Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 1
Ótrúlegur árangur kúabænda á Brúsastöðum í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu:
Hver meðalkýr á Brúsastöðum
mjólkar 8,8 tonnum á ári
− Nokkrar kýr með yfir 12 þúsund kíló og stefnt er í þriðja sinn á efsta sætið - Fjöldi búa sækir þar fast á eftir með afbragðs árangur
Það stefnir í hörkukeppni milli
kúabænda landsins varðandi
röðun í tíu efstu sætin yfir
afurðahæstu búin að meðaltali
á kú 2016. Virðist samt nokkuð
líklegt að Brúsastaðir í Vatnsdal
hreppi þar fyrsta sætið og þá ekki
í fyrsta sinn.
Þegar skoðaðar eru tölur frá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
í lok október tróna Brúsastaðir efst
með 8.814 kg eftir hverja mjólkurkú
að meðaltali síðustu 12 mánuði þar á
undan. Þýðir þetta að margar kýr eru
með meiri nyt og nokkrar með um
og yfir 12.000 kg. Er greinilegt að
bændurnir Gróa Margrét Lárusdóttir
og Sigurður Ólafsson sem reka búið
Brúsa ehf. kunna vel til verka, því
þau voru líka með afurðahæsta búið
að meðaltali á hverja kú á árinu 2014
og 2013. Þá var búið í tíunda sæti
árið 2012.
Á Brúsastöðum eru nú 51,1 árskýr
og hefur fjöldinn verið svipaður
undanfarin ár, en þó einhver smá
fjölgun. Þar er Lely-mjaltaþjónn sem
Sigurður og Gróa keyptu notaðan
fyrir nokkrum árum en á bænum
var áður mjaltabás. Segir Sigurður
að mjaltaþjónninn standi sig vel og
batni bara með árunum.
Fjöldi búa með afburða árangur
Ótrúlega lítill munur er á næstu
níu afurðahæstu búum landsins að
meðaltali á kú.
Í öðru sæti í lok október voru
Gautsstaðir á Svalbarðsströnd í
Eyjafirði. Þar býr Pétur Friðriksson.
Meðalnytin af 97,9 árskúm á tólf
mánaða tímabili er 8.182 kg.
Í þriðja sæti eru Moldhaugar
í Eyjafirði, en þar búa Þröstur
Þorsteinsson og Sara Saard
Wijannarong með 61,6 árskýr. Þar
var meðalnytin á kú 8.138 kg.
Í fjórða sæti er Hraunháls í
Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Þar
búa Jóhannes Eyberg Ragnarsson
og Guðlaug Sigurðardóttir með
27,8 árskýr. Meðalnytin hjá þeim
var 8.128 kg á tólf mánuðum.
Í fimmta sæti er Garðakot
í Skagafirði. Þar búa Pálmi
Ragnarsson bóndi og Ása Sigurrós
Jakobsdóttir með 65,7 árskýr.
Meðalnytin var 8.115 kg.
Í sjötta sæti var Núpur milli
Berufjarðar og Breiðdalsvíkur. Þar
búa Björgvin Rúnar Gunnarsson
og Valborg Friðriksdóttir með
80,6 árskýr. Meðalnytin hjá þeim
var 8.105 kg. Landsmenn kynntust
Björgvini í sjónvarpinu á dögunum.
Þurfti hann þá að moka aurskriðu
sem fallið hafði úr fjallinu skammt
frá bænum. Aðstoðaði hann þar
sjúkraflutningamenn við að bjarga
ökumanni flutningabíls sem lent
hafði í skriðunni.
Í sjöunda sæti var Lyngbrekka
2 á Fellsströnd (Flekkudal) við
Hvammsfjörð. Þar búa Ármann
Rúnar Sigurðsson og Sigrún Hanna
Sigurðardóttir með 23,4 árskýr (í
raun eru á búinu í dag 65 árskýr).
Meðalnyt hjá þeim var 8.087 kg.
Í áttunda sæti var félagsbúið
Stóru-Tjarnir vestan við Ljósavatn
í Ljósavatnsskarði í Suður-
Þingeyjarsýslu. Þar búa Ástvaldur
Þorvaldsson og Laufey Skúladóttir
með 51,1 árskú. Meðalnytin síðustu
tólf mánuði var 8.056 kg.
Í níunda sæti var Félagsbúið
Espihóli í Eyjafirði. Þar búa Jóhannes
Ævar og Kristinn Jónssynir ásamt
fjölskyldum og er búið með 62,3
árskýr. Meðalnytin var 7.939 kg.
Í tíunda sæti var Reykjahlíð
á Skeiðum á Suðurlandi þar sem
Búkostir ehf. er skráð fyrir rekstri.
Þar búa Sveinn Ingvarsson og Katrín
Helga Andrésdóttir. Árskýr eru 70,7
og meðalnytin á síðasta tólf mánaða
tímabili var 7.909 kg.
Fjöldi búa kemur svo þar fast á
eftir með ársnyt sem hver bóndi má
þykja fullsæmdur af og hefði oft
dugað í allra efstu sætin.
Aukning upp á nær tonn á hverja
kú á tveim árum
Er árangurinn á Brúsastöðum í
Vatnsdal nú sérlega eftirtektarverður,
því kýrnar á bænum eru að skila nær
þúsund kílóum (einu tonni) meira að
meðaltali en 2014. Ljóst má vera að
til að ná slíkum árangri verður ansi
margt að ganga upp, bæði í ræktun
gripa, heyskap, fóðrun og umhirðu.
Þá mjólka kýrnar í raunveruleikanum
heldur ekki eftir neinum meðaltölum
enda einhverjar að fara yfir 12.000
kg nyt á ári. /HKr.
22. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 17. nóvember ▯ Blað nr. 479 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 32.000
Hjónin og bændurnir Gróa Margrét Lárusdóttir og Sigurður Ólafsson á
Brúsastöðum í Vatnsdal. Mynd / HKr.
Eftir ótrúlega hlýtt og gott vor, sumar og nær frostlaust haust þá er veturinn farinn að gera vart við sig, einkum á norðanverðu landinu. Smáfuglarnir búa vel að þeirri góðu tíð sem verið hefur,
eins og þessi litli skógarþröstur sem naut þess að tína síðustu reyniberin af runna á dögunum. Hann gæti þó þurft að treysta á velvilja mannfólksins þegar líður á veturinn. Mynd / HKr.
20
„Fullt tilefni til að
skoða þetta betur“
Mikil aðsókn í
að starfa í landbúnaði
26
Kalkúnn
− heitið byggir
á misskilningi
36-38