Bændablaðið - 22.06.2017, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Bólusetning í eitla gefur von um lausn á markaðsvanda:
Þróar ónæmismeðferð gegn sumarexemi
HROSS&HESTAMENNSKA
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
„Um 1.300–1.400 hross eru árlega
flutt út en ef sumarexem væri
ekki vandamál má leiða að því
líkur að þessi tala ætti að vera
nær 2.000 hross. Það er nefnilega
þannig að tíðni sumarexems hjá
íslenskum hestum, sem fæddir
eru t.d. í Evrópu og alast upp með
smámýinu, flugunni sem veldur
sumarexeminu, er í kringum 5%.
Þetta gerir það að verkum að fólk
telur öruggara út af sumarexem-
inu að kaupa íslenska hesta sem
fæddir eru erlendis en þá sem
fæddir eru hérna heima,“ segir
dr. Sigríður Jónsdóttir, sem lauk
doktorsnámi í líf- og læknavís-
indum við Læknadeild Háskóla
Íslands föstudaginn 26. maí sl.
Doktorsverkefnið hennar miðaði
að því að þróa ónæmismeðferð
gegn sumarexemi í hestum.
Sumarexem er ofnæmi gegn biti
smámýs og lýsir sér sem húðútbrot
og kláði. Íslenskir hestar sem eru
fluttir út á svæði þar sem smámý er
í miklum mæli fá sumarexem í yfir
50% tilfella ef þeir eru ekki varðir
fyrir flugunni, til dæmis með yfir-
breiðslum. Heilt yfir er tíðni sum-
arexems 26–34% hjá útfluttum
íslenskum hestum.
Þekking sem leggur grunn að
meðferðum
Verkefni Sigríðar var hluti af stærri
rannsókn sem hefur staðið yfir frá
árinu 2000. Þetta er samstarfsverk-
efni milli Tilraunastöðvar Háskóla
Íslands í meinafræði að Keldum og
háskólans í Bern í Sviss.
„Í upphafi var áherslan á sjúk-
dóminn sjálfan þ.e., 1) hvaða
ofnæmisvakar í smámýinu valda
sumarexemi og 2) hver er ferill
sjúkdómsins? Ofnæmisvakarnir
eru prótein úr munnvatnskirtlum
flugunnar og nú hafa sextán ofnæm-
isvakar verið skilgreindir og fram-
leiddir. Við vitum í dag að sumarex-
em er ofnæmi gegn þessum vökum,
hesturinn framleiðir svokölluð IgE
mótefni gegn ofnæmisvökunum sem
leiðir til þess að hesturinn fær útbrot
með miklum kláða þegar hann er
bitinn, sem geta orðið blæðandi sár,“
segir Sigríður.
„Grundvöllurinn fyrir því að þróa
meðferð gegn sumarexemi var að
skilja sjúkdóminn betur. Með því að
svara þessum tveimur spurningum
sem ég minntist á hérna á undan var
lagður grunnurinn að því að hægt
væri að byrja þróun á meðferðum
til að fyrirbyggja og/eða meðhöndla
sumarexem,“ segir Sigríður.
Niðurstöður rannsókna Sigríðar
benda á tvö úrræði gegn sumarex-
emi. Annars vegar fyrirbyggjandi
meðferð með bólusetningu í eitla
og hins vegar meðhöndlun um munn
með byggi.
Meðhöndlun um munn með
byggi í prófun vestanhafs
„Við þróun á meðhöndlun sem
gæti læknað hesta af sumarexemi
fórum við ekki hefðbundna leið.
Við höfum verið í samvinnu við
ORF Líftækni sem framleiðir
prótein í byggi, nánar tiltekið í
fræi byggsins. ORF Líftækni hefur
framleitt bygg með ofnæmisvaka
í fræinu. Fræin voru svo mulin og
leyst upp í saltvökva og hestunum
gefið þessi byggblanda um munn.
Til að meðhöndla hesta um munn
hönnuðum við mél sem hægt var
að setja byggblönduna inn í. Með
meðhöndlun um munn með byggi
fengust vænlegar niðurstöður,“ segir
Sigríður en nú þegar er farið að prófa
þessa meðhöndlun á íslenskum
hestum með sumarexem sem eru
í eigu Cornell-háskóla í Íþöku í
Bandaríkjunum.
Fyrirbyggjandi meðferð
„Við þróun á fyrirbyggjandi
meðferð notuðum við ofnæmisvaka
og var þeim sprautað í eitla
ásamt ónæmisglæðum þrisvar
sinnum yfir 8 vikna tímabil. En
ónæmisglæðar eru efni sem stýra
og efla ónæmissvar. Við vildum
reyna að stýra ónæmissvarinu frá
ofnæmi þannig að þegar hestur er
bitinn myndi hann ekki framleiða
IgE mótefnin og þar af leiðandi
ekki fá einkenni sumarexems.
Vænlegar niðurstöður fengust
þegar hestarnir voru sprautaðir í
eitla með ofnæmisvökum í blöndu
af ónæmisglæðum,“ segir Sigríður.
Áskorunartilraun framundan
Næstu skref í þessum rannsóknum
felast í prófunum á fyrirbyggjandi
bólusetningu á hrossum en sú tilraun
fer í gang árið 2019 ef fjármagn fæst
til rannsóknarinnar.
„Í áskorunartilrauninni yrðu
um tuttugu hestar bólusettir hérna
heima og fluttir út ásamt tuttugu
óbólusettum hestum. Þessir fjörutíu
hestar þyrftu helst að vera á sama
svæði svo samanburðurinn væri
raunhæfur. Síðan þarf að fylgja þeim
eftir í þrjú ár til að geta sagt til um
árangur bólusetningarinnar, það er að
segja hvort hestarnir séu varðir. Við
erum því komin á mjög spennandi
stað í þessum rannsóknum,“ segir
Sigríður, sem mun færa sig um set
og flytja til Sviss í lok mánaðarins og
halda áfram að rannsaka sumarexem
við háskólann í Bern.
Doktorsverkefni Sigríðar miðaði að því að þróa ónæmismeðferð gegn sumarexemi í hestum. Niðurstöður rannsókna
hennar benda á tvö úrræði gegn sumarexemi. Annars vegar fyrirbyggjandi meðferð með bólusetningu í eitla og
hins vegar meðhöndlun um munn með byggi.
„Við þróun á fyrirbyggjandi meðferð notuðum við ofnæmisvaka og var þeim
Sumarexem er ofnæmi gegn biti smámýs og lýsir sér sem húðútbrot og
Sindri í Vík í Mýrdal:
Líf og fjör
Það er líf og fjör í Vík í Mýrdal
þessa dagana þegar reiðskóli
Hestamannafélagsins Sindra er
starfræktur.
Skólinn er starfræktur í júní
hvert ár í vikutíma fyrir börn frá 6
ára og upp úr. Einnig er boðið upp á
fullorðinshóp á kvöldin og er þetta
mjög vel sótt. Í ár eru milli 30 og
40 krakkar og um 10 fullorðnir sem
sækja reiðskólann.
„Hestar eru fengnir að láni hjá
félagsmönnum Sindra og hestaleig-
um af svæðinu, sama á við um reið-
tygi. Að þessu sinni eru leiðbein-
endurnir 3 hressar stelpur sem sóttu
reiðskólann á sínum yngri árum og
eru núna komnar í leiðtogahlutverk-
ið. Það eru þær Þuríður Inga, Ólöf
Sigurlína og Sigríður Ingibjörg,“
segir Petra Kristín Kristinsdóttir
hjá Sindra.
Reiðskólanum lauk 17. júní
með glæsilegri hestasýningu
þegar krakkarnir léku listir sínar
á hestunum fyrir foreldra og
forráðamenn. /MHH
Mjög góð þátttaka var í reiðskól-
anum í Vík í Mýrdal.
Mynd / Petra Kristín Kristinsdóttir
Vanskil í skýrsluhaldi:
30.000 hrossa
mismunur
Samkvæmt opinberum hagtölum
Búnaðarstofu Matvælastofnunar
teljast hross landsmanna 67.186
talsins skv. haustskýrslum
búfjáreigenda haustið 2016.
Samkvæmt WorldFeng, sem er
upprunaættbók íslenska hestsins
og hjarðbók fyrir hross, eru skráð
lifandi hross í landinu hins vegar
96.365 talsins.
Allir eigendur búfjár skulu
uppfæra upplýsingar í hjarðbók
árlega skv. reglugerð um merkingar
búfjár og sömuleiðis þurfa þeir að
skila inn haustskýrslu árlega. Þessi
mismunur á hrossafjölda, 29.179
hross, skapar þess vegna vandamál
við hagtölusöfnun til að finna út
sannanlegan fjölda hrossa í landinu.
Ástæða mismunarins liggur að
öllum líkindum í vanskráningu
hrossaeigenda annars vegar í
haustskýrslu og vanskráningu á
afdrifum hrossa í WorldFeng hins
vegar.
Samkvæmt hag tö lum
Matvælastofnunar í Bústofni eru t.d.
skráð 700 hross í Reykjavík og 466
hross í Kópavogi. Skýringin getur
legið í því að aðeins um 44% af
búfjáreigendum á suðvesturhorninu
skiluðu inn haustskýrslu í Bústofni.
Samkvæmt skráningum
WorldFengs eru hestaeigendur
á Íslandi rúmlega 4.000 talsins.
Aðeins tæp 400 þeirra hafa
skilað skýrsluhaldi í hrossarækt í
WorldFeng. /ghp