Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 24
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Ef pallurinn er
virkilega skítugur er
best að nota grænsápu á
hann og skúra hann vel
með þvottabursta.
4 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RGARÐAR OG HELLULAGNIR
Mögulega eru margir búnir nú þegar að þrífa pallinn og svalirnar. Sumir eru
duglegir að drífa sig út á vorin til
að þrífa og bera á pall og húsgögn.
Aðrir vilja bíða eftir hlýrra veðri.
Það þarf að bera á pallinn og það
er gott að vera búinn að því þegar
sólardagarnir koma. Misjafnt
er hversu vel pallurinn kemur
undan vetri en yfirleitt þarf að
bera á hann árlega. Ef ekki er farið
í hreinsun geta óhreinindin sest í
viðinn sem getur leitt til örveru
vaxtar sem skemmir hann.
Ef pallurinn er virkilega skítugur
er best að nota grænsápu á hann
og skúra hann vel með þvotta
bursta. Stundum þarf sterkari
efni og háþrýstiþvott. Háþrýsti
þvottur hreinsar vel svæðið en ekki
er ráðlagt að þrífa viðinn þannig
nema í sérstaklega erfiðum til
fellum. Ef pallurinn er þveginn með
háþrýstingi skal nota stút framan á
slönguna. Til eru sérstakar viðar
sápur sem henta vel í þrifin. Þegar
búið er að skúra pallinn þarf hann
að þorna. Stundum þarf að fara létt
yfir hann með sandpappír en munið
að vanda til verksins og fáið ráðlegg
ingar hjá fagmönnum. Loks er viðar
olía borin á pallinn en hana verður
að bera jafnt á allan flötinn. Það
gæti þurft að fara tvær yfirferðir.
Skoða má myndbönd af því hvernig
best er að bera sig við með pallinn
hjá nokkrum þeirra sem selja viðar
vörn hér á landi. Til er margs konar
viðarvörn og í ýmsum litabrigðum.
Vandið valið og veljið góð efni.
Ágætt er að þrífa garðhúsgögnin
á sama tíma og pallinn. Oft er nóg
að þrífa vel húsgögnin en oftast
þarf að bera á þau og fríska þau
upp. Ef húsgögnin hafa staðið
úti allan veturinn er mjög líklegt
að það þurfi að bera á þau olíu.
Viðarhúsgögn eru viðkvæm fyrir
rigningu, vindum og sól. Með
tímanum verður viðurinn grár auk
þess að geta sprungið.
Ekki spúla viðarhúsgögn með
háþrýstivatnsdælu, segja sér
fræðingar, því krafturinn í vatninu
getur skemmt viðinn. Notið
mjúkan bursta, vatn og mildan
þvottalög til að fara yfir húsgögnin
ef þau eru skítug. Oft er nægilegt að
nota einungis vatnið úr garðslöng
unni. Ef bera á olíu á húsgögnin
þurfa þau að vera alveg hrein og
þurr. Stundum þarf að nota sér
stakan viðarhreinsi. Með góðri
meðhöndlun endast húsgögnin
lengur. Í raun er best að bera olíu á
húsgögnin tvisvar á ári. Ef komnir
eru blettir í viðinn þarf að nota
sandpappír.
Hreingerning á pallinum
Veröndin og svalirnar eru uppáhaldsstaðir fólks þegar hlýnar í veðri. Það er svo gaman að gera huggu-
legt með fallegum húsgögnum og blómum. Hins vegar getur það tekið á að hugsa um viðhaldið.
Pallurinn getur verið framlenging af stofunni ef vel er um hann hugsað. Það
er æðislegt að sitja úti á fallegum palli á góðum sólardögum. MYNDIR/GETTY
Það er ekki mælt með háþrýstiþvotti á viðinn nema hann sé mjög illa
farinn. Ef notuð er þessi aðferð við þrifin skal setja stút framan á slönguna.
Nú er tími til
að spjalla í
pottinum
trefjar.is
Skoðaðu úrval heitra potta
og aukahluta í vefverslun okkar Sendum frítt
um land allt