Bændablaðið - 23.02.2017, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 23.02.2017, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Það var líkt og að koma inn í annan heim, eða réttara sagt inn í gamlan Stikluþátt Ómars Ragnarssonar, þegar blaðamaður Bændablaðsins fór til fundar við ábúendur á sveitabænum Kjepso í Harðangursfirði í Noregi. Bærinn, sem samanstendur af sex húsum, stendur hátt uppi í brattri hlíð, um 250 metra yfir sjávarmáli og enginn akvegur er að bænum heldur þarf að ganga upp rúmlega 600 þrep og um 50 metra leið í bratta áður en hægt er að virða fyrir sér líf fólks á stað þar sem enginn gæti trúað að nokkur gæti búið. Löng leið í skólann Það var einmitt í samnefndum sjón- varpsþætti norska ríkissjónvarpsins (NRK), Þar sem enginn gæti trúað að nokkur gæti búið, að helmingur ábúenda, hjónin Per Ragnar Kjepso og Anne Kjepso, voru sótt heim en heimildaþættirnir fjalla um fólk sem hefur sest að á stöðum sem eru tölu- vert úr alfaraleið. Kjepso er þó ekki svo mikið úr alfaraleið en óhætt er að segja að leiðin að bænum jafnist á við létta fjallgöngu. „Ég er fæddur og uppalinn hér á Kjepso, eða réttara sagt fæddist ég í Bergen og átti minn uppvöxt hér. Þó að ég hafi síðan farið út að kanna heiminn til að vinna og fara í nám þegar ég hafði nægt vit fyrir mér þá æxlaðist það þannig að ég settist hér að á Kjepso með konu minni sem er frá Skotlandi. Við kynntumst þegar ég var við nám í rafmagnsverkfræði í tækniskóla í Glasgow,“ útskýrir Per Ragnar brosandi og segir jafnframt: „Ég var sjö ára þegar ég byrjaði í skóla inni í Álavík og þurfti þá að ganga hér niður á þjóðveg og þaðan tæpa fjögurra kílómetra leið inn til bæjarins og síðan aftur til baka að loknum skóladegi. Það voru engir skólabílar á þessum tíma svo þetta var löng leið en ég hlakkaði alltaf til að fara í skólann, nám hefur alltaf átt vel við mig.“ Alltaf nægur matur til Árið 1318 var bærinn kallaður Kexisskor en fornleifafræðingar telja að nafnið komi af orðinu kefis sem þýðir þræll og það megi rekja aftur til ársins 800. Á þeim tíma, þegar víkingatíminn tók við, var vanalegt að fólk tæki í notkun erf- iðari landsvæði í Noregi sem hafði í för með sér erfiðisvinnu, svonefnda þrælavinnu. Fundist hefur haugur við bæinn og hlutir í honum frá tímum víkinga. „Eftir svarta dauða var bærinn hér lengi í eyði en árið 1610 var Mikkel Kjepso úthlutað svæðinu. Hér er gömul trébygging, svokallað eldhús, sem við höldum að hann hafi notað sem bústað fyrir sig en þar hafa sést merki á veggjunum eftir veggföst húsgögn. Eftir því sem árin liðu voru fleiri ábúendur hér á Kjepso en forfaðir minn, Per Persson frá Laupsa, keypti bæinn árið 1855,“ segir Per Ragnar og útskýrir búskap fyrri tíma á bænum: „Hér höfðu menn það alltaf hug- fast að skilja ætti við jörðina í betra Per Ragnar Kjepso var við vinnu við að endurbyggja steinhleðslu undir hlöðuvegg þegar blaðamann Bændablaðsins bar að garði. Myndir / ehg sjávarmáli og ekki með akveg að húsi sínu heldur þurfa að ganga rúmlega 600 þrep og um 50 metra leið í bratta áður en heim er komið. Undanfarna vetur hefur Anne dvalið á dvalarheimili fyrir aldraða í næsta bæ vegna sjónleysis en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.