Fréttablaðið - 07.05.2020, Síða 16
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Valgerður Jóna
Gunnarsdóttir
söngkennari,
Hafnarbraut 9,
Kópavogi,
lést 2. maí á Landspítalanum við Hringbraut.
Vegna samkomutakmarkana verða einungis nánustu
aðstandendur viðstaddir útförina sem fer fram 15. maí
kl. 15. Athöfninni verður streymt á eftirfarandi slóð:
https:youtu.be/Qm4h38HAjNE
Ingi Kr. Stefánsson
Gunnar Trausti Ingason
Jón Kristinn Ingason Fida Abu Libdeh
Hanna Ragnheiður Ingadóttir Bjarni Þór Pétursson
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Inga Björg Ragnarsdóttir
frá Sauðhúsvelli, Vestur-Eyjafjöllum,
lést laugardaginn 2. maí
á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi. Útför hennar mun fara fram í
kyrrþey frá Ásólfsskálakirkju. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á SOS-barnaþorpin.
Sigmar Sigurðsson
Einar Sigmarsson
Rúnar Sigmarsson
Unnur Sigmarsdóttir Þorsteinn Eyþórsson
Sigurrós Sigmarsdóttir Arnar Svarfdal Þorkelsson
og barnabörn.
Elskulegur bróðir okkar,
Smári Sigurðsson
Skipasundi 79,
lést 24. apríl.
Útför hefur farið fram.
Erna Sigurðardóttir Sigurður Þórðarson
Gísli Sigurðsson
Hólmfríður Sigurðardóttir Björn Sigurðsson
Sigurður Sigurðsson Hólmfríður Einarsdóttir
Guðný Sigurðardóttir Ásgeir Baldursson
Veisluhöldin verða innan marka og óverulegri en efni stóðu til. Bara lítið boð heima hjá mér fyrir þá nánustu. Ég ætla ekki að brjóta neinar reglur
í samkomubanni,“ segir Hildigunnur
Þráinsdóttir, leikari og markaðsstjóri,
um hátíðahöld í tilefni f immtugs
afmælisins sem er í dag. „Mér finnst
þetta samt merkilegasta afmælið á lífs
leiðinni og var búin að plana veislu en
það passar ekki núna. Ég fagna bara
meira þegar ég verð fimmtíu og eins.“
Hildigunnur ólst upp á Akureyri en
er f lutt suður yfir heiðar. Hún kynntist
ung leiklistinni og gerði sig gildandi í
þeirri grein, bæði á sviði og tjaldi en
segist lítið hafa komið nálægt henni
síðustu ár. „Ég var í litlu hlutverki í
Ófærð á sínum tíma. Mér finnst voða
gaman þegar slík tækifæri koma upp
og frábært að hitta fyrrverandi starfs
félaga, en ég er alveg komin út úr þessu
og í annað.“
Þetta annað er nefnilega dálítið
annasamt, hefur að minnsta kosti verið
það síðustu mánuði því Hildigunnur er
markaðsstjóri í Heimkaupum. Verslun
þar hefur stóraukist síðan COVID19
kom upp. „Það hefur verið brjálað að
gera,“ segir Hildigunnur og viðurkennir
að henni finnist gaman í hasar en vildi
óska að þessi væri af öðrum ástæðum
en hann er. „Ég hef heldur ekki fengið
að taka þátt í honum á gólfinu því við
sem erum á skrifstofunni vinnum úti í
bæ og megum ekki koma inn í vöruhús
ið, þar sem langmestur atgangur hefur
verið. En við höfum auðvitað líka þurft
að vinna hratt og láta hendur standa
fram úr ermum til að bregðast við
aðstæðunum, kaupa nýjan kæli, fjölga
starfsfólki og af hendingartímum. Það
hefur tekist býsna vel.“
Hildigunnur segist hafa verið mark
aðsstjóri hjá Heimkaupum í fimm ár.
„Ég fór í þetta fyrir hálfgerða tilviljun.
Var að vinna sjálfstætt í bókabrans
anum og vildi bæta við mig vinnu, var
þá ráðin hér sem textaritstjóri, svo fór
ég inn í markaðsmálin smám saman og
varð markaðsstjóri. Þetta var allt mjög
óvænt. Ég þurfti að vera f ljót að setja
mig inn í það sem við átti hverju sinni
og allt hefur gengið vel. Það er mikið
búið að gerast, hver dagur skiptir máli,
maður þarf alltaf að vera á tánum og
tíminn hefur þotið áfram.“
En að það yrði allt í einu svona vin
sælt að fá vörurnar sendar heim,
kveðst Hildigunnur ekki hafa séð fyrir.
„Verslun á netinu hefur bara allt í einu
tekið stökk fram í tímann – hlaupið yfir
nokkur ár.“ Heimkaup er í Kópavogi
og Hildigunnur segir þau eiga marga
fastakúnna víðs vegar um land. En þó
mikið sé að gera hlýtur markaðsstjór
inn að fá sumarfrí. Jú, Hildigunnur að
að sjálfsögðu búin að skipuleggja það.
„Ég ætla að ferðast. Er búin að panta
hús í eina viku á Súðavík og ætla líka
að heimsækja Trékyllisvík og Norður
fjörð á Ströndum. Svo fer ég til Akur
eyrar en það eru engar utanlandsferðir
í kortunum.“
gun@frettabladid.is
Fagna bara meira þegar
ég verð fimmtíu og eins
Hildigunnur Þráinsdóttir hefur ekki þurft að hafa áhyggjur af verkefnaskorti undan-
farið, hún er markaðsstjóri hjá versluninni Heimkaup sem sendir vörur í heimahús og
hefur aldrei haft meira að gera. Hún á stórafmæli í dag en stórveislan verður að bíða.
„Mér finnst þetta samt merkilegasta afmælið á lífsleiðinni,“ segir Hildigunnur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við sem erum á skrifstofunni
vinnum úti í bæ og megum ekki
koma inn í vöruhúsið, þar sem
langmestur atgangur hefur
verið. En við höfum auðvitað
líka þurft að vinna hratt og láta
hendur standa fram úr ermum
til að bregðast við aðstæðunum.
Merkisatburðir
1697 Höllin Tre Kronor í Stokkhólmi brennur til grunna.
Talið er að íslenska handritið Ormsbók hafi eyðilagst í
brunanum.
1810 Sir George Stuart Mackenzie og Henry Holland
læknir koma til Íslands. Síðar skrifa báðir merkar bækur
um ferð sína.
1908 Páll Einarsson er kosinn fyrsti borgarstjóri Reykja-
víkur.
1928 Lög eru samþykkt á Alþingi um að stofnaður skuli
þjóðgarður á Þingvöllum.
1946 Japanska raftækjafyrirtækið Sony er stofnað.
1951 Bandaríkin senda herlið til Íslands til að sjá um
varnir þess, samningur þess efnis hafði verið undirritaður
tveimur dögum fyrr.
1957 Helen Keller kemur í heimsókn til Íslands til að
styðja og hvetja blinda og mállausa. Hún er sjálf bæði
blind og heyrnarlaus og fræg fyrir réttindabaráttu sína.
1961 Keflavíkurganga
á vegum hernámsand-
stæðinga er gengin frá
hliði herstöðvarinnar
til Reykjavíkur.
1978 Jarðgöng undir
Oddsskarð, milli Eski-
fjarðar og Neskaup-
staðar, eru vígð. Þau
eru í um 630 metra
hæð og eru um 630
metra löng.
7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT