Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
Matís ohf. er opinbert hlutafélag,
stofnað 1. janúar 2007 og fagnaði
því tíu ára afmæli nú í upphafi árs.
Með stofnun Matís runnu saman
rannsóknastofa Umhverfisstofnunar,
MATRA, Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins og líftæknifyrirtækið
Prokaria, og mynduðu eina sterka
heild þar sem rannsóknir á matvæl-
um og í líftækni fengu samastað.
Markmiðið var að auka verðmæta-
sköpun í íslenskri matvælafram-
leiðslu, stuðla að matvælaöryggi
og lýðheilsu.
Sveigjanleikinn heppilegur í
starfseminni
Sveinn Margeirsson hefur gegnt
starfi forstjóra frá 2010. Hann segir
að þetta rekstrarform hafi reynst vel.
„Það hefur gefið okkur vissan sveigj-
anleika varðandi uppbyggingu á fyr-
irtækinu, sem er viðeigandi þar sem
starfsumhverfi okkar er líka mjög
sveigjanlegt og miðar að nýsköpun.
Það er líka okkar hlutverk, meðal
annars, að búa til og nýta sveigjan-
leika fyrir okkar viðskiptavini hvort
sem það er í sjávarútvegi, landbún-
aði, matvælaframleiðslu eða líftækni.
Við störfum eftir skýrum reglum,
heilindi eru mikilvægasta gildi starf-
seminnar og hlutverk okkar í víðum
skilningi er að auka verðmæti lífauð-
linda. Í því samhengi er matvæla-
öryggið algjört lykilatriði, það er í
raun ómögulegt að búa til verðmæt
matvæli án þess að matvælaöryggi
sé alger undirstaða. Matvælaöryggi
og heilnæm matvæli, næringarör-
yggið, eru svo undirstaða bættrar
lýðheilsu, sem er mjög ofarlega á
baugi í þjóðfélaginu núna. Það er
alltaf að verða meiri og meiri áhersla
á forvarnarhluta af heilsu mannfólks,
enda ómögulegt að byggja heilbrigði
þjóðarinnar eingöngu á „viðgerð-
um“ á sjúkrahúsum eftir að heilsu
tekur að hraka. Við höfum skipt
um skipurit þegar við höfum viljað
herða áherslurnar á ákveðnum svið-
um og njótum þessa sveigjanleika
einmitt á slíkum tímum.
Við leggjum áherslu á að afrakstur
vinnu okkar hafi raunveruleg áhrif
inn í fyrirtæki og stjórnkerfið, til
dæmis í kringum stefnumótun á lýð-
heilsu og varðandi matvælaöryggi.
Kjarninn í fyrirtækinu er rannsókna-
starfið og nýsköpunarvinnan. Það
starf byggir svo alveg á innviðunum,
sem eru þá tækin og tólin, en líka
þjálfað starfsfólk og þeir verkferlar
sem unnið er eftir,“ segir Sveinn um
eðli starfsemi Matís.
Er sjálfur afsprengi Matís
Sveinn er matvælafræðingur og
iðnaðarverkfræðingur og var hluta
síns náms einmitt við störf hjá
Matís. Hann segist á vissan hátt vera
afsprengi starfsins sem þar er unnið.
„Ég er kannski ágætt dæmi um það
sem Matís getur skilað af sér, því
það eru ekki bara nýir verkferlar
eða verkefnið sem við erum að fást
við hverju sinni sem skipta máli.
Aukin þekking er mjög mikilvæg
og við höfum komið mjög að marg-
víslegu menntunarstarfi, til dæmis
matvælafræði, landbúnaðarháskól-
anum, verkfræði og viðskiptafræði.
Þá höfum við einmitt lagt áherslu á
þessa hagnýtu tengingu við matvæla-
fyrirtæki, frumkvöðla og mennta-
geirann.“
Mikill vöxtur á tíu árum
Að sögn Sveins hefur kannski
mesta breytingin frá stofnun falist
í því hversu mjög fyrirtækið hefur
vaxið. „Hvað veltu varðar hefur fyr-
irtækið nánast tvöfaldast í stærð. Sá
vöxtur hefur byggst aðallega á því að
sækja tekjur í samkeppnisumhverfi;
til dæmis mikið í samkeppnissjóði.
Ég get nefnt dæmi um verkefni
þar sem við höfum sótt fjármagn í
slíkan samkeppnissjóð, sem í þessu
tilviki væri Tækniþróunarsjóður
RANNÍS. Samstarf við frumkvöðla
leiddi af sér hugmynd um að búa til
lýsi án þess að hita hráefnið meira
en upp að ákveðnu marki. Við þró-
uðum þá hugmynd áfram, sóttum
fjármagn í samstarfi við frumkvöðl-
ana til Tækniþróunarsjóðs og í dag
er varan Dropi á markaði, sem er
afurð verkefnisins.
Það sem hefur svo breyst síð-
astliðin ár er að slík verkefni eru
orðin mun stærri en áður var. Þá er
gjarnan líka verið að horfa frekar til
erlendrar fjármögnunar heldur en
innlendrar.
Það sem er svo breytt núna – og
er kannski tímanna tákn að ýmsu
leyti – er að það er orðið mun meira
af sölu á rannsóknarþjónustu beint
til fyrirtækja. Það er snar þáttur af
tekjum okkar núna, en var mun
minni áður. Það er því orðið minna
en þrjátíu prósent af tekjum Matís
sem kemur beint vegna þjónustu-
samnings okkar við sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið.“
Stefnumót hönnuða og bænda
Sem dæmi um vel heppnað verkefni
á sviði landbúnaðar nefnir Sveinn
Stefnumót hönnuða og bænda.
„Það var einmitt unnið í samstarfi
Listaháskólans og bænda með
stuðningi frá Tækniþróunarsjóði.
Afraksturinn af því verða ýmsar
vörur og ákveðin stefna eða hreyf-
ing í þá átt að búa til annars konar
verðmæti úr sömu vörum og voru
til fyrir. Við höfum einnig unnið að
mörgum áhugaverðum verkefnum
með Framleiðnisjóði landbúnaðar-
ins. Til dæmis mætti nefna í því sam-
bandi verkefnið um Hvannarlambið,
með bændunum í Ytri-Fagradal á
Skarðsströnd, sem fólst í því að
kanna áhrifin á bragðgæði lamba-
kjöts að beita lömbunum á hvönn.“
Stærsti hlutinn í starfsemi Matís
er sjávarútvegstengdur, að sögn
Sveins. „Við höfum fengist mjög
mikið við verkefni tengdum ferskum
fiski. Líka tengdum ýmsum ferlum
sem fiskurinn fer í gegnum, eins og
kælingu og meðhöndlun. Allir þessir
ferlar hafa gjörbreyst á síðustu tíu
árum. Það hefur mikil vinna farið í
að búa til verðmæti úr aukaafurðun-
um, við höfum unnið að þróun á
kælibúnaði með tæknifyrirtækjum
og að umbúðaþróun svo ég nefni
dæmi. En við höfum einnig sinnt
frumkvöðlastarfi og smærri verk-
efnum í sambandi við vöruþróun. Ég
get nefnt vöruna Dropa sem dæmi,
en það er kaldhreinsuð þorskolía,
en hún var þróuð meðal annars með
beitingu líftækni. Hún hefur þá aðra
markaðsmöguleika en hefðbundin
fiskiolía.“
Talsverðir vaxtarmöguleikar
varðandi verðmætasköpun
Sveinn telur vaxtarmöguleikana í
landbúnaði vera mikla, varðandi
verðmætasköpun og frumkvöðla-
starf. „Hlutfallslega eru þeir að mínu
mati enn meiri en í sjávarútvegi til
dæmis, þar sem nýsköpun hefur skil-
að miklum árangri á síðastliðnum
árum. Ef við horfum á þær tækni-
breytingar sem eiga sér stað í heimin-
um í dag, nýtum þær og markaðstæki-
færin sem felast í auknum vilja fólks
til að tengjast við framleiðendur, þá
eru ótrúleg tækifæri fram undan.
Svo er líka mikilvægt í mínum huga
hvernig við virkjum drifkraftinn hjá
fólki til að vilja stunda nýsköpun í
landbúnaði. Þá ekki bara í sjálfri mat-
vælaframleiðslunni, heldur í þátttöku
í raunverulegri verðmætasköpun með
nýsköpun og þeirri tæknivinnu sem
slíku fylgir. Þá er ég að hugsa um svið
eins og matvæla- og snyrtivörufram-
leiðslu, en einnig á sviði hönnunar
og heilsu. Það eru möguleikar á svo
mörgum sviðum.
Það sem mér finnst svo mikil-
vægt í nálgun á því verkefni að auka
nýsköpun í landbúnaði er að hugsa
eins og bóndinn sjálfur gerir í sínum
búskap. Það þarf að heyja fyrir vet-
urinn. Það þarf að vanda til verka og
ekki fara fram úr sér, en samt ganga
hreint til verks án þess að vera of
varkár.“
Gildi vandaðra upplýsinga
„Ég sé fyrir mér að fyrirtækið þró-
ist í þá átt að verða enn einbeittara í
því að sjá fyrir endann á því hvaða
áhrif starfsemi okkar hefur á okkar
viðskiptavini; á bændur, sjómenn,
frumkvöðla og á nýsköpun í mat-
væla- og líftæknigeiranum – hvernig
við getum náð tilteknum markmið-
um. Líka held ég að við getum gegnt
mikilvægu hlutverki í því að aðstoða
við það verkefni að markaðssetja
Ísland og íslensk matvæli með vís-
indin að vopni. Notkun á vísinda-
legum niðurstöðum til að miðla til
neytenda, til dæmis, því við sjáum
að vandaðar upplýsingar skipta alltaf
meira og meira máli,“ segir Sveinn
að lokum um framtíð fyrirtækisins.
/smh
Matís fagnar tíu ára afmæli:
Hefur tvöfaldast að stærð
– Landbúnaður á heilmikið inni í ný- og verðmætasköpun
Sveinn Margeirsson hefur gegnt stöðu forstjóra Matís frá árinu 2010. Myndir / Matís
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, Erna Óladóttir, Natasa Desnica og Branka Borojevic á rannsóknarstofu.