Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 20
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Það eru fáir ef einhverjir jafn samofnir hugmyndinni um svokallaðan grugg-klæða- burð (e. grunge) og tónlistar- maðurinn sálugi Kurt Cobain. Eitt af því sem einkenndi hann var úfið og tætt ljóst hár og notaður, oft rifinn, fatnaður. Ein skýringin á því hvers vegna hann klæddist svo oft notuðum fatnaði hefur verið sögð stafa af auraleysi en einnig hefur verið sagt að þetta hafi verið hans leið til þess að gefa skít í auðvaldið, eins konar and-tíska. Hlýjar ömmupeysur Kurt sótti í hlýjar, notaðar peysur, oft úr ull, enda ólst hann upp í hinni vætusömu Seattle og því vanur að klæða sig vel. Peysunum hefur verið lýst sem svokölluðum „ömmupeysum“. Hann var líka gjarnan í f lannelsskyrtum og síðerma bolum. Skyrtur og bolir sem hann klæddist voru margir prýddir röndum og jafnvel blóma- mynstri. Gallabuxur virðast oftast hafa orðið fyrir valinu hjá honum, yfir- leitt tættar, rifnar og vel notaðar. Það er óneitanlega hálf dapurlegt að gera sér í hugarlund hver við- brögð hans við fjöldaframleiðslu á rifnum gallabuxum í dag yrðu. Þá eru til nokkrar myndir af honum í röndóttum náttfötum, að því er virðist þeim einu og sömu, á sviði jafnt sem uppi í rúmi. Converse-skór einkenndu skó- búnað hans og var hann gjarnan með stór sólgleraugu, iðulega í „kvenstíl“, en það sem var áreiðan- lega hvað áhugaverðast við klæða- burð hans er það hversu oft hann klæddist kvenfatnaði og þá ekki síst kjólum. Pissað á karlmennskuna Sjálfur ræddi Cobain oft karl- mennskuna og að hann hefði ungur átt erfitt með að tengjast öðrum drengjum og hefði frekar sóst í félagsskap stúlkna. Margir hafa bent á femínískan tón í hugs- Karlmennsku rokksins snúið á hvolf Kurt Cobain hefur verið lýst sem óviljandi tískufyrirmynd, sem myndi eflaust fá hann til að snúa sér við í gröfinni. Hann klæddist gjarnan notuðum fötum, ömmupeysum og jafnvel kjólum. Kurt klæddist oft kjólum og er til fjöldi tilkomumikilla mynda af honum í kjólum af ýmsu tagi. Á tónleikum í stórri röndóttri og rifinni síðermapeysu. MYNDIR/GETTY Á tónlistarmyndbandahátíð MTV ’93, í röndóttum bol sem hann notaði oft og rifnum gallabuxum. Á verðlaunahátíð MTV ’92, í bol með mynd sem prýddi hulstur kassett­ unnar „Hi How Are You: The Unfinished Album“ eftir Daniel Johnston. Í kjól með Pétur Pan­kraga árið ’91.Í sinnepslitaðri ömmupeysu með kassagítar í fangi. unarhætti hans og sjá má mörg dæmi þess í textagerð hans. Á Bleach, fyrstu breiðskífu Nirv- ana, er að finna lagið „Been a Son“ sem sagt er vera eitt fyrsta dæmi um gagnrýni hans á karlrembuleg viðhorf. Þar syngur hann út frá sjónarhorni föður sem óskar þess að dóttir hans hefði fæðst sem strákur. Boðskapur lagsins er að mörgu leyti tímalaus þar sem bæði sögulega og í samtímanum er því miður enn að finna alltof mörg dæmi um það að sveinbörn eru talin eftirsóknarverðari en meybörn, oft með hræðilegum afleiðingum. Í laginu „Territorial Pissings“, sem vísar í þá athöfn þegar dýr merkja sér svæði, oft tengt við og notað sem samlíking á til- hneigingu karlmanna til þess að sýna fram á völd sín í nafni karl- mennskunnar, söng hann: „Hef aldrei hitt vitran mann, ef svo, þá er það kona.“ Ljóst er að hægt er að túlka klæðaburð Cobains á marga þýðingarmikla vegu en annað sem var áberandi og einkennandi í fari Cobains var það hversu oft hann klæddist sömu flíkunum eins og sjá má á mörgum myndum. Er það nokkuð sem flest okkar mættum svo sannarlega taka til fyrir- myndar. LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna FLOTT SUMARFÖT, FYRIR FLOTTAR KONUR 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.