Bændablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017 Inkakorn (Chenopodium quinoa Willd.), eða kínóa, er planta af skrauthalaætt (Amaranthaceae). Hún á uppruna sinn í Andesfjöllum Suður-Ameríku þar sem hún hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem matjurt í um 6000 ár. Inkakorn er ræktað víða um heim við fjölbreytileg skilyrði, allt frá fjallgörðum til sjávarmáls, og býr að gríðarlegum genafjölbreytileika. Uppskera getur numið allt að 4 tonnum á hektara við kjöraðstæður. Afurðir plöntunnar eru helst tvær; fræið og laufblöðin. Laufblöðin eru æt og því nýtileg sem fóður og sem salat. Fræið er einnig nýtt bæði til manneldis og sem skepnufóður. Próteinmagn þess er hátt, um 14%, og samsetningin heppileg með tilliti til lífsnauðsynlegra amínósýra. Þar við bætist að fræ inkakorns er laust við glúten. Sá eiginleiki er ekki síst ástæða mikillar eftirspurnar til inkakorns í hinum vestræna heimi á undanförnum árum. Framleiðsla hennar hefur því aukist til muna víða um heim. Með hliðsjón af fjölbreyttum eiginleikum og aðlögunarhæfni p l ö n t u n n a r t i l n e f n d i Alþjóðamatvælastofnunin (FAO) Inkakorn sem eina af mikilvægustu matjurtum heims til að stuðla að fæðuöryggi á næstu öldum. Fyrstu heimildir frá 1958 Fyrstu heimildir um ræktun Inkakorns á Íslandi eru frá 1959, en í ársriti Garðyrkjufélags Íslands segir Einar I. Siggeirsson frá ræktun Ólafs Þorgrímssonar hæstarréttarlögmanns. Árið 1958 sáði Ólafur fræjum fimm afbrigða plöntunnar sem öll voru ættuð úr Andesfjöllunum, en þau hafði hann fengið send frá landbúnaðarráðuneytinu í Perú. „Fræinu var sáð hér 25. maí og spíraði fljótt og vel. Kom það upp 6–10 dögum eftir sáningu. Það óx vel og varð 80–110 cm á hæð, þvermál stönglanna 2–12 mm, sem fór nokkuð eftir afbrigðum. Blöðin voru stór, þétt og safarík. Kornið blómstraði 26. júlí til 5. ágúst, en náði ekki alveg fullum þroska um haustið,“ segir í Garðyrkjuritinu. Starfsmenn Bændaskólans á Hvanneyri stóðu að prófunum á ræktun Inkakorns á Íslandi árið 1993. Þremur afbrigðum var sáð 4. júní en plöntur komu upp 18. júní. Nokkrar plöntur voru aldar upp í gróðurhúsi og var þeim plantað út 28. júní. Segir í tilrauna skýrslu Bændaskólans á Hvanneyri að blómgun plöntunnar hafi verið að byrja 10. og 11. ágúst þegar mikið frost gerði í tvær nætur. Eyðilögðust þá blómvísarnir og ekkert varð úr uppskeru. Uppskorið fræ Árin 2008 og 2009 framkvæmdu starfsmenn Landbúnaðarháskóla Íslands prófanir á danskri kyn- bótalínu á Korpu í Reykjavík. Arfgerðin hafði gefið góða raun á norðlægari slóðum og fengust vaxt- arlegar plöntur og spírandi fræ úr prófunum bæði árin. Framreiknað fræmagn uppskeru ársins 2009 sam- svaraði 2,2 tonnum á hektara. Árið 2010 var fræjum frá uppskeru LbHÍ 2009 sáð á tilraunastöð skólans á Möðruvöllum í Hörgárdal en hún skilaði ekki ásættanlegri uppskeru. Vitað er um tvo garðyrkjumenn sem hafa prófað að rækta Inkakorn í heimagörðum sínum á undan- förnum árum. Jón Guðmundsson, garðyrkjufræðingur á Akranesi, sáði tveimur yrkjum, sem hann keypti frá Bretlandi, í aprílmánuði árið 2014. Plönturnar spíruðu inni en voru síðan færðar út í kalt en frostfrítt gróðurhús. Um tíu plönt- um var síðan plantað út í matjurta- garð í byrjun júní, og að sögn Jóns urðu þær um 80 cm að hæð. Um haustið uppskar hann nokkra tugi gramma af Inkakorni. Þá sáði Tómas A. Ponzi kólu- mbísku fræi í óupphitað gróðurhús í Mosfellsdal árið 2016. „Plantan varð um 2 metrar á hæð með mikið af blómum sem aldrei náðu að blómstra þegar komið var fram á haust og rakinn tók völdin,“ segir Tómas. Áframhaldandi prófanir í sumar Þó prófanir á inkakorni hérlendis hafi ekki verið miklar má þó draga einhvern lærdóm af þeim. Þær próf- anir sem farið hafa fram hér á landi sýna að velja þarf þær arfgerðir sem aðlagaðar eru tempruðu loftslagi til þess að ná fram spíruðu fræi við lok vaxtartíma, sem er um 100 dagar. Lengd vaxtartíma hefur í sumum tilfellum komið í veg fyrir þrosk- un fræja en veðurskilyrði hérlend- is hafa þó vænkast og mögulegur ræktunartími hefur lengst í báða enda. Í sumar stendur Landbúnaðar- háskóli Íslands, með stuðningi frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og Framleiðnisjóði landbúnaðar- ins, fyrir áframhaldandi prófun- um á þessari spennandi matjurt. Markmiðið með verkefninu er að þróa leiðir til ræktunar á Inkakorni á norðurslóðum, varpa ljósi á erfða- fræðilega þætti aðlögunar og leggja þannig grunn að frekari kynbótum, ræktun og framleiðslu hérlendis og á sömu breiddargráðum erlendis. Hægt er að fylgjast með fram- gangi rannsóknarinnar á Facebook- síðu jarðræktarannsókna LbHÍ: facebook.com/Akuryrkja. /ghp Matjurt sem stuðlar að fæðuöryggi í heiminum: Ræktun Inkakorns í þróun á Íslandi – Glútenlaust kornmeti sem nýtur vaxandi vinsælda á Vesturlöndum Mynd /Jón Hallsteinn Hallsson Mynd/JHH - Mynd/ghp - Mynd/ghp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.