Fréttablaðið - 07.05.2020, Side 2

Fréttablaðið - 07.05.2020, Side 2
Fræðimenn óttast að allt að 1,6 milljónir manna hafi nú smitast í Brasilíu. Veður Snýst í norðan 5-10 m/s síðdegis og þykknar upp um norðanvert landið með lítils háttar slyddu- éljum, en léttir til syðra. Hiti 6 til 13 stig að deginum, hlýjast á Suðausturlandi, en kólnar norð- austan til. SJÁ SÍÐU 18 Vor í Reykjavíkurhöfn Axel, Hálfdán og Sölvi eru framtíðarfólk í kvikmyndagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI UMHVERFISMÁL Þrír sextán ára nemendur við Tækniskólann, Axel Bjarkar Sigurjónsson, Hálfdán Helgi Matthíasson og Sölvi Bjartur Ingólfsson, eru sigurvegarar keppn- innar Ungt umhverfisfréttafólk sem Landvernd stendur fyrir. Er það fyrir myndbandið Mengun með miðlum sem þeir bjuggu til í skól- anum um kolefnisspor samfélags- miðla og streymisveita. Piltarnir, sem allir eru á fyrsta ári á vísinda- og tæknibraut, bjuggu myndbandið til á aðeins tveimur vikum sem lokaverkefni annar. „Ég fékk hugmyndina að því að rannsaka mengun af völdum sam- félagsmiðla og streymisveita eftir að ég hlustaði á hlaðvarp þar sem þetta var rætt,“ segir Axel. „Þetta er að verða stærra og stærra vandamál eftir því sem notkun netsins eykst. Samkvæmt okkar heimildum eru fyrirtækin þó að gera sinn hlut til að reyna að minnka sporið.“ Í myndbandinu, sem er um 12 mínútur að lengd og má nálgast á Youtube, koma fram ýmsar sláandi staðreyndir og tölur um orkunotkun vegna samfélagsmiðla. Í hvert sinn sem fólk opnar smáforrit, setur læk við mynd, streymir myndbandi eða hleður upp ljósmyndum, er notuð orka. Gögnin eru geymd í orkufrek- um gagnaverum, sem oft eru neðan- jarðar og þurfa mikla loftkælingu. Piltarnir taka nokkur dæmi af losuninni, mældri í metratonnum, en hver bíll losar að meðaltali 4,6 metratonn á ári. Facebook, sem 26 prósent jarðarbúa nota að staðaldri, losaði 718 þúsund metratonn árið 2016. Á Snapchat eru send 3 millj- arðar myndbanda á dag, 0,1 grömm hvert, sem gerir því 300 metratonn. Instagram og Twitter eru líka tekin fyrir, en það sé þó lítið miðað við streymisveitur eins og Netflix og Youtube. Nefna þeir sem dæmi að við að njóta lagsins Despacito, sem kom út árið 2017, notaði heim- urinn meiri orku en Afríkuríkin Síerra Leóne, Sómalía, Tjad og Mið- afríkulýðveldið nota á einu ári. Piltarnir gefa einnig ráð um hvernig best sé að minnka notkun- ina, svo sem með því að slökkva á autoplay-möguleikum, ekki vera áskrifandi að ruslpósti og nota fremur WiFi- en 4G-tengingar. „Mestu skiptir að fólk sé með- vitað um þetta vandamál og hugsi um leiðir til að minnka það,“ segir Axel. „Til dæmis að nota miðlana minna og hlaða ekki inn hlutum að óþörfu.“ Piltarnir gera sér þó fylli- lega grein fyrir að samfélagsmiðlar hverfa ekki á næstunni, þeir séu hluti af nútímanum og til margra hluta nytsamlegir. Til dæmis til að fræða fólk um umhverfismál. kristinnhaukur@frettabladid.is Fólk ómeðvitað um kolefnisspor netsins Þrír nemendur við Tækniskólann unnu til verðlauna hjá Landvernd fyrir myndband um kolefnisspor samfélagsmiðla og streymisveita. Þeir segja þetta mikið vandamál sem fáir séu meðvitaðir um, enda mengunin ekki sýnileg. Mestu skiptir að fólk sé meðvitað um þetta vandamál og hugsi um leiðir til að minnka það. Axel Bjarkar Sigurjónsson, nemi við Tækniskólann AKUREYRI Bæjarstjórn Akureyrar- bæjar samþykkti í gær að verja allt að 40 milljónum í markaðssetningu innanlands til að styðja við ferða- og menningarstarfsemi í bænum. Allir ellefu fulltrúar bæjarstjórnar sam- þykktu tillöguna og auglýst verður eftir umsóknum á næstu vikum. Með COVID-19 faraldrinum hefur ferðaþjónustan á Íslandi hrunið og hafa fyrirtæki á Akureyri fundið fyrir því. Í tilkynningu Akureyrarbæjar kemur fram að sett verði af stað markaðsátak fyrir Akureyri á innanlandsmarkaði. Byggt verði á sérstöðunni sem Akureyri býður upp á, nánd við náttúruna og úti- vistarmöguleika í bland við iðandi mannlíf, af þreyingu, verslun og fyrsta f lokks þjónustu. Þá verður styrktarsjóður settur á laggirnar sem ætlað er að styðja við mark- aðsátakið og auka framboð afþrey- ingar á Akureyri. – kpt 40 milljónir í markaðsátak Brúnin á landsmönnum hefur verið að léttast að undanförnu í takt við rísandi sól og jákvæðar fréttir af undanhaldi COVID-19 sjúkdómsins. Í gömlu höfninni í Reykjavík ægir saman f leyjum af öllu tagi. Sum er verið að lagfæra eins og skipið sem stendur í slippnum við Mýrargötu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Rauða torgið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY COVID-19 Þrátt fyrir að jákvæðari tíðindi af baráttunni við COVID-19 berist frá mörgum af nágrannaríkj- um okkar berast slæmar fréttir frá öðrum ríkjum. Fjórða daginn í röð voru yfir tíu þúsund tilfelli í Rússlandi og er land- ið farið að nálgast Þýskaland, Frakk- land, Bretland og Ítalíu í fjölda smit- aðra þegar hægst hefur á útbreiðslu veirunnar í þessum ríkjum. Kórónaveiran var lengi að ná fót- festu í Rússlandi og voru 63 staðfest tilfelli í landinu 15. mars, mánuði eftir að fyrsta tilfellið greindist í landinu. Undanfarna daga hafa rússnesk stjórnvöld lagt aukna áherslu á að skima eftir veirunni og með því hefur fjöldi tilfella margfaldast á stuttum tíma. Á sama tíma er óttast að í Brasilíu séu fleiri smitaðir en í nokkru öðru ríki þó að fá tilfelli hafi verið stað- fest. Búið er að staðfesta að 101 þús- und eru smitaðir í Brasilíu og bætast fimm þúsund við daglega en fræði- menn við háskóla í São Paulo óttast að allt að 1,6 milljónir séu smitaðar. Það er annar tónn í ríkjum sem liggja okkur nær því í gær var til- kynnt um næstu skref í tilslökunum á samkomubanni í Þýskalandi sem gerir knattspyrnudeildinni kleift að hefja leik á ný í næstu viku. – kpt Veiran breiðist út í Rússlandi 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.