Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 38
ELSTI ÞÁTTTAKAND- INN Í HÓPNUM ER KOMINN VEL YFIR NÍRÆTT, LÍFSGLAÐUR VESTFIRÐINGUR, HANN HEFUR ALDREI LÁTIÐ SIG VANTA ÞESSI FIMM ÁR. Baldur Hafstað hefur í rúm fimm ár haldið for nsag na ná mskeið fyrir Félag eldri borg­ara í Reykjavík. „Félag­ið á ágætishúsnæði í Stangarhyl og þar fer fram heilmikil starfsemi gegn sanngjörnu gjaldi. Þarna er skákklúbbur, kórsöngur, dans og fleira. Ég er þarna með forn­ sagnanámskeið á föstudögum, tíu vikur fyrir jól og síðan tíu vikur á vormisseri,“ segir Baldur. Hann segir stækkandi hóp sækja námskeiðið, á því síðasta voru um 150 manns í tvískiptum hóp, fyrir og eftir hádegi. „Þetta er skemmti­ legt. Ég hitti þarna allar gerðir af fólki, f lugmenn, lækna, verkalýðs­ leiðtoga, tónlistarmenn, kennara og svo framvegis. Sterkur kjarni hefur myndast en svo koma aðrir og fara og birtast svo kannski síðar á ný.“ Síðasta námskeið var vel á veg komið þegar samkomubann skall á vegna kórónaveirunnar. „Þá voru eftir þrjár vikur. Ég kláraði þetta með bréfum til þátttakenda en auð­ vitað er allt annað að hittast og geta horfst í augu,“ segir Baldur. Snorri goði framsóknarmaður Námskeiðið fer þannig fram að Baldur fer yfir sögurnar og ræðir til­ tekna þætti og hvetur til umræðna. „Ég fæ fólkið með í þennan leik. Margir búa yfir mikilli sérþekkingu um einstök atriði. Einn veit kannski allt um vopnaburð til forna, annar er fróður um skip og siglingar og sá þriðji veit sitthvað um tónlist miðalda eða fornleifar. Kaffihléið er ómissandi þáttur í námskeiðinu og þar heldur umræðan áfram. Margar góðar hugmyndir hafa komið þar upp, meðal annars sú að Snorri goði hljóti að hafa verið framsóknar­ maður.“ Ferðalög á söguslóðir hafa tekist vel. „Við höfum farið til Austfjarða og Vestfjarða en einnig í styttri ferðir. „Nú í vor og aftur í haust er ætlunin að fara dagsferðir um Snæ­ fellsnes og Dali á söguslóðir Lax­ dælu og Eyrbyggju. Ég vona að við komumst í fyrri ferðina í lok maí.“ Fær fólkið með í leikinn Baldur Hafstað heldur fornsagnanámskeið fyrir eldri borgara. Þar koma margar góðar hugmyndir upp eins og sú að Snorri goði hafi líklega verið framsóknarmaður. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Sterkur kjarni kemur aftur og aftur á námskeiðið, segir Baldur Hafstað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Listasöfn hafa verið opnuð á ný, þar á meðal Listasafn Íslands. Þar eru nú sýningarnar Fjár­ sjóður þjóðar, með glæsilegu úrvali verka úr safneigninni, og sýningin Að fanga kjarnann, þar sem getur að líta vatnslitamyndir Mats Gustaf­ son. Svo sannarlega er ástæða til að mæla með báðum sýningunum. Þeir sem bregða sér á listasafnið ættu ekki að gleyma að skoða stórt málverk eftir Eggert Pétursson í anddyri safnsins. Listasafnið keypti verkið af listamanninum á síðasta ári og á því sést öll brönugrasaættin sem vex á Íslandi. Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, segir verkið hafa vakið mikla athygli gesta áður en safninu var lokað vegna samkomubanns. Ótvírætt mikilvægi Á annarri hæð safnsins er síðan innsetning, High Plain frá árinu 2001, eftir Katrínu Sigurðardóttur sem safnið keypti fyrir nokkrum árum. „Uppsetning þess er liður í því að sýna stærri innsetningar sem safnið á. Stundum líða verk eins og þetta fyrir það að vera stór og dýr og flókin í uppsetningu og eru því ekki sýnd nógu reglulega en svona verk ætti í raun að vera sýnt að staðaldri því mikilvægi þess innan okkar listasögu er ótvírætt að mínu mati,“ segir Harpa. Erfitt er að lýsa verkinu en til að líta það augum þurfa gestir að fara upp stiga og þá blasir við mikil dásemd sem minnir á fjöllin, blám­ ann og fjarlægðir og tenginguna milli manns og náttúru. Vinnusvæði sérfræðinga Að auki geta gestir safnsins virt fyrir sér vinnusvæði sérfræðinga sem meðhöndla safnkostinn því einn salur hefur verið tekinn undir ástandsskoðun, skráningu og ljós­ myndun listaverka sem er liður í átaksverkefni safnsins um þessar mundir. Þess skal getið að ókeypis aðgang­ ur verður í Listasafni Íslands út þessa viku. Eggert og Katrín í Listasafni Íslands Verk Katrínar. Þegar komið er upp stigann blasir dásemd við. Málverk Eggerts af brönugrösum sem vaxa á Íslandi. MYNDIR/SIGURÐUR GUNNARSSON Nýlega var tilkynnt hvaða söfn eru tilnefnd til Íslensku safnaverðlaunanna 2020. Þetta er í tuttugasta sinn sem verð­ launin verða afhent. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, af hendir safnaverðlaunin við hátíðlega athöfn þann 18. maí næstkomandi í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Athöfninni verður streymt á sam­ félagsmiðlum í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu. Tilnefningar n Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum, Tækniminjasafn Austurlands á Seyðisfirði og Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði ásamt Gunnarsstofn- un, menningar- og fræðasetri á Skriðuklaustri í Fljótsdal. n Fiskur og fólk – sjósókn í 150 ár Ný grunnsýning Sjóminjasafns Borgarsögusafns Reykjavíkur og aðkoma tveggja hollvina- samtaka, Óðins og Magna. n 2019 – ár listar í almannarými hjá Listasafni Reykjavíkur n Vatnið í náttúru Íslands Ný grunnsýning Náttúruminja- safns Íslands. n Varðveislu- og rannsóknamið- stöðvar Þjóðminjasafns Íslands ásamt Handbók um varðveislu safnkosts Tilnefningar til safnaverðlauna Náttúruminjasafn Íslands fékk til- nefningu fyrir sýningu um vatnið í náttúrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Elsti þátttakandi yfir nírætt Næsta námskeið verður haldið í september og þá verða lesnar tvær fornaldarsögur, Hrólfs saga kraka og Ragnars saga loðbrókar, „báðar stórkostlega merkilegar“, segir Baldur og bætir við: „Mig langar til að taka líka eitthvað úr Sturlungu fyrir jól, eins og Svínfellingasögu sem er stutt en áhrifamikil. Eftir jólin gæti einhver Íslendingasaga síðan orðið fyrir valinu.“ Allir sem eru sextugir og eldri geta skráð sig á námskeiðið. „Ég er ekki lengur yngstur í hópnum,“ segir Baldur. Hann kenndi um ára­ bil í Kennaraháskóla Íslands og segist vera farinn að fá gamla kenn­ aranema til sín. „Þannig eru kynnin endurnýjuð og reyndar eru gamlir skólafélagar einnig farnir að mæta á þessi námskeið. Elsti þátttakandinn í hópnum er kominn vel yfir nírætt, lífsglaður Vestfirðingur, hann hefur aldrei látið sig vanta þessi fimm ár.“ Spurður hvaða fornsögur njóti mestra vinsælda segir Baldur: „Sumar sögur koma á óvart, eins og Hávarðar saga Ísfirðings, hún gerði lukku, einnig Droplaugarsona saga sem gamlir Austfirðingar þekkja, en aðrir síður. Svo eru sögur sem ekki falla í kramið hjá öllum. Ég man eftir konu sem sagði hreinskilnis­ lega að sér þætti Svarfdæla saga leiðinleg. En ferðin á söguslóðir Svarfdælu og Víga­Glúms sögu bætti það nú allt upp.“ 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.