin var fram- kvæmd eftir að stjórnvöld kynntu síðustu aðgerðir sínar í efnahags- málum vegna COVID-19. Af þeim sem taka afstöðu telja tæp 64 prósent að aðgerðir stjórn- valda fyrir fyrirtæki séu hæfilegar. Álíka mörgum finnst aðgerðirnar of miklar eða of litlar. Þannig segja 18,5 prósent að aðgerðirnar séu of litlar en 17,8 prósent telja þær of miklar. Tæplega 56 prósent þeirra sem taka afstöðu telja aðgerðir fyrir einstaklinga hæfilegar, 41 prósenti finnst aðgerðir stjórnvalda fyrir einstaklinga of litlar en aðeins 3,5 prósent telja þær of miklar. „Þessar niðurstöður koma manni í sjálfu sér ekki á óvart. Það eru auð- vitað mjög margir í þeirri stöðu að óttast um af komu sína. Núna verður að fara að fókusera á þessa grunnskyldu sem er að gæta þess að afkoma fólks sé tryggð,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ. Fólk sjái það ekki endilega í gegn- um þær aðgerðir fyrir fyrirtæki sem kynntar hafa verið þótt það hafi verið hluti af því. „Það er alveg ljóst að gera þarf meira fyrir heimilin. Þar höfum við auðvitað sérstaklega verið að tala fyrir hækkun atvinnuleysisbóta og fjölgun starfa,“ segir Drífa. Ef horft er á menntunarstig skera þeir sem hafa lokið grunnskólaprófi eða minna sig úr. 62 prósent þeirra telja aðgerðir fyrir einstaklinga of litlar. Þá eykst hlutfall þeirra sem telja of lítið gert með minni tekjum. Könnunin sem var send á könn- unarhóp Zenter rannsókna var framkvæmd 1. til 4. maí. Í úrtaki voru 2.300 manns 18 ára og eldri en svarhlutfall var 53 prósent. Gögnin voru vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu. – sar Heimilin þurfi meiri aðstoð Tæp 56 prósent telja aðgerðir stjórnvalda fyrir ein- staklinga hæfilegar en 41 prósent að meira þurfi að gera. Fleiri telja aðgerðir fyrir fyrirtæki hæfilegar. Nánar á frettabladid.is VIÐSKIPTI Smásölufélögin Hagar og Skeljungur hafa haldið áfram endurkaupum á eigin bréfum sam- hliða því að setja starfsfólk á hluta- bótaleiðina. Skeljungur, sem er með rúm- lega helming starfsmanna í skertu starfshlutfalli, greiddi auk þess 600 milljóna króna arð í byrjun apríl. Forstjóri Skeljungs segir að starfs- hlutfall hafi verið skert til að forð- ast uppsagnir. Laun hans og fram- kvæmdastjórnar hafi verið lækkuð verulega. – þfh / sjá síðu 10 Nýttu hlutabætur eftir arðgreiðslu Þau sem tóku göngutúr á Skarfabakka í Sundahöfn í Reykjavík gær virtu bæði fjarlægðarregluna um tvo metra og hægri umferðarréttinn í hvívetna. Engin ný COVID-smit greindust hér þriðja daginn í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.