Fréttablaðið - 07.05.2020, Síða 15

Fréttablaðið - 07.05.2020, Síða 15
Reykjavíkurborg hefur líka ákveðið að bæta 1.000 störfum við þau 822 sumar- störf sem við höfðum áður samþykkt. Með hverri viku skerpist sú sýn sem við höfum á gríð-arlegt umfang neikvæðra afleiðinga kórónaveirunnar. Afleið- inga sem allir landsmenn takast nú á við, á einn eða annan hátt. Einn lítill en mikilvægur þáttur er áhrifin á íþróttaiðkun barna og unglinga. Íþróttafélögin standa nú frammi fyrir ærnu verkefni, að takast á við skerðingar á tekjum og starfsemi vegna heimsfaraldurs kórónaveir- unnar, án þess að það komi niður á öflugu og samfélagslega mikilvægu starfi þeirra. Fjölmargar rannsóknir, íslenskar jafnt sem erlendar, hafa sýnt fram á þau jákvæðu áhrif sem skipulagt íþróttastarf hefur á námsárangur, líðan og sjálfsvirðingu barna og ungmenna. Nær óþarft er að auki að nefna forvarnargildi íþróttastarfs gagnvart skaðlegri hegðun á borð við af brot og vímuefnaneyslu. Þess vegna hef ég lagt fram þingsálykt- unartillögu um að öll börn 6-18 ára fái gjafabréf upp á 25.000 krónur, sem nýta megi til greiðslu iðkenda- gjalda hjá íþróttafélögum í sumar og næsta vetur. Ríf lega 40.000 börn og ung- menni voru skráðir iðkendur hjá íþróttafélögum innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sam- kvæmt skýrslum sem var skilað inn til sambandsins fyrir árið 2018. Samdráttur í starfi íþróttafélaga, sér í lagi skerðing á fjölbreytni starfs- ins, eykur líkurnar á því að hópur ungmenna muni falla úr eða aldrei hefja þátttöku í íþróttastarfi. Því til viðbótar er ljóst að erfiður fjárhagur margra heimila vegna COVID- 19 mun einfaldlega draga úr getu fólks til að standa undir kostnaði við íþróttaiðkun barna og unglinga. Gjafabréfið kemur í veg fyrir að börn og ungmenni þurfi að láta af þátttöku í skipulögðu íþrótta- starfi vegna efnahagsástandsins og dregur á sama tíma úr fyrirliggjandi tekjutapi íþróttafélaganna. Það er vissulega hörð samkeppni um stuðning hins opinbera þessa dag- ana. Þetta mál er hins vegar af þeim toga að ég geri mér góðar vonir um að það hljóti jákvæðar undirtektir. Þetta verður öðruvísi íþróttaár, en við getum látið það verða gott íþróttaár. Öðruvísi íþróttaár Hanna Katrín Friðriksson Höfundur er þingflokks­ formaður Viðreisnar Borgarráð Reykjavíkur hefur, í þver pólitísku samráði, unnið að aðgerðum sem eiga að styðja við heimilin og atvinnu- lífið vegna afleiðinga COVID-19. Við erum að sjá áður óþekktar stærðir í atvinnuleysi í Reykjavík og við því þarf að bregðast. Störf í borginni Nú á fyrstu dögum maímánaðar höfum við kynnt aðgerðir og verk- efni, sem hafa það markmið að efla mannlíf og atvinnu í borginni. Nýlega kynnti Reykjavíkurborg aukna innspýtingu í viðhalds- verkefni. Þar verður áhersla lögð á mannaflsfrek verkefni, sérstaklega við viðhald skóla og leikskóla. Reykjavíkurborg hefur líka ákveðið að bæta 1.000 störfum við þau 822 sumarstörf sem við höfðum áður samþykkt. Lögð verður áhersla á störf fyrir námsmenn, úrræði fyrir atvinnuleitendur og umsækjendur um fjárhagsaðstoð. Með haust- inu munum við leggja til frekari aðgerðir með áherslu á einyrkja og innflytjendur. Skemmtileg borg Íbúaráð fá fjármagn til að hvetja til gleði og skemmtilegheita úti í hverfunum. Styrkja á miðborgina, með auknu mannlífi og menningu fyrir alla. Við ætlum að fjölga við- burðum, lífga við borgarrými og markaðssetja miðborgina okkar allra sem áfangastað Íslendinga. Það er líka búið að samþykkja að stækka menningarpott borgarinnar til að efla menningu í borginni. Í borgarstjórn á þriðjudag var fjallað um ársreikning Reykjavíkur- borgar 2019. Hann sýnir okkur að fjárhagur borgarinnar er sterkur og að borgin hefur þó nokkuð rými til að takast á við komandi þrengingar. Ef ekki tekst að ná tökum á atvinnu- leysinu, sérstaklega með því að störf snúi aftur og ný störf verði til í einkageiranum, geta komandi þrengingar þó orðið verulegar fyrir sveitarfélög landsins. Það þarf jafnvægi Fjármálasvið Reykjavíkurborgar hefur undirbúið nokkrar grein- ingarmyndir fyrir komandi ár og miðað við þá niðursveiflu sem við erum í gæti frávik næstu fjögurra ára orðið 60 milljarðar frá þeim áætlunum sem Reykjavíkurborg hafði gert. Reykjavíkurborg mun því þurfa að ná ákveðnu jafnvægi, þar sem við tökum höndum saman um að halda framkvæmdastigi uppi, styðjum við þá íbúa borgarinnar sem þurfa á hinu félagslega neti að halda, hvetjum til gleði og lífs í borginni en gerum borgina ekki fjárhagslega ósjálfbæra þegar við komum upp úr þessari niðursveiflu, sem spáð er að verði jafnvel jafndjúp og kreppan mikla í upphafi 20. aldar. Þungt farg á mörg sveitarfélög Sveitarfélögunum er mun þrengri stakkur skorinn en ríkinu þegar kemur að hugsanlegri tekjuöflun. Hættan er sú að sveitarfélögin, sem eru æðakerfi samfélagsins og veita nauðsynlega grunnþjónustu, verði lömuð til langs tíma, eigi þau einungis að bregðast við með stór- aukinni skuldsetningu. Minni tekjur og aukin útgjöld er áfall sem öll sveitarfélög munu þurfa að takast á við. Ekki öll eru í jafn sterkri stöðu og Reykjavíkur- borg og getur þetta orðið mjög erfitt fyrir mörg þeirra. Því hafa sveitar- félögin kallað eftir samtali við ráð- herra sveitarstjórnarmála til að ræða aðkomu ríkisins til að styðja við getu þeirra til að taka þátt í við- námi, auka nauðsynlega velferðar- þjónustu, ef la vinnumarkaðsað- gerðir og auka framkvæmdir sínar. Undir það ákall tek ég. Æðakerfi samfélagsins þarf að vera sterkt Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar í Reykjavík S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 7 . M A Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.