Bændablaðið - 23.02.2017, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
Ofbeit í sjó veldur spjöllum á landi
LESENDABÁS
Við sláum því gjarnan föstu að
lífríki sjávar og lands séu tiltölu-
lega aðskilin. Fá dæmi eru þess að
sveiflur í stofnstærð sjávarlífveru
valdi beinum og mælanlegum
spjöllum á landi.
Hér verður fjallað um ferli
sem er undantekning á þessu.
Orsakasamhengi sem nýlega varð
ljóst, og kann að vera allvíðtækt við
strendur landsins. Miklar líkur eru
á því að landrof og aðrar breytingar
í landslagi megi beinlínis rekja til
offjölgunar í stofni ígulkersins
skollakopps á grunnslóð kringum
landið. Þetta er sú niðurstaða sem
greinarhöfundur hefur komist að,
og unnt er að styðja margvíslegum
rökum.
Strandhögg víða um land
Á síðustu áratugum hefur sjór víða
gengið hærra á land í brimi og stór-
straumsflæðum en hann áður gerði.
Rof hefur orðið í sjávarbökkum
og ævaforn mannvirki og minjar
orðið fyrir tjóni. Fornar verstöðvar
eru víða að hverfa í hafið, og með
þeim ómetanlegur hluti menningar-
sögunnar.
Annars staðar hefur brimið rutt
á land skeljasandi í meira mæli en
áður voru dæmi um, með tilheyrandi
sandfoki og landeyðingu.
Breytingar í náttúrufari
Kollsvíkur
Ég er einn þeirra sem hugleitt
hafa orsakir þessa, en óvíða eru
breytingarnar greinilegri en á
mínum heimaslóðum, Kollsvík í
Rauðasandshreppi, nú Vesturbyggð.
Kollsvík er ein Útvíkna, sem
eru vestast á skaganum milli
Patreksfjarðar og Breiðafjarðar,
hinar eru Breiðavík og Látravík. Í
þeim öllum eru miklar skeljasands-
fjörur, og sandfok hefur verið við-
varandi ógn um aldaraðir. Í öllum
víkunum hefur sjór á síðustu árum
valdið óvenju miklu rofi á sjávar-
bökkum og minjum sem á þeim
standa, en útræði var fyrrum á hin
gjöfulu fiskimið á grunnslóð.
Hér verður litið til breytinga sem
orðið hafa í náttúrufari í Kollsvík,
en líklega á það sama við víðar
um strendur landsins. Undir lok
nýliðinnar aldar fóru menn að taka
eftir því að eitthvað óvenjulegt var
að gerast, sem lýsti sér einkum í
eftirfarandi:
• Rof sjávarbakka upphófst sunn-
an til í víkinni, í áður óþekkt-
um mæli. Þar stóð hin forna og
mikla verstöð Láganúpsver um
margra alda skeið; líklega milli
1400 og 1700, og var hún þá ein
stærsta verstöðin á sunnanverð-
um Vestfjörðum. Þessi forna
verstöð er nú í verulegri hættu,
en á um 200 metra kafla hefur
brimið brotið bakkana. Í rofsár-
inu sjást gríðarmikil mannvist-
arlög: Hver steinhleðslan ofan
á annarri, þykk beinalög, gólf-
skánir og öskulög; allt er það
að hverfa í hafið. Minjastofnun
hefur fylgst með þróuninni og
skoðar hugsanleg úrræði í sam-
ráði við Vegagerðina.
• Brimskaflar gengu á land
nokkru sunnar og brutu skörð
í langan steinhlaðinn garð sem
liggur um 300 metra kafla ofan
sjávarbakkanna, ævagamall að
uppruna og áður óspilltur af
sjávarágangi. Ég hef unnið að
viðgerðum á þessu mannvirki
í samstarfi við Minjastofnun.
• Skeljasandur hlóðst upp við
ströndina í gríðarmiklu magni.
Sandfjörur hefur reyndar ávallt
verið í Kollsvík, en á síðasta
áratug 20. aldar jókst mjög þessi
landburður. Í kjölfarið varð
mikið sandfok sem valdið hefur
töluverðum gróðurskemmdum
í Láganúpslandi. Heimamenn
vinna nú að uppgræðslustörfum,
en stuðningur Landgræðslunnar
þyrfti að vera miklu öflugri.
• Lausaþari hvarf að mestu úr
fjörum sunnan til í víkinni, en
áður hafði sjórinn hlaðið þar
upp þykkum bunkum af þara
sem slitnaði upp frammi á vík-
inni í brimi. Engir þarabunkar
hafa sest í fjöruna á síðari ára-
tugum.
Orsaka leitað
Greinilegt var að þarna höfðu orðið
breytingar í gangi náttúrunnar. Ekki
nóg með að brimskaflar gengu
hærra og oftar á land en áður hafði
þekkst, heldur náði brimið að róta
upp skeljasandi, sem liggur í gríðar-
miklu magni á flágrynninu, og ryðja
honum á land upp.
Vangaveltur um orsakir beindust
einkum að hækkandi sjávarstöðu
vegna loftslagsbreytinga, sem
mikið er í umræðunni. Sú skýring
er þó alls ófullnægjandi, þó hún
kunnið að vera meðvirkur þáttur.
Sjávarborðshækkunin er mun
minni hérlendis en á heimsvísu
Það stafar annars vegar af landrisi
vegna bráðnunar jökla hérlendis og
á Grænlandi og hins vegar af minnk-
andi þyngdarsviði jarðar á þessum
slóðum. Hækkun síðustu þrjátíu ára
er vart meiri en fáeinir sentímetrar.
Skýringar hjá skollakoppnum
Ég set fram þá tilgátu að skýringa sé
að leita í mikilli fjölgun í stofnstærð
skollakopps og ofbeit hans á þara-
skógum, sem allajafna draga úr afli
brimöldunnar.
Á síðustu áratugum nýliðinnar
aldar stóð grásleppuútgerð með
blóma í Rauðasandshreppi. Fjöldi
smábáta reri þá frá Gjögrum og
víðar, og netum var þéttraðað á hina
miklu þaragarða við ströndina; allt
frá Gjögrum útmeð sunnanverðum
Patreksfirði, á Kollsvík og Breiðavík.
Ég var í þessum hópi grásleppukarla.
Þegar kom framyfir 1980 varð hinn
hvimleiði skollakoppur aukin plága
í netum, en jafnframt hvarf þari og
veiði af nokkrum svæðum. Sömu
fréttir bárust víðar að: Gríðarleg
fjölgun var í stofni skollakopps við
landið. Á grunnsævi Kollsvíkur
er allmikill þaragarður; einkum
í Bótinni norðantil, en sunnar eru
sandflákar. Ég var stundum með net
á Bótinni, en uppúr 1980 var greini-
legt að skollakoppur var að eyða
þaraskógunum og veiði var þá hætt.
Ég hef á sl. 8 árum fengist við
tækniþróun til nýtingar á orku sjáv-
ar; einkum sjávarfalla, á vegum
Valorku ehf. Það verkefni gengur
framar vonum, en í þessari vinnu
beinist athyglin óhjákvæmilega að
afli í haföldu og áhrifum botnlags
á það. Þær hugleiðingar vöktu m.a.
spurningar um áhrif þaragróðurs á afl
grunnbáru. Rannsóknir fræðimanna
virðast staðfesta þau áhrif, þó enginn
hafi áður skoðað heildarmyndina
útfrá þessu sjónarhorni, eftir því sem
næst verður komist.
Um skollakopp og átvenjur hans
Skollakoppur ,Strongylocentrotus
droebachiensis, er algengust þeirra
12 ígulkerategunda sem finnast
hér við land. Hann er grænbrúnn
og verður allt að 7cm í þvermál.
Að sögn fræðimanna er þekkt að
gríðarleg fjölgun verði um tíma í
stofnstærð skollakopps, með til-
heyrandi eyðileggingu þaraskóg-
anna sem hann lifir einkum á.
Áhrif beitar skollakopps á þarabelti
hafa töluvert verið rannsökuð. Má
þar t.d. benda á rannsóknir Karls
Gunnarssonar, Sophie Hall-Aspland
og Öivind Kaasa sem gerðar voru í
Garðsvík í Eyjafirði, og lýst í ritgerð
árið 1996 „Fæðuval og fæðunám
skollakopps“. Niðurstaða þeirra er
að átvenjur skollakopps hérlendis
líkist því sem þekkist við strend-
ur Kanada, þ.e. að hann éti þara-
skógana utan frá jaðrinum, og að
ein uppáhaldsfæða hans sé stórþari,
Laminaria hyperborea. Þéttleikann
töldu þau vera um 10 dýr á fermetra,
eða til jafnaðar 400-500 á metra
strandlengju. Ígulker eru einungis á
3-5 m breiðu belti í jaðri þaraskógar-
ins, og hraði eyðingarinnar reyndist
vera 2,5 til 3 m á mánuði. Að jafn-
aði áætla þessir vísindamenn að
frá hverjum kílómetra strandlengju
hverfi 270-320 tonn af þörungum
árlega. Þessar tölur miðast auðvitað
við rannsóknarstaðinn, en ætla má
að þær eigi við víðar. Þaraskógur í
Kollsvík er samfelldur þar sem hann
er þéttastur norðan til, en á blettum
sunnar. Má ætla að skollakoppur-
inn hafi fljótlega klárað blettina og
gengið allnærri meginskóginum á
10-20 ára tímabili. Kemur það heim
við að ofbeitin hafi hafist uppúr
1980 og að afbrigðilegs sjávarrofs
farið að gæta fyrir aldamót.
Áhrif þaraskóga á afl brimöldu á
grunnsævi
Með eyðingu þaraskógarins
varð hafsbotninn ber eyðimörk.
Rótarbrim kemur hreyfingu á
sandinn sem legið hefur óhreyfður
í lænum á botninum í skjóli af þaran-
um. Öldurnar þurfa ekki lengur að
róta þaranum til, með afltapi sem því
fylgir, heldur æða af fullu afli upp-
yfir grynningarnar upp í fjöru; flytj-
andi gríðarlegt magn af skeljasandi
í fjöruna. Miklir brimhnútar veltast
upp á land; rífa niður sjávarbakka
ofan hæstu flæðarmarka, og geys-
ast uppá þá sunnar. Þarabunkar
hverfa úr fjörum, þar sem enginn
þari slitnar lengur upp í brimi; hann
er horfinn.
Ýmsar rannsóknir liggja fyrir um
áhrif þaraskóga á grunnbáru: Árið
1996 birti norski haffræðingurinn
Martin Mork ritgerð: „The effect of
kelp in wave damping“. Rannsóknir
hans sýndu að þar sem brimalda fór
yfir 258m breitt þarabelti minnkaði
afl hennar um 70-85%. Í sömu átt
benda niðurstöður rannsókna Kevin
Bradley og Chris Houser; „Relative
velocity of seagrass blades:
Implications for wave attenuation
in low-energy environment“, frá
2009. Ölduhæð brimöldu sem nær
niður í þaraskóginn eykst í byrjun,
en minnkar síðan verulega. Áhrifin
eru þó hlutfallslega minni með auk-
inni ölduhæð, iðu og sveiflutíðni.
Ástæða orkutapsins er að aldan þarf
að sveifla þaraskóginum fram og
til baka, með öllu viðnáminu sem
því fylgir.
Eru sömu öfl víðar að verki?
Líklegt að í framangreindu ferli liggi
meginskýringin á umræddu rofi, þó
Kollsvík hafi e.t.v. sérstöðu vegna
skeljasandsins. Líklegt er að sama
eigi við annarsstaðar á landinu.
Offjölgun skollakopps virðist hafa
orðið á svipuðum tíma á öllum
búsvæðum hans, með tilheyrandi
hnignun þaraskóga. Á síðustu ára-
tugum eru fornar verstöðvar víða
að hverfa í hafið vegna óvenjulegs
ágangs sjávar. Eyþór Eðvarðsson
hefur líklega manna mest skoðað
þessa heildarmynd og vakið athygli
á því tjóni sem í húfi er fyrir menn-
ingararf þjóðarinnar. Minjastofnun
hefur nú ráðið fornleifafræðing til
að skoða þessa staði sérstaklega,
og hef ég stungið þessari tilgátu að
honum. Ég hef einnig borið hana
undir sérfræðinga á sviði þara, ígul-
kera og landgræðslu, sem telja hana
athyglisverða.
Rannsókna er þörf
Þessum skrifum er ætlað að vekja
athygli á málefninu og hvetja til
frekari rannsókna. Margt óþarfara
er styrkt af almannafé. Ljóst er að
af þessari eyðingu hlýst gríðarmik-
ið tjón: Ekki aðeins fjártjón vegna
fyrirhleðslna, uppgræðslu og minja-
verndar; heldur er alvarlegri hinn
óbætanlegi skaði sem verður við það
að fornar verstöðvar hverfa í hafið;
ein meginheimildin um atvinnusögu
okkar fyrr á tímum.
Minni ég í lokin á hið fornkveðna;
til að fást við vandamál þarf að vita
orsök þess.
Valdimar Össurarson
Kollsvíkurver. Mynd / Valdimar Össurarson
Valdimar Össurarson.
Sandfok úr fjöru. Mynd / Valdimar Össurarson
Rof minja. Mynd / Eyþór Eðvarðsson
Rof á grjótgarði. Mynd / VÖ