Bændablaðið - 22.06.2017, Page 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Arfleifð Árneshrepps – næstu
skref og framtíðin
– Málþing í Félagsheimilinu í Trékyllisvík
Helgina 24. til 25. júní næstkomandi
verður efnt til málþings um framtíð
Árneshrepps í tilefni af áformum
um Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði.
Málþingið stendur frá kl. 13 - 18
laugardaginn 24. júní og frá kl.
12.30 - 16 sunnudaginn 25. júní, í
félagsheimilinu í Trékyllisvík.
Markmið málþingsins er að
skapa rými til opinnar og faglegrar
umræðu um virkjunaráform
á svæðinu. Skipulagshópur
málþingsins, sem samanstendur af
íbúum og velunnurum Árneshrepps,
telur að þær forsendur sem
lágu til grundvallar samþykktar
Hvalárvirkjunar í aðalskipulagi
Árneshrepps árið 2014 kalli á
endurskoðun þar sem margt hafi
breyst. Því sé nauðsynlegt að
efna til gagngerrar og víðsýnnar
umræðu og skoða betur þá kosti eða
galla sem virkjun hefur í för með
sér fyrir Árneshrepp, samfélagið
og framtíðarmöguleika svæðisins.
Takmörkuð opinber og
lýðræðisleg umræða hefur
farið fram um málið og telur
skipulagshópurinn nauðsynlegt
að slík umræða fari fram áður en
endanlegar ákvarðanir verða teknar
í sveitarstjórn Árneshrepps.
Nú liggur fyrir beiðni
orkufyrirtækisins Vesturverks
til sveitastjórnar um samþykkt
rannsóknarleyfis. Slíkar rannsóknir
hafa talsvert jarðrask í för með sér
og er því nauðsynlegt að víðtæk
umræða með aðkomu sem flestra
aðila fari fram áður en slíkar
ákvarðanir verða teknar.
Það er von skipulagshópsins að
velunnarar Árneshrepps og aðrir
sem láta sig framtíð svæðisins
varða sjái sér fært að sækja
málþingið.
Vesturverki, Fjórðungssambandi
Vestfjarða, Orkubúi Vestfjarða,
Byggðastofnun, hreppsnefndar-
mönnum í Árneshreppi,
Vegagerðinni, Umhverfisstofnun,
Landsneti, Skipulagsstofnun og
Landvernd hefur verið boðin þátttaka.
Þá geta einstaklingar óskað eftir að
skrá sig á mælendaskrá á netfangið:
arneshreppurogframtidin@gmail.
com. Meðal ræðumanna má nefna
fjalldalabónda, bókmenntafræðing
og rithöfund, æðarbónda, þjóð-
menningar bónda, íslenskufræðing
og þjóðfræðinga. Rætt verður um
hugmyndir um menningarþjóðgarð,
Jón lærði mætir, guð hins smáa fær
pláss, og rætt verður um náttúrusýn,
tilfinningar, álagabletti, galdra og
annað sem tengist menningararfleifð
og náttúrugæðum staðarins. Þá verða
umræður um vægi þingsályktunar
frá 2003 um verndun búsetu- og
menningarlandslags.
Landsmót S.Í.H.U. verður haldið
á Ísafirði dagana 29. júní til 2.
júlí nk. Það er Harmonikufélag
Vestfjarða sem sér um mótið
að þessu sinni í samvinnu við
S.Í.H.U. en landsmót hefur ekki
verið haldið á Ísafirði síðan árið
2002.
Karitas Pálsdóttir, formaður
Harmonikufélags Vestfjarða, segir
að undirbúningur hafi gengið vel
og vonast sé til að mótið heppnist
eins vel og árið 2002, en það mót
er mörgum í fersku minni.
Landsmótið fer að mestu
fram í íþróttahúsinu á Torfnesi
þar sem spilarar hinna ýmsu
harmonikufélaga munu flytja
dagskrár sínar á föstudag og
laugardag.
Þar verða einnig aðaltónleikar
gesta mótsins, en þeir eru að þessu
sinni íslenskir ungliðar, sem stund-
að hafa nám í Danmörku undanfar-
ið ár. Þeir eru: Helga Kristbjörg
Guðmundsdóttir, Jón Þorsteinn
Reynisson og Jónas Ásgeir
Ásgeirsson og kalla þau sig íTríó
Á fimmtudag og föstudag
verða dansleikir og uppákomur í
þremur samkomuhúsum á Ísafirði,
Edinborgarhúsinu, Krúsinni og
Húsinu, þar sem harmonikan verð-
ur að sjálfsögðu í aðalhlutverki. Á
þessum dansleikjum munu hljóm-
sveitir aðildarfélaga S.Í.H.U. láta
ljós sitt skína og ókeypis verður á
þessa viðburði sem verða á vegum
mótshaldara.
Harmonikufélag Vestfjarða sendi
nýlega frá sér bréf þar sem gerð
var grein fyrir gistimöguleikum á
svæðinu, en þar fyrir utan verður
margvísleg aðstaða fyrir húsbíla,
hjólhýsi, fellihýsi og tjöld víðs
vegar í kaupstaðnum.
Í tengslum við landsmótið verð-
ur opnuð sýning í Safnahúsinu
á Ísafirði þar sem sýnt verður
úrval harmonika úr safni Ásgeirs
Sigurðssonar, en hann hefur safn-
að á þriðja hundrað harmonikum
víðs vegar að af landinu og einnig
erlendis frá.
Ísafjarðarbær, sem sam-
anstendur nú af hinum gamla
Ísafirði og þorpunum fyrir vestan,
Þingeyri, Flateyri og Suðureyri
og Hornstrandafriðlandinu norð-
an Ísafjarðardjúps, hefur upp á
margt að bjóða. Bærinn er rótgró-
inn menningarbær sem tekur vel á
móti gestum sínum, hvort heldur
íslenskum sem erlendum og til
marks um aðdráttarafl bæjarins má
benda á, að í sumar munu á annað
hundrað skemmtiferðaskip heim-
sækja Ísafjörð. Aðgangseyrir fyrir
alla tónleika mótsins og hátíðar-
dansleik á laugardagskvöld er kr.
10.000, en hægt verður að kaupa
miða á einstaka tónleika.
FRÉTTIR
Harmonikuunnendur halda
landsmót á Ísafirði
– Stendur yfir frá 29. júní til 2. júlí 2017
Bifreið Mjólkurfélags Reykjavíkur, sem notuð var til þess að dreifa mjólkurvörum í verslanir í Reykjavík á fyrri hluta
síðustu aldar.
Lífland fagnar 100 ára afmæli
Á þessu ári fagnar Lífland 100 ára
afmæli sínu en félagið tók til starfa
árið 1917 og hét þá Mjólkurfélag
Reykjavíkur. Félagið var stofnað
af bændum í Reykjavík og
nærsveitum til að annast vinnslu
og dreifingu mjólkur í Reykjavík.
Jafnframt því hóf félagið að
útvega bændum rekstrarvörur
til búskapar.
Félagið byggði mjólkurstöð,
sem upphaflega var til húsa
við Lindargötu í Reykjavík. Í
kjölfar lagasetningar um vinnslu
og dreifingu mjólkur árið 1935,
varð Mjólkursamsalan einráð um
dreifingu og vinnslu mjólkur á
höfuðborgarsvæðinu.
Mjólkurfélag Reykjavíkur jók þá
smám saman viðskipti með hvers
konar rekstrarvörur fyrir bændur, svo
sem kjarnfóður, sem félagið hóf síðar
framleiðslu á.
Á starfstíma sínum hefur
Mjólkurfélagið einnig stundað ýmsa
aðra framleiðslu svo sem völsun á
þakjárni, framleiðslu á gaddavír og
vinkilstaurum svo eitthvað sé nefnt.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
fékk nafnið Lífland 2005
Fyrirtækið hefur tekið breytingum í
áranna rás en nafni þess var breytt í
Lífland árið 2005. Verslanir Líflands
eru nú orðnar fimm talsins og eru
staðsettar í Reykjavík, Borgarnesi,
Blönduósi, Akureyri og á Hvolsvelli.
Í verslunum Líflands er mikið
vöruúrval tengt landbúnaði,
hestamennsku, ræktun og
gæludýrum og lögð áhersla á að
þjónusta viðskiptavini fyrirtækisins
á sem bestan hátt.
Rekur tvær verksmiðjur
Lífland rekur tvær verksmiðjur. Á
Grundartanga er fóðurverksmiðja
fyrirtækisins, þar sem framleitt
er kjarnfóður fyrir landbúnað. Í
Korngörðum í Reykjavík er eina
hveitimylla landsins, þar sem Lífland
framleiðir Kornax hveiti.
Í tilefni af þessum tímamótum
ætlar Lífland að vera með afmæl-
ishátíð í verslunum sínum úti um
allt land laugardaginn 24. júní á milli
kl. 12 og 15. Boðið verður upp á
grillaðar pylsur og afmælisköku
ásamt skemmtun fyrir börnin. Allir
eru velkomnir á þennan fögnuð og
óska forsvarsmenn fyrirtækisins eftir
að sjá sem flesta.
Rafbílahleðslustöðvar
í allar nýbyggingar
– Unnið að breytingum á byggingarreglugerð
Ef af ætlunum umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins verður
mun það vera skylda að gera
ráð fyrir tengibúnaði fyrir
hleðslu rafbíla í nýbyggingum
og við endurbyggingu húsnæðis.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
vinnur nú að því að bæta
við slíku bindandi ákvæði í
byggingarreglugerð.
„Mikil aukning hefur orðið
í framboði og sölu rafbíla að
undanförnu, en ónógir innviðir
geta hamlað þessari þróun. Byggja
þarf upp innviði fyrir rafbíla
þannig að hægt sé að tryggja
aðgengi sem flestra landsmanna að
loftslagsvænum samgöngumáta,“
segir í fréttatilkynningu frá
umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
„Í byggingarreglugerð er ekki
fjallað um hleðslu rafbíla en
mikilvægt er að þar séu skilgreind
markmið og grunnkröfur um slíka
hleðslu. Almennt er þetta ekki
vandamál við sérbýli en fjölbýlishús
þarf hins vegar að hanna með
væntanlega aflþörf í huga. Við eldri
fjölbýlishús þarf í mörgum tilvikum
að gæta að endurbótum til að gera
hleðslu rafbíla mögulega. Þá er ljóst
að hleðsla rafbíla við vinnustaði
getur orðið lykilatriði í að tryggja
almenna eign rafbíla.
Mikilvægt er að gera ráð fyrir
þessari þróun við hönnun mannvirkja.
Með breytingunni verður mun
einfaldara fyrir almenning að setja
upp slíkan búnað því við hönnun
bygginganna er búið að gera ráð
fyrir honum.
Með þessari breytingu verður
auðvelduð sú þróun varðandi
orkuskipti í samgöngum sem
ríkisstjórnin leggur áherslu á að verði
á næstu árum.“
Drög að reglugerðarbreytingu
verða til umsagnar á heimasíðu
ráðuneytisins á næstunni. /ghp