Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
Splash!
HANNYRÐAHORNIÐ garn@garn.is
Prjónaðir ökklasokkar úr DROPS
Fabel með gatamynstri. Stærð 35
- 43.
Stærð:
35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: ca 7 - 8 - 9 cm
Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio,
50-50-100 g nr 105, turkís
fæst hjá Handverkskúnst
SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til
að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.
HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-6 l eru eftir,
takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir,
snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-6 l eru eftir,
takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir,
snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-5 l eru eftir,
takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir,
snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-5 l eru eftir,
takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir,
snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um
1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 13-13-15 l eru
eftir á prjóni.
SOKKUR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 50-56-60 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel.
Prjónið 1 umf slétt, haldið áfram með stroff (= 1 l sl,
1 l br) í 2-2-3 cm, prjónið síðan 1 umf slétt þar sem l
fjöldinn er jafnaður til 54-54-58 l. Haldið síðan eftir
fyrstu 21-21-25 l á prjóni fyrir hæl og hinar 33 l eru
settar á 1 band (= rist).
Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 5-5½-6
cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Setjið 1 prjónamerki mitt ofan á hæl – stykkið er nú
mælt héðan! Fellið nú af fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA!
Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-15 l
hvoru megin við hæl og 33 l af bandi eru settar
til baka á prjóninn = 72-74-78 l. Setjið 1 prjóna-
merki hvoru megin við 33 l mitt ofan á fæti.
Haldið áfram með sléttprjón undir il, yfir 33 l ofan
á rist er prjónað eftir A.1. JAFNFRAMT er l fækkað
á hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan
33 l mitt ofan á rist snúnar slétt saman (þ.e.a.s.
prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og
prjónið 2 fyrstu l á eftir miðju 33 l ofan á rist
slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri
umf alls 12-12-12 sinnum (13-13-13 sinnum
alls) = 46-48-52 l. Prjónið þar til stykkið mælist
18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-5-5
cm eftir). Setjið 1 prjónamerki í 1 l á hvorri hlið
þannig að það verða 23-24-26 l bæði ofan á rist
og undir il. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar
l JAFNFRAMT er fellt af fyrir tá hvoru megin við
bæði prjónamerkin þannig – byrjið 2 l á undan l
með prjónamerki: 2 l slétt saman, 1 l sl (prjónamerki
er staðsett í þessari l), 2 l snúnar slétt saman. Fellið
svona af á hvorri hlið í annarri hverri umf alls 4-7-6
sinnum og síðan í hverri umf 6-4-6 sinnum = 8-6-6
l eftir á prjóni. Klippið frá og dragið bandið í gegnum
þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið
annan sokk alveg eins.
Bestu kveðjur,
Elín, Handverkskúnst
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
6 1 9 3 8
5 2
8 1 7 4 9
1 8 2 7 3
9 4
8 5 3 7 1
1 2 3 5 6
9 7
7 6 4 5 3
Þyngst
5 3 2 7
1 5 4 6
9 5
6 2 5 9 8
4 3
2 4 3 8 6
1 7
3 1 6 8
9 8 5 2
5 7 4
4
8 6 7
6 9 1
3 8 7 4
1 4 2
3 9 5
3
5 2 8
9 1 2
7 2
1 3 7
3 5 8
7 8 2 3
7 4 5
8 6 5
8 2
9 6 5
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Elskar að fara í sveitina
Elmar Rafn er 7 ára og er í
Hörðuvallaskóla. Hann æfir fót-
bolta og er á hjólabrettanámskeiði.
Hann er mjög hrifinn af dýrum og
elskar að fara í sveitina til ömmu
sinnar og einn daginn langar hann
að eignast páfagauk.
Nafn: Elmar Rafn Steinarsson.
Aldur: 7 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Kópavogur.
Skóli: Hörðuvallaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skól-
anum? Í leiktíma og smiðjum (smíði,
heimilisfræði, textíll, myndmennt).
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Páfagaukur.
Uppáhaldsmatur: Hakk og spaghettí.
Uppáhaldshljómsveit: Rammstein.
Uppáhaldskvikmynd: Star Wars,
Rogue One.
Fyrsta minning þín? Þegar ég fór til
Danmerkur með mömmu, pabba og
Emilíu, tvíburasystur minni, að heim-
sækja frænku mína og frænda og við
fórum í tívolí öll saman.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóð-
færi? Já, ég æfi fótbolta með HK og er
á hjólabrettanámskeiði.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég ætla að verða lögga.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég drakk einu sinni úr
drullupolli.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt
í sumar? Já, ég flutti í nýtt hús og
svo fór ég líka í rosa skemmtilegar
sumarbústaðaferðir.
Næst » Elmar skorar á Svein Atla, frænda sinn,
að svara spurningunum.
Vantar þig íslenskan lopa?
Álafosslopi - Plötulopi - Léttlopi - Einband - Bulkylopi - Kambgarn
Heimasíðan gefjun.is
býður upp á lopa frá
Ístex á lægsta
fáanlega verði !
Sendum um allt land!