Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 6
Ég lít svo á að atkvæðisréttur sé jafn eins og sakir standa. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins STJÓRNMÁL Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagðist á Alþingi á mánudag ætla að taka upp umræðu um jöfnun atkvæða á þessu kjör­ tímabili á fundi f lokksformanna á föstudag. Var það eftir fyrirspurn frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdótt­ ur, formanni Viðreisnar, sem taldi málefnið brýnt. Stefnt hafði verið að því að taka þessa umræðu upp á næsta kjörtímabili, 2021 til 2025, sem hluta af heildarendurskoðun stjórnarskrár. Íslenska kjördæmakerfið og mis­ vægi atkvæða hefur verið þrætuepli um langa hríð og margar lagfær­ ingar verið gerðar í gegnum tíðina. Jafnvægi milli atkvæða og þingsæta f lokka hefur að miklu leyti lagast en misvægi á milli fjölmennasta og fámennasta kjördæmisins er enn tvöfalt. „Ég lít svo á að atkvæðisréttur sé jafn eins og sakir standa,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og vísar til f lokkanna. Undantekningar séu þó, eins og að Framsóknarflokkurinn hafi nú einum manni of mikið. „Þó það komi meiri fjöldi þingmanna af landsbyggðinni þá hallar á lands­ byggðina víða og ekki æskilegt að veikja hana með að breyta kerfinu,“ segir hann. Víða sé meira gert til að styrkja landsbyggðina en hér, til dæmis í Noregi. Landsbyggðarkjördæmin eru víð­ feðm og bent hefur verið á að hags­ munir byggðarlaga fari ekki endi­ lega saman, til dæmis Akraness og Hofsóss. Sigmundur viðurkennir að gallar séu á kerfinu en þetta sé af leiðing af áratuga þróun. Hann telur ekki heppilegt að landið verði eitt kjördæmi og vísar í stjórnlaga­ ráðskosninguna, þar sem aðeins tveir af 23 kjörnum fulltrúum voru af landsbyggðinni. Þá segir hann umræðuna ótíma­ bæra. „Það eru það mörg óleyst mál í þessari stjórnarskrárvinnu að það yrði ekki á það bætandi.“ Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingar, segist hrifinn af hug­ myndinni um landið sem eitt kjör­ dæmi. „Það yrði þá f lokkanna að vega upp á móti öðru misræmi sem skapast og tryggja að listar endur­ spegli sem fjölbreyttastan hóp af fólki,“ og vísar til búsetu, kyns og stétta. „Samfylkingin hefur það sem stefnu sína að laga atkvæða­ misvægi í landinu. Við verðum að taka umræðu um hvernig lýðræðið virki sem best og allir hafi áhrif sem þeim ber að hafa.“ Logi telur þetta mál þó ekki það brýnasta að svo stöddu. „Í ljósi þess að stór hluti þess tíma sem eftir er af kjörtímabilinu mun fara í erfið Atkvæðajöfnun sé ekki forgangsmál Forsætisráðherra hyggst ræða jöfnun atkvæða á fundi flokksformanna á föstudag. Formaður Miðflokks segir réttinn þegar jafnan en formenn Samfylkingar og Pírata segja málið ekki mjög brýnt. Munur atkvæðavægis er enn tvöfaldur á milli tveggja kjördæma. Framsóknarflokkurinn grætt 96 sæti á kerfinu Framsóknarflokkurinn hefur grætt mest á íslenska kjördæma- og kosningakerfinu. Stuðningur- inn er mestur á landsbyggðinni, þar sem atkvæðavægi er meira en á mölinni. Eins og aðrir stórflokk- ar hefur hann grætt á 5 prósenta þröskuldi á jöfnunarþingsæti. Ef þá- og núverandi kjördæma- kerfi eru borin saman við kerfi þar sem landið er eitt kjördæmi með engan þröskuld, hefur Fram- sóknarflokkurinn grætt 96 þing- sæti. Mest árið 1956, níu talsins, þegar flokkurinn myndaði Hræðslubandalagið með Alþýðu- flokki til þess að nota kerfið. Á fyrstu áratugunum græddi hann að meðaltali fimm sæti í hverjum kosningum á kerfinu. Síðar hefur flokkurinn hagnast minna en þó um fjóra menn árið 2013. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði á kerfinu fyrstu áratugina, alls 19 sætum. En í seinni tíð hefur hann verið að vinna þetta upp, aðal- lega á kostnað smáflokka sem ná ekki yfir þröskuldinn. Alls hefur flokkurinn tapað fimm þing- sætum á kerfinu frá árinu 1931. Alþýðuflokkurinn tapaði mest á kjördæmakerfinu, 27 sætum frá 1923 til 1999. Samfylkingin hefur hins vegar verið að vinna sæti til baka og er því heildartap þessara tveggja krataflokka 24 sæti. Ef við gefum okkur að Vinstri græn séu arftaki Alþýðubanda- lags, Sósíalistaflokks og Komm- únistaflokks er heildartapið 18 sæti frá 1931. Vinstrimenn hafa þó verið stöðugir í seinni tíð og aðeins tapað einu sæti á 30 árum. Hinir fjórir flokkarnir eiga mjög stutta sögu. Miðflokkur og Viðreisn hafa fengið jafn mörg atkvæði og þeir hefðu fengið í einkjördæmislandi. Píratar hafa grætt eitt sæti í þrennum kosningum og Flokkur fólksins tapað tveimur, vegna þröskulds- ins, árið 2016. Kjördæmakerfið hefur verið lagfært í gegnum tíðina en kjósandi í Borgarnesi hefur þó enn tvöfalt vægi miðað við kjósanda í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR SV NA Hlutfall 2003 4.440 2.730 2,09 2007 4.549 2.347 1,94 2009 4.850 2.366 2,05 2013 4.856 2.667 1,82 2016 5.249 2.685 1,95 2017 5.350 2.690 1,99 efnahagsmál, þá tel ég brýnast að breyta breytingarákvæðinu. Að þjóðin hafi beinni aðkomu að sam­ þykkt stjórnarskrár, í stað þess að breytingar þurfi að fara í gegnum tvö þing,“ segir hann. Smár i McCar thy, for maður Pírata, hefur einnig efasemdir um að jöfnun atkvæða eigi að vera for­ gangsmál á þessum tímapunkti í ljósi aðstæðna. „Ef okkur gefst tími og ráðrúm er að sjálfsögðu gott að taka umræðuna og vonandi kom­ ast að niðurstöðu,“ segir hann. „Í staðinn fyrir að taka þetta tiltekna atriði fyrir væri betra að klára stjórnarskrána sem þjóðin er löngu búin að samþykkja.“ Hann er þó sammála því að jöfn­ un atkvæða sé góð hugmynd og lýð­ ræðið virki best þegar atkvæðin eru jafn mikils virði. „Við Píratar höfum haft í stefnuskrá að landið eigi að vera eitt kjördæmi en það eru alltaf einhver útfærsluatriði sem þarf að huga að, ekki síst að breytingin bitni ekki á minni samfélögum úti á landi.“ Eðlilegt sé að gefa flokkum frelsi til að útfæra framboðslista en að sama skapi búast við því að þeir hafi þroska til að sinna öllu landinu. kristinnhaukur@frettabladid.is ✿ Enn mikill munur Munurinn á Suðvestur- og Norð- vesturkjördæmi er tvöfaldur þrátt fyrir tvær tilfærslur þingsæta. Minnisvarðinn Kindred Spirits í Midleton, Írlandi. BANDARÍKIN Almenningur á Írlandi hefur lagt fram hundruð milljóna króna í hópfjármögnun til styrktar innfæddum í Ameríku sem þjást vegna COVID­19. Eru þeir þar með að endurgjalda greiða sem inn­ fæddir gerðu þeim á nítjándu öld. Árið 1847 safnaði Choctaw­ætt­ bálkurinn í Ameríku 170 Banda­ ríkjadölum til að senda fólki á Írlandi þegar hungursneyð herjaði á landið. Þetta gerðu þeir þrátt fyrir að vera sjálfir bágstaddir og eiga lítil sem engin tengsl við Írland. Írar hafa lengi munað þessa hjálp og stendur minnisvarði henni til heiðurs í bænum Midleton á Írlandi. Fjárframlögin frá Írlandi hófust eftir að blaðamaður The Irish Times deildi hópfjáröf lun Navajó­ og Hopi­ættbálkanna á Twitter. Alls hafa safnast næstum þrjár milljónir Bandaríkjadala, þar af er meira en hálf milljón sem er komin frá Írum. „Þetta er mjög óvænt en það er bara ótrúlegt að sjá samstöðuna og sjá hversu mikið fólki sem er svo langt í burtu þykir vænt um sam­ félag okkar og hefur samúð með því sem við erum að upplifa,“ sagði Ethel Branch, skipuleggjandi hóp­ fjáröflunarinnar í viðtali við frétta­ stofu CNN. – atv Írar endurgjalda innfæddum greiðann JAFNRÉTTISMÁL Alls voru 34,7 pró­ sent stjórnarmanna stórra fyrir­ tækja á Íslandi árið 2019 konur. Það er fjölgun um 1,1 prósentustig miðað við árið á undan. Árið 2013 tóku að fullu gildi lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40 pró­ sent í stjórnum stórra fyrirtækja með fleiri en 50 launþega. Um næstu áramót tekur gildi lagabreyting sem felur í sér heimild til beitingar dagsekta nái hlutfall hvors kyns ekki 40 prósentum í slíkum fyrirtækjum. Sektirnar geta numið frá tíu þúsund krónum til 100 þúsund króna á dag. Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofunnar var hlutfall kvenna í stórum fyrirtækjum 12,7 prósent árið 2007 og 9,5 prósent árið 1999. Þá var hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með færri en 50 launþega 26,1 á síðasta ári og hækkaði um 0,2 prósent frá árinu 2018. Við lok síðasta árs voru konur 26,5 prósent stjórnarmanna fyrir­ tækja sem greiða laun og eru skráð í hlutafélagaskrá. Hlutfall kvenna sem gegndu stöðu framkvæmda­ stjóra var 23 prósent í lok síðasta árs sem er hækkun um 0,3 prósent frá árinu á undan. Þá var hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna 24,3 prósent í lok ársins 2019. – bdj Konur enn í minnihluta í stjórnum stórfyrirtækja Hlutfall kvenna sem gegndu stöðu framkvæmda- stjóra var 23 prósent í lok ársins 2019. 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.