Fréttablaðið - 07.05.2020, Page 39

Fréttablaðið - 07.05.2020, Page 39
TÓNLIST Aría dagsins, Íslenska óperan Eldborg í Hörpu á netinu Í óperunni Tosca eftir Puccini ræðst kona á mann og stingur hann í hjart­ að með rýtingi. Eftir nokkra stund spyr hann: „Má ég standa upp?“ Atriðið er að finna í heimildar­ myndinni Tosca’s Kiss, sem fjallar um elliheimilið Casa di Riposos per Musicist í Mílanó. Það er ætlað óperusöngvurum sem eru komnir á eftirlaun og var stofnað af engum öðrum en Giuseppe Verdi, óperu­ tónskáldinu ástsæla. Heimildar­ myndin var gerð fyrir allnokkru, en hana er að finna á iTunes. Hún er bráðskemmtileg. Vistmenn lifa að mestu í fortíðinni. Fólkið er sí­ syngjandi og setur gjarnan upp á elliheimilinu atriði úr óperum sem það tók þátt í að flytja á sínum tíma í alvöru sölum. Margt í myndinni er skondið. Einn náungi gerir gys að bariton­ söngvara sem er að þenja sig. Sök hans er að dvelja of lengi á einhverri hápunktsnótunni. Náunginn glottir og biður hann um að slökkva þegar hann er búinn. Annar söngvari fer í búning sem hann tekur upp úr gömlu kofforti. Hann klæddist honum í uppfærslu á Rigoletto fyrir áratugum síðan. Því næst setur hann á plötu með aríu úr óperunni, stendur grafkyrr og hlustar, og hneigir sig svo virðulega fyrir koffortinu að aríunni lokinni. Stemningin er á vissan hátt svipuð í tónlistarstreymi Íslensku óperunnar úr Eldborg í Hörpu sem ber heitið Aría dagsins. Þetta eru íslenskir söngvarar sem syngja við meðleik Bjarna Frímanns Bjarna­ sonar. Streymið samanstendur af einum söngvara á dag og verk­ efnið yfirleitt aría úr óperu. Til­ finningarnar sem fólkið ber á torg í söngnum eru fölskvalausar, en tómir áhorfendabekkirnir virka ein­ kennilega. Heildarútkoman er dálít­ ið vandræðaleg, rétt eins og skrýtnu senurnar í heimildarmyndinni. Söngvararnir standa sig þó prýði­ lega. Dísella Lárusdóttir syngur t.d. afar fallega aríur eftir Puccini og Charpentier. Rödd hennar er tær og fögur, raddbeitingin nákvæm og túlkunin stórbrotin. Habaneran fræga úr Carmen sem Valgerður Guðnadóttir syngur, er líka glæsileg, full léttleika og snerpu. Schmerzen eftir Wagner í meðförum Auðar Gunnarsdóttur, er sömuleiðis flott, en það er eitt af fáum lögum þarna sem ekki flokkast undir óperuaríu. Margt annað mætti telja upp, eins og hrífandi f lutning á aríu úr La Bohème eftir Puccini í túlkun Ingibjargar Guðjónsdóttur, og E lucevan le stelle eftir sama tónskáld úr Toscu, en þar er það Egill Árni Pálsson sem syngur af gríðarlegri tilfinningu. Bjarni Frímann spilar ákaflega vel á flygilinn, hver nóta er á sínum stað og stemningin ávallt sú rétta. Hún myndar umgjörð utan um sönginn og lyftir honum í hæstu hæðir. Óskandi væri að heyra þetta allt saman á alvöru tónleikum í náinni framtíð. Tónlistarlífið hefur illi­ lega verið kýlt niður og þess er sárt saknað. Við spyrjum okkur núna öll þessarar táknrænu spurningar: Má ég standa upp? Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Aría dagsins er streymi í boði Íslensku óperunnar og er skemmtileg og upplífgandi. Má ég standa upp? Rödd hennar er tær og fögur, segir Jónas Sen um Dísellu Lárusdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þjóðleikhúsið undirbýr nú viðamikla uppsetningu á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. Sýningin verð­ ur frumsýnd í byrjun mars 2021. Unnið er að mönnun sýningarinn­ ar en hópur listrænna stjórnenda hefur verið ráðinn að verkefninu við hlið Þorleifs Arnar. Ebba Katrín Finnsdóttir mun fara með hlutverk Júlíu. Hún hefur vakið mikla athygli síðan hún útskrifað­ ist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands fyrir tveimur árum. Á þessu ári lék hún Uglu í Atómstöðinni og burðarhlutverk í Þitt eigið leikrit II í Þjóðleikhúsinu. Þjóðleikhúsið leitar, með Þor­ leif Örn leikstjóra í fararbroddi, að þeim eina rétta í hið mjög svo eftir­ sótta hlutverk Rómeós. Nú er kallað eftir umsóknum frá leikurum á aldrinum 20­30 ára sem hafa áhuga á að komast í prufu fyrir hlutverkið. Leikstjóri og listrænir stjórnend­ ur velja ákveðinn hóp sem verður boðið að koma í prufur fyrir hlut­ verkið. Þar gefst þeim tækifæri til að leika tvær stuttar senur úr verkinu á móti Ebbu og öðrum leikurum undir leikstjórn Þorleifs á Stóra sviðinu. Prufurnar fara fram 18. og 19. maí. Framhaldsprufur verða boðaðar fyrir þrengri hóp í kjöl­ farið. Þegar valið hefur farið fram verður einum leikara boðið hlut­ verk Rómeós. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti, þriðjudaginn 12. maí. Upplýsingar um prufur má finna á vefsíðu Þjóðleikhússins, leik­ husid. is. Þjóðleikhúsið leitar að Rómeó Ebba Katrín Finnsdóttir verður Júlía. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÞEGAR VALIÐ HEFUR FARIÐ FRAM VERÐUR EINUM LEIKARA BOÐIÐ HLUTVERK RÓMEÓS. Pantið hjá okkur fyrirfram í gegnum tölvupóst eða Facebook, þar sem einnig má sjá úrval dagsins. Við hlökkum til að taka á móti ykkur! Við í Djúpinu sjáum fjölmörgum veitingastöðum, fyrirtækjum og mötuneytum fyrir fisk en bjóðum nú einnig einstaklinga velkomna í vinnsluna til okkar þar sem þeir geta keypt milliliðalausan fisk á frábæru verði. Úrvalið breytist dag frá degi og í borðinu hjá okkur er alltaf það ferskasta hverju sinni. Hvernig hljómar spriklandi ferskur fiskur beint úr vinnslu? Djúpið fiskvinnsla - Fiskislóð 28 - 101 Reykjavík panta@djupidfiskvinnsla.is facebook.com/djupidfiskvinnsla M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 7 . M A Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.