Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Árið 2015 voru heildarlaun fullvinnandi launamanna að meðaltali 612 þúsund krónur á mánuði en helmingur launamanna hafði 535 þúsund krónur eða meira. Á heimasíðu Hagstofu Íslands segir að munurinn skýrist af dreifingu launa þar sem hæstu laun hækka meðaltalið og kjarasamningar tryggja ákveðin lágmarkskjör en kveða ekki á um hámarkskjör. Fjórðungur launamanna var með 433 þúsund krónur eða minna í heildarlaun og tíundi hver launamaður var með lægri laun en 348 þúsund krónur fyrir fullt starf. Þá voru rúmlega 7% fullvinnandi launamanna á íslenskum vinnumarkaði með yfir milljón á mánuði í heildarlaun. Dreifing heildarlauna var ólík eftir launþegahópum og var dreifing launa minnst meðal starfsmanna sveitarfélaga. Af launamönnum sem starfa hjá ríkinu voru 23% með heildarlaun yfir 800 þúsund krónur á mánuði, 19% launamanna á almennum vinnumarkaði og 5% launamanna sem starfa hjá sveitarfélögum. Hins vegar voru rúmlega 60% launamanna á almennum vinnumarkaði með heildarlaun undir 600 þúsund krónum, 45% ríkisstarfsmanna og 85% starfsmanna sveitarfélaga. Heildarlaun fullvinnandi starfsmanna á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 637 þúsund krónur á mánuði árið 2015 en heildarlaun opinberra starfsmanna 583 þúsund krónur. Þar af voru heildarlaun ríkisstarfsmanna 681 þúsund krónur en 490 þúsund krónur hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Heildarlaun stjórnenda voru rúm milljón Árið 2015 voru heildarlaun eftir starfsstéttum að meðaltali á bilinu 438 þúsund krónur á mánuði hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki til 1.001 þúsund króna hjá stjórnendum. Heildarlaun skrifstofufólks voru 466 þúsund krónur á mánuði, verkafólks 475 þúsund krónur, tækna og sérmenntaðs starfsfólks 622 þúsund krónur, iðnaðarmanna 635 þúsund krónur og sérfræðinga 658 þúsund krónur á mánuði. Dreifing launa innan starfsstétta var mismunandi. Þannig var dreifing heildarlauna skrifstofufólks frekar lítil en um 80% skrifstofufólks var með heildarlaun á bilinu 338 þúsund krónur til 607 þúsund króna. Heildarlaun stjórnenda voru á hinn bóginn mjög dreifð en 80% þeirra voru með laun á bilinu 546 þúsund krónur til 1.644 þúsund króna. Heildarlaun starfsstétta voru mismunandi eftir því hvaða hluta vinnumarkaðarins er horft til. Þannig voru stjórnendur á almennum vinnumarkaði að meðaltali með heildarlaun 1.156 þúsund krónur á mánuði fyrir fullt starf, stjórnendur hjá ríki með 968 þúsund krónur en 722 þúsund krónur hjá sveitarfélögum. Verkafólk var hins vegar með 477 þúsund króna heildarlaun á almennum vinnumarkaði, 495 þúsund krónur hjá ríki og 424 þúsund krónur hjá sveitarfélögum. Starfsmenn sveitarfélaga voru með lægst heildarlaun óháð starfsstétt. Heildarlaun lægst í fræðslustarfsemi Heildarlaun voru hæst í atvinnugreininni fjármála- og vátryggingastarfsemi eða 815 þúsund krónur að meðaltali á mánuði, næst komu heildarlaun í rafmagns-, gas- og hitaveitum 808 þúsund krónur. Lægstu heildarlaunin voru í fræðslustarfsemi, 505 þúsund krónur. Sé horft til dreifingar á heildarlaunum þá var launamunur mestur innan fjármálastarfsemi en minnstur í fræðslustarfsemi. Heildarlaun geta verið mjög ólík hjá einstökum starfsstéttum sé horft til atvinnugreina. Þannig voru sérfræðingar með heildarlaun á bilinu 540 þúsund krónur til 909 þúsund krónur á mánuði, lægst í fræðslustarfsemi og hæst í fjármálastarfsemi. Í heilbrigðis- og félagsþjónustu voru heildarlaun sérfræðinga 802 þúsund krónur og 898 þúsund krónur í rafmagns-, gas- og hitaveitum. Dreifing launa innan starfsstéttar getur einnig verið mikil þó um sé að ræða sömu atvinnugrein. Sem dæmi má nefna þá var spönnin milli neðsta tíundahluta og þess efsta rúmlega 900 þúsund krónur hjá sérfræðingum í heilbrigðis- og félagsþjónustu en rúmlega 300 þúsund í fræðslustarfsemi. /VH Fréttir Kaup launamanna á Íslandi 2015: Helmingur með yfir 535.000 krónur í laun á mánuði Margt breytist með nýjum búvörusamningum – Starfsfólk Búnaðarstofu MAST vinnur að innleiðingu samninganna Álag á starfsfólk Búnaðarstofu Matvælastofnunar er mikið þessa dagana. Stærsti kvótamarkaður mjólkur í sögunni er nýlokið, sem jafnframt var sá síðasti, og síðan er vinna komin á fullt við innleiðingu á nýjum búvörusamningum sem taka gildi frá og með næstu áramótum. Alþingi tók sinn tíma í að samþykkja lagabreytingar í tengslum við búvörusamningana og rammasamning ríkis og bænda eins og kunnugt er og náðist það ekki fyrr en í september sl. og fyrr var ekki hægt að hefja innleiðingu þeirra hjá Matvælastofnun. Reglugerðir vegna búvörusamninga Vinna við smíði á reglugerðum vegna samninganna er langt komin í atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytinu samkvæmt heimildum Bændablaðsins. Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri Búnaðarstofu Matvælastofnunar, er í þriggja manna vinnuhópi sem ráðuneytið skipaði vegna reglugerðarsmíðinnar. Bændablaðið ræddi við hann um innleiðingu á búvörusamningunum en Matvælastofnun er falið veigamikið stjórnsýslu hlutverk við umsýslu á stuðnings greiðslum til bænda. Það verður á verksviði Búnaðarstofu MAST. Jón Baldur segir að nánari útfærslur á þeim fjölmörgu ákvæðum sem nýir búvörusamningar fela í sér komi fram í reglugerðum sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið er með í smíðum. Skilyrði sett fyrir stuðningi við landbúnaðinn Aðspurður um nýjungar í samningunum bendir Jón Baldur á að skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum í sauðfjár- og nautgriparækt sé þátttaka í afurðaskýrsluhaldi og fullnægjandi skil, að búrekstur sé stundaður á lögbýli og að starfsemi falli undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands. Í reglugerð verði nánari skilgreining á afurðaskýrsluhaldi, sem séu í samræmi við núverandi kröfur um afurðaskýrsluhald sem bændur þekkja. Framleiðendur skulu vera með afurðaskýrsluhald sitt skráð í þau skýrsluhaldskerfi sem eru til staðar í dag, þ.e.a.s. Fjárvísi í sauðfjárrækt, HUPPU í nautgriparækt og Heiðrúnu í geitfjárrækt. Þeir bændur sem eru í nautakjötsframleiðslu eingöngu þurfa einnig að standa skil á afurðaskýrsluhaldi í HUPPU, sem rétt er að vekja athygli á sérstaklega. Jafnframt er skilyrði um fullnægjandi skil á hjarðbók og heilsuskráningu, og rétt framkvæmd á merkingum sauðfjár, í samræmi við reglugerð um merkingar búfjár nr. 916/2012 með síðari breytingum. Að síðustu er skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum að umráðamenn skili inn haustskýrslu í Bústofni skv. 10. gr. laga nr. 38/2013 um búfjárhald. Þá geti hjón og einstaklingar í óvígðri sambúð, sem standa saman að búrekstri, óskað eftir því við Matvælastofnun að stuðningsgreiðslum sé skipt jafnt á milli þeirra. Fyrirkomulag stuðningsgreiðslna breytist um áramót Fyrirkomulag stuðningsgreiðslna, t.d. í sauðfjárrækt, breytist um áramót í samræmi við búvörusamningana. Búnaðarstofa Matvælastofnunar mun gera ársáætlun í febrúar um heildargreiðslur allra framleiðenda, sem eiga rétt á stuðningsgreiðslum og miðast áætlunin við framleiðslu fyrra árs, fjölda vetrarfóðraða kinda á haustskýrslu í Bústofni, skráð greiðslumark í ærgildum í upphafi ársins og fjárlög ársins. Hjá nýliðum verður eðlilega beitt annarri útfærslu. Síðan mun heildarstuðningsgreiðslu ársins vera skipt jafnt niður innan ársins. Ársuppgjör verður síðan gert í febrúar árið eftir í samræmi við framleiðslu ársins og annarra breytinga á forsendum ársáætlunarinnar. Þegar uppgjör liggur fyrir kemur í ljós hvort stuðningsgreiðslur hafa verið of- eða vanáætlaðar til framleiðenda. Í ársáætlun fyrir sauðfjár- bændur vegna ársins 2017 eru inni beingreiðslur, gæðastýringar- greiðslur, beingreiðslur í ull og loks víðtækari svæðisbundinn stuðningur en þekktist í fyrri búvörusamningum. Nýjar stuðningsgreiðslur Þá koma inn nýjar stuðnings- greiðslur svo sem styrkir vegna nautakjötsframleiðslu, aðlögunarstyrkir vegna lífrænnar framleiðslu, landgreiðslur, nýliðunarstyrkir þvert á búgreinar, stuðningur við geitfjárrækt, gripagreiðslur í sauðfjárrækt (1. janúar 2020), býlisstuðningur (2018), heimild til að bæta tjón vegna ágangs álfta og gæsa og loks fjárfestingarstuðningur. Að síðustu má nefna að umbreytingar eru gerðar á greiðslumarkskerfinu í mjólk og sauðfé sem hefur verið vel kynnt og þar sem m.a. innlausnarkerfi ríkisins tekur við um næstu áramót, þar sem Búnaðarstofa Matvælastofnunar mun annast innlausn. Jón Baldur leggur áherslu á að hér sé ekki um tæmandi upptalningu að ræða á ákvæðum í nýjum búvörusamningi og hvetur bændur til að rifja upp samningana og síðan að kynna sér drögin að reglugerðunum í umsagnarferlinu þegar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið leggur þær fram innan skamms tíma. /VH Ný ríkisstjórn hafi loftslags- málin að leiðarljósi Baráttuhópurinn París 1,5 skoraði í síðustu viku á þá stjórnmálaflokka sem standa að myndun nýrrar ríkisstjórnar að hafa loftslagsmálin að leiðarljósi í stjórnarsáttmála við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Baráttuhópurinn París 1,5 berst fyrir því að Ísland geri sitt til að stöðva hlýnun jarðar við 1,5°C. Í áskoruninni segir m.a.: „Það skiptir miklu máli að frá núverandi kjörtímabili verði unnið að því með öllum tiltækum ráðum að stöðva hlýnun jarðar og þá ógnvænlegu þróun sem blasir við heimsbyggðinni ef ekkert verður að gert. Tími aðgerða er núna – það má ekki fresta þeim þangað til á næsta kjörtímabil. Eftirfarandi þættir eru mikilvægir í stjórnarsáttmála komandi ríkisstjórnar: • Skýr stefna um hvernig á að standa við markmið Parísarsamkomulagsins. • Tölu- og tímasett markmið um minnkandi losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum, iðnaði og öðrum mengandi þáttum. • Markmið um notkun skógræktar og endurheimt votlendis sem mótvægisaðgerðir. • Stefnumótun varðandi notkun hagrænna hvata til að minnka losun. • Uppbygging innviða fyrir orkuskipti. Stefna og markmið verðandi stjórnarflokka þarf að vera skýr frá upphafi, svo hægt sé að taka tillit til hennar í allri annarri ákvarðanatöku eins og t.d. hagsmunaaðila, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. París 1,5 skorar einnig á stjórnvöld að stöðva áform um olíuvinnslu í íslenskri lögsögu til framtíðar.“ Starfsfólk Búnaðarstofu Matvælastofnunar á fundi um innleiðingu á nýjum búvörusamningum. Talið frá vinstri; Bjarki Pjetursson, Guðrún S. Sigurjónsdóttir, Jón Baldur Lorange framkvæmdastjóri, Ómar Jónsson og Ásdís Kristinsdóttir. Mynd / HKr. Hvatning til að flýta fengitíma Sláturfélag Suðurlands hefur birt sláturáætlun og verðhlutföll fyrir kindakjöt vegna ársins 2017. Upplýsingarnar eru settar fram fyrr en áður hefur tíðkast. Að sögn forsvarsmanna SS er það gert til þess að bændur geti flýtt fengitíma ef þeir telja sér hagstætt að slátra fyrr en áður. Með því að flýta slátrun og útvega þannig nýtt dilkakjöt á markaðinn í byrjun september geta bændur vænst allt að 20% hærra verðs fyrir sínar afurðir. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að sú breyting verði gerð að samfelld slátrun hefst tveimur dögum fyrr en áður og sláturtími í nóvember verði styttur. Áætlað er að slátrun hefjist 6. september og að engir sláturdagar verði þar á undan. Slátrun í október er einnig aukin. Breytingar verða á verðhlutföllum sem byggja á reynslu þessa hausts og þau gilda aðeins um innlegg sem eru innan gæðastýringar. Svokölluð þjónustuslátrun verður 29. nóvember en hún er ætluð fyrir það fé sem bændur flokka frá, síðgotunga og eftirheimtur en ekki fyrir almenna slátrun. Greitt verður 85% af lægsta verði haustsins fyrir innlegg í þjónustuslátrun. Verðið sjálft verður ákveðið þegar nær dregur hausti líkt og tíðkast hefur. Úr sláturhúsi SS á Selfossi. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.