Bændablaðið - 17.11.2016, Side 34

Bændablaðið - 17.11.2016, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Gamli traktorinn að þessu sinni er ekki eins gamall og oft áður. Um er að ræða indverska dráttarvél sem sett var á markað á áttunda áratug síðustu aldar. Í dag eru Mahindra-dráttarvélar mest seldu traktorar í heimi. Á r i ð 1 9 6 3 stofnaði bandaríski v é l a f r a m l e i ð a n d i n n International Harvester dótturfélag á Indlandi í samvinnu við indverska dráttarvélaframleiðandann Mahindra og Mahindra. Fyrirtækið fékk heitið International Tractor Compant og hafði að markmiði að framleiða dráttarvélar IH fyrir Indlandsmarkað. Fyrstu traktorarnir sem framleiddir voru af ITC komu á markað 1965 og voru 35 hestöfl og af týpum sem kölluðust 225 Range og B275 Regular. Árið 1977 fluttist rekstur ITC nánast alfarið yfir á Mahindra og Mahindra. Fimm árum seinna komu fyrstu Mahindra-traktorarnir á markað, týpa B-275. Vinsældir þeirrar dráttarvélar voru miklar og fjórum árum seinna kom sú hundraðþúsundasta af færibandinu. H ö f u ð s t ö ð v a r Mahindra í dag eru Mumbai og framleiðir fyrirtækið ríflega 150 þúsund dráttarvélar á ári sem eru seldar um víða veröld. Fyrirtækið hefur verið leiðandi á dráttarvélamarkaði heimsins frá 1988 og þróunin hjá fyrirtækinu hröð. Það ár setti það á markað fyrstu sparneytnu dísildráttarvélina. Frá 1990 hefur fyrirtækið sent frá sér fjöldann allan af mismunandi týpum, stórum og smáum, frá 25 og upp í 150 hestöfl. Mest seldu dráttarvélarnar í Kína Mahindra og Mahindra er með starfsstöðvar í tíu löndum og í öllum heimsálfum að Suðurheimsskautinu undanskildu. Stærsti markaðurinn fyrir Mahindra-traktorana er í Kína og Indlandi þar sem uppbygging í landbúnaði er mikil og í Norður-Ameríku þar sem traktorarnir þykja á góðu verði. Auk þess sem markaðurinn í Ástralíu er ört vaxandi. Til að styrkja stöðu sína í Norður-Ameríku rekur M&M verk smiðjur í fjórum ríkjum, Kali- forníu, Tennessee, Pennsylvaníu og Kansas. Höfuðstöðvar M&M Ameríkudeildarinnar eru í Texas og þaðan er markaðsstarfi fyrir Suður-Ameríku stjórnað. Markaðssetning í Ástralíu er með svipuðum hætti því M&M hefur rekið dráttarvélaverksmiðju í álfunni frá 2005. Dótturfyrirtækið í Ástralíu hefur umsjón með markaðssetningu á Nýja- Sjálandi og í Eyjaálfunni. M&M selur einnig traktora frá suður- kóreska dráttarvéla- framleiðandanum Tong Yang Moolsan. Smátraktorinn Yuvraj Árið 2011 hóf M&M framleiðslu á 15 hestafla smátraktor undir heitinu Yuvraj. Sala á þeim hefur frá upphafi verið langt umfram væntingar og í dag eru um 40 þúsund framleiddir á ári. Mahindra-traktorar hafa verið rauðir að lit frá upphafi, unnið til fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir gæði og frá 2010 hafa þær verið söluhæstu dráttarvélar í heimi. /VH Mahindra – metsölu- traktor frá Indlandi Utan úr heimi Frá 1960 hefur landbúnaðar- framleiðsla í Afríku fjórfaldast. Samt er þessi heimsálfa langt frá því að ná þeim árangri í landbúnaðarmálum sem náðst hefur í Suður-Ameríku og í Asíu að því er fram kemur í úttekt The Economist frá 15. október síðastliðinn. Stærsti hluti aukinnar framleiðslu á landbúnaðarvörum í Afríku skýrist af því að meira land hefur verið tekið undir þessa grein fremur en að aukin framleiðni hafi náðst á því landi sem áður var notað. Um leið hafa fátækir bændur hægt og rólega verið að ganga á næringargildi jarðvegs. Nær allt ræktarland í Afríku er notað án nægilegrar áveitu. Vaxandi öfgar í veðurfari hefur neytt íbúa til að glíma við mikla þurrka, flóð og hitabylgjur. Það er ekki að hjálpa til í heimsálfu þar sem gert er ráð fyrir tvöföldun á fólksfjölda fram til 2050. Afríka einungis með 4% af gróðurhúsalofttegundum Hitastigið í álfunni er þegar um 1°C heitara að meðaltali en það var fyrir iðnbyltinguna. Með enn auknum hita mun ástandið bara versna. Ef meðalhitinn hækkar um 2°C fram til 2050 eins og sumir spá, gæti uppskera dregist saman um helming. Athygli vekur að þessi stóra heimsálfa er einungis talin bera ábyrgð á 4% af árlegri losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Hækkun hitastigs leiðir til aukins kostnaðar Kostnaðurinn vegna hækkandi hitastigs er þegar talinn nema um 1,5% af vergri landsframleiðslu þjóða í Afríku að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þar á bæ er talið að aðlögun að enn hækkandi hita muni kosta þjóðir Afríku um 3% af vergri landsframleiðslu á ári. Áburðarnotkun í Afríku einungis 12,1% af meðaltali á heimsvísu Væntanlega bar þetta á góma á fundi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál sem haldinn var í Afríkuríkinu Marokkó í síðustu viku. Þetta ríki er stærsti framleiðandi í heimi á fosfór sem notaður er í áburð. Samkvæmt tölum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) eru notuð 124 kg af tilbúnum áburði að meðaltali á hvern hektara ræktarlands í heiminum á hverju ári. Í Afríku, öflugustu framleiðsluálfu fosfórs í heiminum, eru einungis notuð 15 kg að meðaltali á hektara, eða 12,1%. Slæmar samgöngur stórhækka áburðarverð Bent er á að tilbúinn áburður sé notaður í braski spilltra embættismanna víða um álfuna og því geti reynst erfitt fyrir bændur að komast yfir slík gæði. Þá valdi slæmt vegakerfi því að það sé 50% dýrara fyrir bændur í Tansaníu að kaupa tilbúinn áburð en bændur í þróaðri löndum. Kostnaðurinn er svo um 80% hærri í Malí samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðlegu áburðar þróunarmiðstöðinni (International Fertiliser Develop- ment Centre – IFDC). Þessi stofnun, sem sett var á laggirnar í Alabama í Bandaríkjunum árið 1976, er nú með starfsstöðvar í yfir 20 löndum. Áburðargjöf gæti minnkað skógareyðingu Aukin áburðargjöf á ræktarland í Afríku er ekki eingöngu talin geta gefið aukna uppskeru fyrir íbúana, heldur geti líka stuðlað að bindingu kolefnis. Skýringin er fólgin í því að minna þurfi að ryðja af skóglendi til ræktunar ef hægt er að gera landið sem fyrir er gjöfulla. Með því að draga úr skógareyðingu í Afríku um einungis 10% á ári samsvarar það gróðurhúsalosun Brasilíumanna í heilt ár, að sögn Mostafa Teeab, forstjóra OCP Group sem er risastór fosfórverksmiðja í Marokkó. Bendir hann á að vegna lítillar áburðarnotkunar bindi ofnýttur jarðvegur í Afríku einungis 175 gígatonn af kolefni á ári (175.000.000.000 tonn) í stað 1.500 gígatonna að meðaltali á heimsvísu (1.500.000.000.000 tonn). /HKr. Stórlega gengið á landgæði í Afríku – Lítil áburðarnotkun og léleg uppskera leiðir til aukinnar skógareyðingar Ef meðalhitinn hækkar Í Afríku um 2°C fram til 2050, eins og sumir spá, gæti uppskera dregist saman um helming. einungis notuð 15 kg að meðaltali á hektara ræktarlands innan álfunnar, eða 12,1% af meðaltalsnotkuninni í heiminum.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.