Bændablaðið - 23.02.2017, Síða 4

Bændablaðið - 23.02.2017, Síða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Ögmundur Jónasson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, heldur opinn fund í Iðnó á laugardaginn undir yfirskriftinni „Hver er hætt- an á innflutningi á ferskum mat- vælum?“ Fundurinn hefst klukkan 12 og segist Ögmundur fá tvo af helstu sérfræðingum landsins á þessu sviði til liðs við sig til að svara þessari spurningu. Þetta eru þeir Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýklafræðideild Landspítala Íslands, og Vilhjálmur Svansson, dýralæknir og sérfræðingur á Tilraunastöð HÍ á Keldum. Hluti af fundaröð „Þetta er hugsað sem hádegisfundur og er liður í fundaröð sem ég hef verið að skipuleggja. Fyrsti fund- urinn fjallaði um alþjóða viðskipta- samninga sem nú eru í smíðum. Það verður framhald á þeirri umræðu á opnum morgunverðarfundi BSRB og BHM nú í morgunsárið (fimmtu- daginn 23. febrúar) á milli klukk- an 8 og 9 í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 9. Þar hef ég spurt um togstreituna á milli fjármagns og lýðræðis. Ég er því að taka efni sem mér finnst mjög mikilvægt að örva umræðu um og þá þannig að fólk hafi allar staðreyndir mála á hreinu. Ég kappkosta að framkalla þessar staðreyndir og til þess kalla ég alla þessa sérfræðinga til liðs við mig. Ég vonast til að fá sem flesta til að mæta á laugardaginn og síðan þarf að flytja umræðuna áfram. Bændasamtökin hafa verið mjög dugleg í þessu efni og ég er að reyna að slást í það lið til að örva umræðu um mál sem ég tel afar brýnt að við ræðum á eins upplýstan hátt og hægt er. Það er verið að taka stórar ákvarðanir í þessum efnum og því þarf þjóðfélagið að vera vakandi,“ segir Ögmundur. /HKr. Fréttir Stjórnsýsluúttekt á Matvælaststofnun: Von á skýrslu í marsbyrjun Gunnar Bragi Sveinsson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra síðustu ríkisstjórnar, tilkynnti í byrjun desembermánaðar á síðasta ári að hann myndi láta gera úttekt á starfsemi Matvælastofnunar í kjölfar svo- kallaðs Brúneggjamáls. Von er á skýrslu um úttektina nú í byrjun marsmánaðar. Var þeim doktor Ólafi Odd- geirssyni, dýralækni og fram- kvæmdastjóra ráðgjafarfyrirtækis- ins Food Control Consultants Ltd. í Skotlandi, og Bjarna Snæbirni Jónssyni stjórnunarráðgjafa falið að gera úttektina og staðfestir Ólafur að von sé á skýrslunni. Verkferlar eftirlits með dýravelferð og matvælaeftirlits Var þeim gert að fara yfir verkferla Matvælastofnunar hvað varðar eft- irlit með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit, greina starfsaðferðir og bera saman við það sem almennt gerist hjá sambærilegum stofnunum í Evrópu. Í tilkynningu frá ráðuneytinu í desember kom fram að sérfræðingar ráðuneytisins myndu fara yfir þau lög sem gilda um starfsemi stofn- unarinnar, beitingu þeirra og greina hvort skortur á lagaúrræðum hamli því að stofnunin geti veitt almenn- ingi og opinberum stofnunum upp- lýsingar úr eftirlitsskýrslum. Kristín Benediktsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, yrði ráðuneytinu til aðstoð- ar hvað varðar lagafyrirmæli er lúta að birtingum upplýsinga. Ráðuneytið og eftirlitsskyldur gagnvart Matvælastofnun Þar kom einnig fram að athugun yrði gerð á rekstri, skipulagi og stjórn- un og hvernig ráðuneytið sinnir almennum eftirlitsskyldum sínum með starfsemi Matvælastofnunar. Loks er óskað eftir ábendingum um það sem betur má fara varð- andi framangreinda þætti, tillögum um breytingar á lögum og öðru því sem telja má að geti eflt framkvæmd með lögum um dýravelferð og mat- vælaeftirlit. Mikilvægt að traust ríki um starfsem Matvælastofnunar Gunnar Bragi sagði að mikilvægt væri að traust ríkti um starfsemi Matvælastofnunar, þegar tilkynnt var um úttektina. „Við höfum fengið mjög hæfa einstaklinga til að yfir- fara verkferla, lagalegt umhverfi og stjórnsýslu á sviði dýravelferðar og matvælaeftirlits. Með þessu vil ég stuðla að því að við lærum af þeim mistökum sem kunna að hafa verið gerð í einstökum málum og tryggj- um að lagaleg umgjörð sé í samræmi við almenna hagsmuni,“ sagði hann. /smh Mikil sala á afskornum blómum fyrir Valentínusar- og konudaginn Mikið hefur verið að gera hjá framleiðendum afskorinna blóma undanfarið. Valentíusar- og konu- dagurinn nýafstaðnir og ræktun á gulum túlípönum fyrir páska hafin. Framleiðendur garðplantna eru einnig komnir á fullt við undir- búning vorsins með sáningu sum- arblóma. Gunnar Þorgeirsson hjá Gróðrarstöðinni Ártanga segir að síðustu vikur hafi verið mikið að gera hjá blómabændum og jafn- framt gósentíð. „Salan á afskornum blómum er mikil fyrir Valentínusar- og konu- daginn og því mikið að gera fyrir þá daga. Á þessum árstíma eru blóma- bændur að framleiða mest af túlíp- önum, rósum og liljum.“ Gunnar segist ekki hafa tölur um heildarframleiðsluna á afskornum blómum á landsvísu en hjá Ártanga segist hann framleiða, frá miðjum desember og fram að páskum, um 500 þúsund túlípana. „Um jólin eru það aðallega rauðir túlípanar en fyrir Valentínusar- og konudaginn sé selt mest af rauðum og bleikum en gulum fyrir páskana. Ártangi, Gróðrarstöðin Dalsgarður og Ræktunarmiðstöðin í Hveragerði eru stærstu framleið- endur afskorinna blóma á landinu. Sáning sumarblóma hafin Framleiðendur sumarblóma eru um þessar mundir á fullu að undirbúa vorið með sáningu sumarblóma og fjölgun af græðlingum. Tíðin hefur verið góð það sem af er árinu og haldi hún áfram að vera góð má búast við að það vori snemma í ár. Gunnar segir að fyrir nokkrum árum hafi tíðin verið svipuð og að þá hafi garðplöntuframleiðendur verið farnir að selja sumarblóm um páska. Í ár eru páskar um miðjan apríl og ekki ólíklegt að sala á sumar- blómum verði hafin svo lengi sem ekki geri slæmt páskahret. „Hjá Ártanga framleiðum við talsvert af sumarblómum sem við sendum í Grænan markað og þaðan eru blómin send í verslanir eins og Blómaval, Garðheima, Byko og Bauhaus svo dæmi séu nefnd. Auk þess sem við seljum lítið eitt af sum- arblómum til sumarbústaðaeigenda hér í nágrenninu. Stærsta einstaka tegundin af sumarblómum sem við erum að selja er hortensía, sem við flytjum inn á veturna úr kæligeymslum í Evrópu. Við geymum síðan hort- ensíurnar fram á vor og drífum þær í blóm. Auk þess sem við ræktum talsvart af stærri sumarblómum, eins og tóbakshorni, pelagóníum og sólboða. Kryddjurtir allt árið Undirstaðan í ræktum Ártanga eru kryddjurtir sem stöðin ræktar árið um kring. Gunnar segir að ræktunarpláss undir gleri eða plasti hjá Ártanga séu um 1.000 fermetrar. /VH Opinn fundur í Iðnó klukkan 12 á laugardag: Innflutningur á ferskum matvælum – hver er hættan? Gunnar Þorgeirsson hjá Gróðrarstöðinni Ártanga. Hjá Ártanga eru framleiddir, frá miðjum desember og fram að páskum, um 500 þúsund túlípanar. Basilíka. Undirstaðan í ræktun Ártanga eru kryddjurtir sem stöðin ræktar árið um kring. Ögmundur Jónasson. Úttekin er gerð í kjölfar Brúneggjamálsins svokallaða, eftir að Ríkisútvarpið upplýsti að aðbúnaður varphæna hjá Brúneggjum hefði verið óviðunandi um langan tíma.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.