Bændablaðið - 22.06.2017, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Fyrstu samningarnir við
landeigendur vegna nýs
Hringvegar í Hornafirði voru
undirritaðir nú í vor. Ekkert bólar
þó á verkútboðum þó áætlað sé að
verja um 200 milljónum króna í
framkvæmdir á þessu ári.
Sveitarfélagið Hornafjörður
hefur þegar veitt Vegagerðinni
framkvæmdaleyfi. Að framkvæmdum
loknum fækkar einbreiðum brúm á
Hringvegi um þrjár auk þess sem
hringvegurinn á milli Suðurlands
og Austurlands styttist að minnsta
kosti um 11 kílómetra. Talsvert
kann þó að verða í að vegagerð
yfir Hornafjarðarfljót ljúki, enda
framkvæmdafé Vegagerðarinnar af
skornum skammti til nýframkvæmda.
Þá hefur enn ekki verið auglýst útboð
vegna þessa verkefnis og ekki er að
sjá á lista Vegagerðarinnar að útboð
séu fyrirhuguð á næstunni.
Einbreiðum brúm fækkar
Nýr Hringvegur um Hornafjörð
mun liggja á milli bæjanna Hólms
og Dynjanda. Vegamót verða við
núverandi Hringveg á móts við
Hólm, tengingar að Brunnhóli og
Einholti aðlagaðar nýjum vegi,
tengivegur verður meðfram Djúpá,
gerður verður varnargarður austan
Hornafjarðarfljóta, ný vegamót
verða við Hafnarveg og önnur vega-
mót við núverandi Hringveg austan
Hafnarness. Jafnframt verða útbúnir
áningarstaðir fyrir vegfarendur.
/MÞÞ/HKr.
Stytting þjóðvegar á milli Suðurlands og Austurlands með nýjum vegi yfir Hornafjarðarfljót:
Samningar gerðir við landeigendur
en engin verkútboð í sjónmáli
– Samt er áætlað að verja 200 milljónum í framkvæmdir á þessu ári
Veist þú að vörur sem inni-
halda hættuleg efni þurfa
að bera merkingar þar sem
einhver af þess um hættu-
merkjum koma fram?
Þvotta- og hreinsiefni,
grillvökvi, stíflueyðir og
viðarvörn eru dæmi um
vörur á heimilinu sem
geta verið hættulegar og
þurfa þess vegna að vera
hættumerktar á íslensku.
Lestu alltaf á umbúðirnar
og fylgdu leiðbeiningum
um örugga notkun fyrir
heilsu og umhverfið.
Kynntu þér málið betur á
www.umhverfisstofnun.is.
ÞEKKIR ÞÚ
HÆTTUMERKIN?
SPRENGIFIMT
ELDNÆRANDI /
OXANDI
ÆTANDI
ELDFIMT
ALVARLEGUR
HEILSUSKAÐI
GAS UNDIR ÞRÝSTINGI
SKAÐLEGT
UMHVERFINU
BRÁÐ EITURHRIF
HEILSUSKAÐI /
SKAÐAR ÓSONLAGIÐ
Myndir / Vegagerðin
-
-
Mynd / MHH
Innflytjendum fjölgar enn:
Orðnir 10,6% íbúa á Íslandi
Hinn 1. janúar 2017 voru 35.997
innflytjendur á Íslandi eða 10,6%
mannfjöldans. Það er fjölgun frá
því í fyrra þegar þeir voru 9,6%
landsmanna (31.812), samkvæmt
tölum Hagstofu íslands.
Fjölgun innflytjenda heldur því
áfram, en frá árinu 2012 hefur þeim
fjölgað úr því að vera 8,0% mann-
fjöldans upp í 10,6%. Annarri kyn-
slóð innflytjenda fjölgaði einnig á
milli ára, voru 4.158 í fyrra en 4.473
nú. Samanlagt er fyrsta og önnur
kynslóð innflytjenda 12% af mann-
fjöldanum og hefur það hlutfall aldrei
verið hærra. Einstaklingum með
erlendan bakgrunn, öðrum en inn-
flytjendum, fjölgaði einnig lítillega
milli ára, voru 6,7% mannfjöldans í
fyrra en 6,8% nú.
Eins og síðustu ár eru Pólverjar
langfjölmennasti hópur innflytjenda
hér á landi. Hinn 1. janúar síðast-
liðinn voru 13.771 einstaklingur frá
Póllandi, eða 38,3% allra innflytj-
enda. Þar á eftir koma innflytjend-
ur frá Litháen (Lietuva) (5,2%) og
Filippseyjum (4,5%).