Bændablaðið - 22.06.2017, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Inkakorn (Chenopodium
quinoa Willd.), eða kínóa,
er planta af skrauthalaætt
(Amaranthaceae). Hún á
uppruna sinn í Andesfjöllum
Suður-Ameríku þar sem
hún hefur gegnt mikilvægu
hlutverki sem matjurt í um
6000 ár. Inkakorn er ræktað
víða um heim við fjölbreytileg
skilyrði, allt frá fjallgörðum
til sjávarmáls, og býr að
gríðarlegum genafjölbreytileika.
Uppskera getur numið allt að 4
tonnum á hektara við kjöraðstæður.
Afurðir plöntunnar eru helst tvær;
fræið og laufblöðin. Laufblöðin eru
æt og því nýtileg sem fóður og sem
salat. Fræið er einnig nýtt bæði til
manneldis og sem skepnufóður.
Próteinmagn þess er hátt, um 14%,
og samsetningin heppileg með tilliti
til lífsnauðsynlegra amínósýra. Þar
við bætist að fræ inkakorns er laust
við glúten. Sá eiginleiki er ekki
síst ástæða mikillar eftirspurnar til
inkakorns í hinum vestræna heimi
á undanförnum árum. Framleiðsla
hennar hefur því aukist til muna
víða um heim.
Með hliðsjón af fjölbreyttum
eiginleikum og aðlögunarhæfni
p l ö n t u n n a r t i l n e f n d i
Alþjóðamatvælastofnunin (FAO)
Inkakorn sem eina af mikilvægustu
matjurtum heims til að stuðla að
fæðuöryggi á næstu öldum.
Fyrstu heimildir frá 1958
Fyrstu heimildir um ræktun
Inkakorns á Íslandi eru frá 1959,
en í ársriti Garðyrkjufélags
Íslands segir Einar I. Siggeirsson
frá ræktun Ólafs Þorgrímssonar
hæstarréttarlögmanns. Árið
1958 sáði Ólafur fræjum fimm
afbrigða plöntunnar sem öll voru
ættuð úr Andesfjöllunum, en
þau hafði hann fengið send frá
landbúnaðarráðuneytinu í Perú.
„Fræinu var sáð hér 25. maí og
spíraði fljótt og vel. Kom það upp
6–10 dögum eftir sáningu. Það
óx vel og varð 80–110 cm á hæð,
þvermál stönglanna 2–12 mm, sem
fór nokkuð eftir afbrigðum. Blöðin
voru stór, þétt og safarík. Kornið
blómstraði 26. júlí til 5. ágúst, en
náði ekki alveg fullum þroska um
haustið,“ segir í Garðyrkjuritinu.
Starfsmenn Bændaskólans á
Hvanneyri stóðu að prófunum á
ræktun Inkakorns á Íslandi árið
1993. Þremur afbrigðum var sáð 4.
júní en plöntur komu upp 18. júní.
Nokkrar plöntur voru aldar upp í
gróðurhúsi og var þeim plantað
út 28. júní. Segir í tilrauna skýrslu
Bændaskólans á Hvanneyri að
blómgun plöntunnar hafi verið að
byrja 10. og 11. ágúst þegar mikið
frost gerði í tvær nætur. Eyðilögðust
þá blómvísarnir og ekkert varð úr
uppskeru.
Uppskorið fræ
Árin 2008 og 2009 framkvæmdu
starfsmenn Landbúnaðarháskóla
Íslands prófanir á danskri kyn-
bótalínu á Korpu í Reykjavík.
Arfgerðin hafði gefið góða raun á
norðlægari slóðum og fengust vaxt-
arlegar plöntur og spírandi fræ úr
prófunum bæði árin. Framreiknað
fræmagn uppskeru ársins 2009 sam-
svaraði 2,2 tonnum á hektara. Árið
2010 var fræjum frá uppskeru LbHÍ
2009 sáð á tilraunastöð skólans á
Möðruvöllum í Hörgárdal en hún
skilaði ekki ásættanlegri uppskeru.
Vitað er um tvo garðyrkjumenn
sem hafa prófað að rækta Inkakorn
í heimagörðum sínum á undan-
förnum árum. Jón Guðmundsson,
garðyrkjufræðingur á Akranesi,
sáði tveimur yrkjum, sem hann
keypti frá Bretlandi, í aprílmánuði
árið 2014. Plönturnar spíruðu inni
en voru síðan færðar út í kalt en
frostfrítt gróðurhús. Um tíu plönt-
um var síðan plantað út í matjurta-
garð í byrjun júní, og að sögn Jóns
urðu þær um 80 cm að hæð. Um
haustið uppskar hann nokkra tugi
gramma af Inkakorni.
Þá sáði Tómas A. Ponzi kólu-
mbísku fræi í óupphitað gróðurhús
í Mosfellsdal árið 2016.
„Plantan varð um 2 metrar á hæð
með mikið af blómum sem aldrei
náðu að blómstra þegar komið var
fram á haust og rakinn tók völdin,“
segir Tómas.
Áframhaldandi prófanir í sumar
Þó prófanir á inkakorni hérlendis
hafi ekki verið miklar má þó draga
einhvern lærdóm af þeim. Þær próf-
anir sem farið hafa fram hér á landi
sýna að velja þarf þær arfgerðir sem
aðlagaðar eru tempruðu loftslagi til
þess að ná fram spíruðu fræi við lok
vaxtartíma, sem er um 100 dagar.
Lengd vaxtartíma hefur í sumum
tilfellum komið í veg fyrir þrosk-
un fræja en veðurskilyrði hérlend-
is hafa þó vænkast og mögulegur
ræktunartími hefur lengst í báða
enda.
Í sumar stendur Landbúnaðar-
háskóli Íslands, með stuðningi
frá Nýsköpunarsjóði námsmanna
og Framleiðnisjóði landbúnaðar-
ins, fyrir áframhaldandi prófun-
um á þessari spennandi matjurt.
Markmiðið með verkefninu er að
þróa leiðir til ræktunar á Inkakorni
á norðurslóðum, varpa ljósi á erfða-
fræðilega þætti aðlögunar og leggja
þannig grunn að frekari kynbótum,
ræktun og framleiðslu hérlendis og
á sömu breiddargráðum erlendis.
Hægt er að fylgjast með fram-
gangi rannsóknarinnar á Facebook-
síðu jarðræktarannsókna LbHÍ:
facebook.com/Akuryrkja. /ghp
Matjurt sem stuðlar að fæðuöryggi í heiminum:
Ræktun Inkakorns í þróun á Íslandi
– Glútenlaust kornmeti sem nýtur vaxandi vinsælda á Vesturlöndum
Mynd /Jón Hallsteinn Hallsson
Mynd/JHH
-
Mynd/ghp
-
Mynd/ghp