Bændablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Elín Margrét Stefánsdóttir, bóndi í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit:
Nauðsynlegt að meiri sátt ríki
um landbúnaðinn
– Vantar rödd kvenna inn í umræðuna – Þær hafa oft aðra sýn á málin og það er til hagsbóta ef sem flest sjónarmið koma fram
„Konur mættu gjarnan hafa
sig meira í frammi, það er því
miður enn frekar ríkjandi að þær
haldi sér til hlés og ræði málin
við eldhúsborðið en til dæmis á
opnum fundum. Þær eru í flestum
tilvikum ekki eins ákafar og
karlarnir að viðra sínar skoðanir.
Má vera að þær séu viðkvæmar
fyrir gagnrýni og að að þeim verði
gert grín, en slíkt er því miður svolítið
viðloðandi okkar atvinnugrein. Það
er of ríkt í körlunum að þykjast hafa
meira vit á málum og gefa í skyn
að konur hafi ekki nægan skilning
á landbúnaðarmálum.
Að mínu mati vantar rödd
kvenna inn í umræðuna, við þurfum
að róa að því öllum árum að virkja
konurnar. Þær hafa oft aðra sýn á
málin og það er til hagsbóta ef sem
flest sjónarmið koma fram,“ segir
Elín Margrét Stefánsdóttir, bóndi
í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit. Hún
er þó bjartsýn fyrir hönd kvenna,
yngri konurnar í hópnum láti sér fátt
fyrir brjósti brenna og komi sínum
skoðunum á framfæri til jafns við
karlana.
Elín hefur tekið virkan þátt
í félagsmálum um árabil, hefur
m.a. átt sæti í stjórn MS og
Auðhumlu síðastliðin 5 ár og
á sæti í endurskoðunarnefnd
búvörusamninga sem skipuð
var á liðnum vetri. Hún lét
nýlega af störfum sem formaður
Hestamannafélagins Funa í
Eyjafjarðarsveit og hefur einnig
um árabil gegnt stöðu gjaldkera í
því félagi auk þess að vera í stjórn
kvenfélagsins í sveitinni um 12 ára
skeið.
Með 70 kýr, kvígur og 20 hross
Elín og eiginmaður hennar, Ævar
Hreinsson, eru með 70 kýr og annan
eins hóp af kvígum í uppeldi. Þá
eiga þau um 20 hross, einkum sér
til skemmtunar eins og hún orðar
það, ríða út yfir veturinn og reyna
að komast í að minnsta kosti eina
góða hestaferð yfir sumarið. „Ég
var aðeins að reyna að keppa í vetur
sem leið, með misgóðum árangri,
en hafði mjög gaman af. Við höfum
líka verið að prófa okkur áfram með
ræktun, fáum eitt til þrjú folöld á ári
og flest okkar reiðhross eru úr okkar
ræktun.“
Elín er uppalin í Laxárdal í
Þistilfirði, þar sem foreldrar hennar,
Hólmfríður Jóhannesdóttir og Stefán
Eggertsson, ráku sauðfjárbú. Bróðir
Elínar, Eggert Stefánsson hefur nú
tekið við búinu. Þrjú af sjö börnum
Hólmfríðar og Stefáns eru bændur.
Elín stundaði nám við Bænda-
skólann á Hvanneyri á sínum tíma
og kynntist eiginmanni sínum,
Ævari Hreinssyni frá Hríshóli í
Eyjafjarðarsveit, þegar hún var
þar í verknámi frá Hvanneyri.
Saman eiga þau þrjú börn, Örn,
nema við Verkmenntaskólann á
Akureyri, Þór, sem starfar hjá véla-
verktaka í Mývatnssveit og Evu,
sem lokið hefur þremur bekkjum í
Hrafnagilsskóla. Fyrir átti Elín son-
inn Jóhann Jóhannesson, rafvirkja á
Akureyri, en hann er í sjálfstæðum
rekstri og er m.a. þjónustufulltrúi
fyrir GEA mjaltaþjóna.
Hvanneyri, Akureyri, Fellshlíð
Að loknu námi á Hvanneyri hélt
Elín norður og þau Ævar settust að
á Akureyri.
„Við bjuggum þar í nokkur ár, en
sáum þessa jörð, Fellshlíð, auglýsta
til sölu árið 2002 og keyptum hana
það ár. Föðurbróðir Ævars hafði
búið hér, en þessi jörð er samofin
sögu fjölskyldu Ævars. Um miðja
síðustu öld flutti amma Ævars austan
úr Bárðardal með sínum börnum og
settist hér að.
Í þá daga hét jörðin Öxnafellskot,
en nafninu var breytt í Fellshlíð.
Hér var þá fátt um fína drætti, húsa-
kynni hálfónýtir kofar og ekki einu
sinni kominn vegur upp að bænum.
Fjölskyldan var hins vegar dugleg og
samhent og byggði á nokkrum árum
upp hér og ræktaði.
Tveir bræðranna, Hreinn og Jón
Kristjánssynir, bjuggu hér félagsbúi
í nokkur ár, eða þar til tengdapabbi
flutti með sína fjölskyldu að
Fjósakoti sem nú heitir Hríshóll.“
Gerðu endurbætur á þeim
húsakosti sem fyrir var
Elín segir að þau Ævar nýti í grunninn
Elín og eiginmaður hennar, Ævar Hreinsson, eru með 70 kýr og annan eins hóp af kvígum í uppeldi. Þau hafa gert gagngerar endurbætur á fjósi, bæði með það í huga að bæta vinnuaðstöðu og
ekki síður í ljósi þess að ný aðbúnaðarreglugerð var á þeim tíma sem framkvæmdir hófust að taka gildi. Myndir /MÞÞ og úr safni Fellshlíðarbænda
Ævar Hreinsson og Elín Margrét Stefánsdóttir með börnum sínum, Erni, Þór og Evu, eftir að endurbætt fjós var
tekið í notkun í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit undir lok síðasta árs.