Bændablaðið - 23.02.2017, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 23.02.2017, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Endurmenntun LbhÍ www.lbhi.is/namskeid • endurmenntun@lbhi.is • 433 5000 Meðferð varnarefna Í samstarfi við Umhverfisstofnun, Vinnueftirlitið og Landssamtök meindýraeyða. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta, þar sem hver um sig stendur sjálfstætt og settir upp fyrir eftirfarandi markhópa: 1. Þá sem hyggjast gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu varnarefna 2. Þá sem hyggjast nota varnarefni í landbúnaði og garðyrkju 3. Þá sem hyggjast nota varnarefni við eyðingu meindýra Námskeiðin hefjast 6. mars hjá LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík Kynningarfundur Skógræktarinnar í Húnaþingi vestra: Mikill áhugi á búskaparskógrækt meðal bænda Tuttugu bændur af sautján býlum í Húnaþingi vestra sóttu nýverið kynningarfund um búskapar- skógrækt sem Skógræktin hélt í sveitarfélaginu en mikill áhugi virðist meðal bænda á verkefn- inu að því er fram kemur á vef Skógræktarinnar. Sigrún Magnúsdóttir, þáver- andi umhverfisráðherra, fól Skógræktinni í október að ann- ast þróunar- og átaksverkefni í búskaparskógrækt í Vestur- Húnavatnssýslu. Hugtakið búskap- arskógrækt er tilraun til að íslenska það sem á ensku hefur verið kallað agroforesty en fleiri útgáfur hafa heyrst, svo sem skógarbúskapur, skógarlandbúnaður, landbúnað- arskógrækt svo dæmi séu tekin. „Þessa búskaparaðferð má skil- greina sem svo á einfaldan hátt að það sé sjálfbær landnýting þar sem skóg- eða trjárækt er á sama svæði og annar búskapur og afurðir bús- ins komi jafnt úr skóginum sem úr akuryrkju eða kvikfjárrækt,“ segir í frétt um málið. Framlagið nemur 11 milljónum króna Verkefninu fylgir 11 milljóna króna fjárveiting og þar af eru sjö millj- ónir ætlaðar til beinna aðgerða eða framkvæmda. Aðgerðir sem breytt geta hefðbundnum búskap í búskaparskógrækt eða skógarbú- skap geta verið þessar meðal annars: Heildstætt skjólbeltakerfi, skjól- lundur, skjólskógar eða skjólfangar- ar, hagaskógur eða akurskógur. Allnokkur reynsla hefur fengist víða hérlendis af þessum ræktunar- flokkum sl. 17 ár í starfi bænda með samninga við Landshlutaverkefni í skógrækt, sem nú eru hluti af nýrri stofnun, Skógræktinni. Því þykir óþarfi að finna upp hjólið, frem- ur að smíða hjól sem hentar. Í því skyni er ætlunin að skoða núverandi stuðningskerfi við skógrækt á lög- býlum og hvort móta megi úr því aðgengilegra form en tíðkast hefur fyrir bú í fullum rekstri. Verkefninu verður eingöngu beint að jörðum í rekstri. Til þess að vel megi til tak- ast hefur Skógræktin óskað eftir að settur verði upp formlegur samstarfs vettvangur nokkurra aðila, Skógræktarinnar, Búnaðar- s ambands Húnaþings og Stranda, Sveitarfélagsins Húnaþings vestra og jafnvel fleiri aðila. Í því verður unnið nánar á næstunni. Styðja við hefðbundinn búskap Á fundinum sem haldinn var á Gauksmýri í Línakradal komu tutt- ugu bændur úr héraðinu frá sautján bújörðum og var greinilegt að áhugi þeirra á verkefninu var mikill. Aðferðir búskaparskógræktar geta stutt mjög við hefðbundinn búskap, veitt skjól fyrir skepnur, ekki síst lambfé á vorin, skýlt túnum og öðrum ræktarlöndum og þar með aukið bæði frjósemi og uppskeru, breytt snjóalögum og skýlt húsum svo minni þörf verður á kyndingu og þannig mætti áfram telja. Með tímanum myndast líka timburauð- lind á búunum. Fyrstu afurðirnar verða sveppir, girðingastaurar og trjákurl svo eitthvað sé nefnt en síðar meir einnig smíðaviður eða iðnviður sem eykur tekjur búsins og fjölgar störfum í héraði. Í vel grónum sveitum eru einnig aukn- ir möguleikar til ýmissar annarrar starfsemi, hvort sem það er ræktun eða kvikfjárrækt, ferðaþjónusta eða hvers kyns önnur nýsköpun. Skógræktin fól Sæmundi Þorvaldssyni skógfræðingi stjórn þessa verkefnis og honum til fulltingis er Johan Holst, skóg- ræktarráðgjafi Skógræktarinnar í Húnavatnssýslum. Í kjölfar fundar- ins geta áhugasamir bændur nú sótt um að gerast þátttakendur í þessu þróunarverkefni um búskaparskóg- rækt. /MÞÞ Tuttugu bændur frá sautján býlum sóttu kynningarfund um búskapar- skógrækt á Gauksmýri. Greinilegur áhugi er meðal bænda á verkefninu búgreinum. Mynd / Johan Holst á vef Skógræktarinnar Félag skógareigenda á Suðurlandi: Samningur við Uppbyggingarsjóð Fulltrúar Félags skógareigenda á Suðurlandi hafa undirritað samning við Uppbyggingarsjóð Suðurlands um styrk vegna undir- búnings og stofnunar rekstrar- félags sem hefur með höndum að móta stefnu, greina tækifæri í úrvinnslu og markaðssetningu skógarafurða og að kynna verk- efnið. Undirritun fór fram á félagsfundi í liðinni viku og var vel mætt. Góðir gestir sóttu fundinn, m.a. Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri, Björn B. Jónsson, sem sér um úrvinnslu og markaðsmál hjá Skógræktinni og Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri samhæfingarsviðs Skógræktarinnar. Margt er að gerast í skógrækt- armálum, segir í frétt á vef Félags skógareigenda, og mikil tækifæri að skapast í uppbyggingu á þessari ungu atvinnugrein. /MÞÞ Stjórn AFE leggur til hækkun á framlagi sveitarfélaga Byggðaráð Dalvíkurbyggðar fjallaði um erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar á fundi sínum á dögunum, þess efnis að framlög sveitarfélaga sem standa að atvinnuþróunar- félaginu hækki um 20%. Stjórn Atvinnuþróunarfélagsins mun á aðalfundi þess í apríl leggja til 20% hækkun á framlögum sveitarfélaga og að hún muni gilda afturvirkt frá áramótum. Fram kemur í fundar- gerð Byggðaráðs að framlag Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017 yrði þá ríflega 3 milljónir króna, en það var rúmlega 2,5 milljónir árið 2016 og í fjárhagsáætlun fyrir þetta ár var gert ráð fyrir nokkurn veginn sömu upphæð. Einnig kemur fram að ráðið hafi á því skilning að hækka þurfi framlög sveitarfélaga til AFE vegna uppsafn- aðs misgengis launa- og neysluvísi- tölu undanfarinna ára. „Hækkunin er nokkuð mikil eða sem nemur 20% og ekki gert ráð fyrir slíku í fjár- hagsáætlun sveitarfélagsins og gildir það sjálfsagt um fleiri sveitarfélög. Finna þarf leið til þess að hækkanir á framlögum sveitarfélaga til AFE verði ákveðnar áður en fjárhagsáætl- unarvinna sveitarfélaga fer fram að hausti,“ segir í bókun frá fundinum. Sterkara hagsmunaafl gegn ríkinu Þá vonast Byggðaráð til þess að á aðalfundi AFE í apríl næstkomandi verði umræður um málið sem og um sameiningu atvinnuþróunarfélag- anna og Eyþings. Fagnar ráðið því að stjórn Eyþings hafi ákveðið á fundi í nóvember á liðnu ári að ræða við forsvarsmenn Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri um úttekt á sameiningu atvinnuþróunarfélaga og Eyþings. „Ljóst er að með slíkri sam- einingu og/eða með jafnvel enn víðari sameiningu á samstarfsverk- efnum sveitarfélaga verði hægt að mynda miklu sterkara hagsmuna- afl á Eyþingssvæðinu gagnvart ríkisvaldinu. Nýting fjármagns og mannauðs ætti að batna með samein- ingu auk þess sem leiða má líkur til þess að öll stjórnsýsla og skjalavarsla verði agaðri og í samræmi við þau lög sem sveitarfélög þurfa að vinna eftir.“ /MÞÞ Skagafjörður: Nær 67 þúsund gestir á söfn, setur og sýningar Nær 67 þúsund gestir heimsóttu sýningar á minjastaði sem tengjast Byggðasafni Skagfirðinga á liðnu ári. Þar er um að ræða gestakomur hvarvetna í Skagafirði þar sem sýn- ingar eru meira og minna byggð- ar á safngripum frá Byggðasafni Skagfirðinga, í Glaumbæ, Vesturfarasetrinu á Hofsósi og Sögusetri íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal, en alls komu tæplega 58 þúsund gestir á sýningar þar. Sé Víðimýrarkirkju bætt við heimsóttu 66.828 gestir sýningar og minjastaði sem safnið tengist á árinu 2016 að því er fram kemur á vefsíðu safnsins. Aukning að vori og hausti Fram kemur að gestir Víðimýrar- kirkju voru ríflega 8.300 sem er lítils háttar fjölgun frá í fyrra. Gestir Minjahússins voru 4.518, sem er tvöföldun frá árinu áður og gestir í gamla bænum í Glaumbæ voru 45.002. Mest var fjölgun gesta í gamla bænum í Glaumbæ að vori og hausti, í apríl, maí, september og október. Tvöföldun gestatölu í Minjahúsinu skýrist á því að enginn aðgangseyrir var tekinn inn á sýn- ingarnar þar á þessu ári og fjölgun var á ferðamönnum sem fóru um Sauðárkrók sl. sumar miðað við árið áður. Öflug starfsemi Sögusetur íslenska hestsins var með öfluga starfsemi á síðasta ári og auk þess að setja upp nýja sýn- ingu á efri hæðinni og yfirfara allt kynningarefni tók setrið virkan þátt í Landsmóti hestamanna sem fram fór á Hólum í Hjaltadal síðasta sumar og ráðstefnu um hrossarækt í 100 ár. Á heimasíðu setursins segir að helstu verkefni þessa árs séu að yfir- fara fastasýninguna á neðri hæðinni, efla safnbúðina og stórauka rafræna miðlun. Einnig er stefnt að auknum gestakomum en gestafjöldi jókst um 30% á síðasta ári. /MÞÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.