Bændablaðið - 17.11.2016, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Stöðnun ríkir í lífrænum landbúnaði á Íslandi
– Með nýjum búvörusamningum á að stórauka við stuðning til aðlögunar
Ísland virðist vera að dragast
verulega aftur hvað varðar
framleiðslu á lífrænum land-
búnaðarvörum. Í Bændablaðinu
22. september var fjallað um
lífrænan landbúnað í Evrópu. Þar
kom fram að flestar þjóðir, þar sem
sæmileg velmegun er, bættu nokkuð
við sig í lífrænum landbúnaði á
árunum 2013 til 2014, ef hlutfall
landnotkunar sem fer undir
lífrænan landbúnað er skoðað. Á
heildina litið hækkaði hlutfallið um
2,3 prósent.
Á Íslandi fækkaði framleiðendum
á árunum frá 2011 til 2014, en vottað
land hefur þó stækkað lítillega og
taldist í fyrra vera um 1,6 prósent.
Ítalía er það land sem varði
stærstum hluta af nytjalandi sínu
undir lífrænan landbúnað árið 2014,
eða 17,9 prósentum. Flest lönd
innan Evrópusambandsins eiga það
þó sameiginlegt að þar hefur hlutfall
lífrænt vottaðs lands hækkað nokkuð
ört enda unnið markvisst í þá átt með
stefnumótun og stuðningi.
Stöðnun virðist því vera í þessum
geira landbúnaðarins íslenska og
ekki bólar á stefnumótun, eftir að
aðgerðaáætlun um Eflingu græna
hagkerfisins á Íslandi lognaðist út af
á síðasta kjörtímabili. Í þeirri áætlun
var gert ráð fyrir að 15 prósent af
nytjalandi yrði lífrænt vottað árið
2020.
Í nýsamþykktum búvöru-
samningum er þó gert ráð fyrir meiri
stuðningi við aðlögun að lífrænum
landbúnaði.
Nýr ráðunautur
í lífrænum landbúnaði
Lena Johanna Reiher tók við stöðu
ráðu nautar í líf rænum land búnaði
í janúar 2015 þegar dr. Ólafur
Dýrmundsson lét af störfum. „Ég tók
við hluta af starfi hans Ólafs þegar
ráðgjöf til bænda í lífrænum búskap
og aðstoð við aðlögun að lífrænum
búskaparháttum færðist yfir til
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
(RML). Ég kann vel við mig í þessu
hlutverki, enda mikil áhugamanneskja
um lífrænar landbúnaðarvörur og
lífræna landbúnaðarframleiðslu.
Ég er með próf í búvísindum frá
Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ)
og síðan er ég með meistarapróf í
búfjárfræði frá Kiel í Þýskalandi.
Þá hef ég tekið áfangann „lífrænn
landbúnaður“ við LBHÍ 2013 og setið
dagsnámskeið hjá VOR og Tún um
aðlögun að lífrænum búskap 2014.
Síðan stendur til að mennta sig meira á
sviði ræktunar á lífrænum matjurtum
og tengjast erlendum ráðunautum sem
sinna ráðgjöf til bænda í lífrænum
búskap,“ segir Lena um sinn
bakgrunn.
Ýmsir þættir þess valdandi að
stöðnun ríkir
Lena segir að þótt lífrænt vottað
nytjaland á Íslandi sé metið um 1,6
prósent af íslensku landbúnaðarlandi
sé það að athuga að í þeirri tölu sé
einnig land til jurtasöfnunar, sem geti
í mörgum tilfellum verið mjög stór
svæði.
En hver er staða mála að hennar
mati og horfur fyrir lífrænan
landbúnað? „Þær tölur sem ég hef
nýlega fengið frá Vottunarstofunni
Túni gefa ekki tilefni til bjartsýni. Þar
kemur fram að á árunum 2012 til 2016
fengu tíu framleiðendur lífræna vottun
og 15 vinnsluaðilar. Á sama tíma
hafa hins vegar 14 framleiðsluaðilar
sagt upp vottun sinni – eða þeir
misst hana – og sex vinnsluaðilar.
Vinnsluaðilar eru bæði fyrirtæki sem
sjá um endurpökkun innfluttra vara
og fyrirtæki í matvælaframleiðslu, svo
sem mjólkurvinnslufyrirtæki, bakarí,
kaffibrennslufyrirtæki eða þau sem
framleiða snyrtivörur.
Það bráðvantar fleiri bændur
sem eru tilbúnir að stunda lífræna
mjólkurframleiðslu. Fyrirtækið BioBú
hefur komið sér vel fyrir á íslenskum
neytendamarkaði og vantar mjólk til
að sinna eftirspurn og bæta við vörum.
Misvel gengur í lífrænum
sauðfjárbúskap sem tengist
ýmsum þáttum; eins og almennt
minnkandi eftirspurn eftir
lambakjöti og byrjunarerfiðleikum
í aðlögunarferlinu, en einungis hluti
af aðlögunarstyrkjunum hefur verið
greiddur. Þá hefur afurðastöðvarverð
fyrir lífrænt
ræktað lamba-
kjöt lækkað á
síðustu árum.
Það sem fyrst
og fremst hefur
valdið stöðnun
að mínu mati
er vöntun á
framtíðarsýn
fyrir lífrænan
landbúnað hjá opinberum aðilum. Of
lítil áhersla hefur verið lögð á lífrænu
hlið landbúnaðarins.
Ég tel að helstu tækifærin liggi
í lífrænni mjólkurframleiðslu og
lífrænni framleiðslu á kjúklingakjöti.
Við erum nýbúin að fá lífrænu eggin
inn sem var frábært og mikilvægt skref
fyrir neytendur,“ segir Lena.
Hún segir að þótt meiri áhersla
sé lögð á lífræna ræktun í nýjum
búvörusamningi, sé framtíðarstefnan
samt óskýr. „Markmiðið er að auka
vægi lífrænnar framleiðslu og aukið
fjármagn er ætlað til aðlögunar að
lífrænum framleiðsluháttum, en skýr
stefna er ekki fyrir hendi – hvað þá
háleitar áætlanir. Það vantar svör við
ýmsum spurningum; hversu mikla
aukningu viljum við sjá á næstu
árum og hvernig ætlum við að komast
þangað?
Frá byrjun árs 2017 er gert ráð
fyrir 35 milljónum króna á ári í nýjum
búvörusamningum til aðlögunar að
lífrænum framleiðsluháttum, en það
var áður 3,5 milljónir króna á ári. Enn
er verið að ræða og móta útfærslu á
styrkgreiðslum og reglum í kringum
þær. Þessir fjármunir eru eingöngu
ætlaðir til aðlögunar. Markmiðið
er að aðstoða framleiðendur við að
uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í
vottaðri lífrænni búvöruframleiðslu
og auka framboð lífrænna vara
á markaði, eins og tilgreint er í
búvörusamningi.“
Lítið námsframboð
í lífrænum landbúnaði
Að sögn Lenu hefur námsframboð
mjög lítið aukist fyrir þá sem hafa
áhuga á að mennta sig í lífrænum
landbúnaði. „Hjá LbhÍ á Reykjum er
boðið upp á nám sem heitir lífræn
ræktun matjurta, en á Hvanneyri er
einungis valfag fyrir búfræðinema
sem heitir lífrænn landbúnaður. Að ég
best veit, er ekkert annað í kennsluskrá
tengt lífrænum búskap, því miður.“
Aðeins hluti af starfi Lenu fer
í að sinna lífrænum landbúnaði.
„Ég er í 80 prósent starfi hjá RML
og er í hópi þjónusturáðunauta á
sviði rekstrar og nýsköpunar. Mín
verkefni eru mörg og fjölbreytt;
sinni verkefnum í hrossarækt
(skýrsluhald, skráningarkerfið
Sportfengur, kynbótasýningarstjórn),
sauðfjárrækt (lambadómar og
lambaskoðunarskipulag fyrir
Vesturland), er í fóðurhópi (tek
heysýni, túlka niðurstöður og vinn
fóðuráætlanir fyrir kúabú með
NorFor), hef lítið verið í kvíguskoðun
undanfarið en hef veitt aðstoð í
skýrsluhaldskerfinu Huppu. Síðan
bættist lífrænn landbúnaður við og
ég reyni að sinna því eftir þörfum.“
/smh
Ein nýjasta viðbótin í lífrænu búvörulínuna eru Nesbúegg.
Lena J. Reiher.
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
www.lifland.is Reykjavík
Lyngháls
Akureyri
Óseyri
Borgarnes
Borgarbraut
Blönduós
Efstubraut
Hvolsvöllur
Stórólfsvellir
Opið fjós í Fellshlíð
Mjaltaþjónninn sem vex með þér
GEA inn í bíl.indd 1
GEA mjaltaþjónsins á Íslandi
Í tilefni af því verður opið hús
í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit
19. nóvember frá klukkan 12 - 16.
Komið og kynnið ykkur kosti
GEA mjaltatækninnar.
Söluráðgjafar okkar verða á staðnum.
Veitingar í boði.
Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta -
Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Beinn innflutningur til Akureyrar
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
%
afsláttur af öllum dekkjum
til . 201
Handverkfæri
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412