Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 17.11.2016, Blaðsíða 1
Ótrúlegur árangur kúabænda á Brúsastöðum í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu: Hver meðalkýr á Brúsastöðum mjólkar 8,8 tonnum á ári − Nokkrar kýr með yfir 12 þúsund kíló og stefnt er í þriðja sinn á efsta sætið - Fjöldi búa sækir þar fast á eftir með afbragðs árangur Það stefnir í hörkukeppni milli kúabænda landsins varðandi röðun í tíu efstu sætin yfir afurðahæstu búin að meðaltali á kú 2016. Virðist samt nokkuð líklegt að Brúsastaðir í Vatnsdal hreppi þar fyrsta sætið og þá ekki í fyrsta sinn. Þegar skoðaðar eru tölur frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins í lok október tróna Brúsastaðir efst með 8.814 kg eftir hverja mjólkurkú að meðaltali síðustu 12 mánuði þar á undan. Þýðir þetta að margar kýr eru með meiri nyt og nokkrar með um og yfir 12.000 kg. Er greinilegt að bændurnir Gróa Margrét Lárusdóttir og Sigurður Ólafsson sem reka búið Brúsa ehf. kunna vel til verka, því þau voru líka með afurðahæsta búið að meðaltali á hverja kú á árinu 2014 og 2013. Þá var búið í tíunda sæti árið 2012. Á Brúsastöðum eru nú 51,1 árskýr og hefur fjöldinn verið svipaður undanfarin ár, en þó einhver smá fjölgun. Þar er Lely-mjaltaþjónn sem Sigurður og Gróa keyptu notaðan fyrir nokkrum árum en á bænum var áður mjaltabás. Segir Sigurður að mjaltaþjónninn standi sig vel og batni bara með árunum. Fjöldi búa með afburða árangur Ótrúlega lítill munur er á næstu níu afurðahæstu búum landsins að meðaltali á kú. Í öðru sæti í lok október voru Gautsstaðir á Svalbarðsströnd í Eyjafirði. Þar býr Pétur Friðriksson. Meðalnytin af 97,9 árskúm á tólf mánaða tímabili er 8.182 kg. Í þriðja sæti eru Moldhaugar í Eyjafirði, en þar búa Þröstur Þorsteinsson og Sara Saard Wijannarong með 61,6 árskýr. Þar var meðalnytin á kú 8.138 kg. Í fjórða sæti er Hraunháls í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Þar búa Jóhannes Eyberg Ragnarsson og Guðlaug Sigurðardóttir með 27,8 árskýr. Meðalnytin hjá þeim var 8.128 kg á tólf mánuðum. Í fimmta sæti er Garðakot í Skagafirði. Þar búa Pálmi Ragnarsson bóndi og Ása Sigurrós Jakobsdóttir með 65,7 árskýr. Meðalnytin var 8.115 kg. Í sjötta sæti var Núpur milli Berufjarðar og Breiðdalsvíkur. Þar búa Björgvin Rúnar Gunnarsson og Valborg Friðriksdóttir með 80,6 árskýr. Meðalnytin hjá þeim var 8.105 kg. Landsmenn kynntust Björgvini í sjónvarpinu á dögunum. Þurfti hann þá að moka aurskriðu sem fallið hafði úr fjallinu skammt frá bænum. Aðstoðaði hann þar sjúkraflutningamenn við að bjarga ökumanni flutningabíls sem lent hafði í skriðunni. Í sjöunda sæti var Lyngbrekka 2 á Fellsströnd (Flekkudal) við Hvammsfjörð. Þar búa Ármann Rúnar Sigurðsson og Sigrún Hanna Sigurðardóttir með 23,4 árskýr (í raun eru á búinu í dag 65 árskýr). Meðalnyt hjá þeim var 8.087 kg. Í áttunda sæti var félagsbúið Stóru-Tjarnir vestan við Ljósavatn í Ljósavatnsskarði í Suður- Þingeyjarsýslu. Þar búa Ástvaldur Þorvaldsson og Laufey Skúladóttir með 51,1 árskú. Meðalnytin síðustu tólf mánuði var 8.056 kg. Í níunda sæti var Félagsbúið Espihóli í Eyjafirði. Þar búa Jóhannes Ævar og Kristinn Jónssynir ásamt fjölskyldum og er búið með 62,3 árskýr. Meðalnytin var 7.939 kg. Í tíunda sæti var Reykjahlíð á Skeiðum á Suðurlandi þar sem Búkostir ehf. er skráð fyrir rekstri. Þar búa Sveinn Ingvarsson og Katrín Helga Andrésdóttir. Árskýr eru 70,7 og meðalnytin á síðasta tólf mánaða tímabili var 7.909 kg. Fjöldi búa kemur svo þar fast á eftir með ársnyt sem hver bóndi má þykja fullsæmdur af og hefði oft dugað í allra efstu sætin. Aukning upp á nær tonn á hverja kú á tveim árum Er árangurinn á Brúsastöðum í Vatnsdal nú sérlega eftirtektarverður, því kýrnar á bænum eru að skila nær þúsund kílóum (einu tonni) meira að meðaltali en 2014. Ljóst má vera að til að ná slíkum árangri verður ansi margt að ganga upp, bæði í ræktun gripa, heyskap, fóðrun og umhirðu. Þá mjólka kýrnar í raunveruleikanum heldur ekki eftir neinum meðaltölum enda einhverjar að fara yfir 12.000 kg nyt á ári. /HKr. 22. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 17. nóvember ▯ Blað nr. 479 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 32.000 Hjónin og bændurnir Gróa Margrét Lárusdóttir og Sigurður Ólafsson á Brúsastöðum í Vatnsdal. Mynd / HKr. Eftir ótrúlega hlýtt og gott vor, sumar og nær frostlaust haust þá er veturinn farinn að gera vart við sig, einkum á norðanverðu landinu. Smáfuglarnir búa vel að þeirri góðu tíð sem verið hefur, eins og þessi litli skógarþröstur sem naut þess að tína síðustu reyniberin af runna á dögunum. Hann gæti þó þurft að treysta á velvilja mannfólksins þegar líður á veturinn. Mynd / HKr. 20 „Fullt tilefni til að skoða þetta betur“ Mikil aðsókn í að starfa í landbúnaði 26 Kalkúnn − heitið byggir á misskilningi 36-38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.