Bændablaðið - 22.06.2017, Síða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Kioti Tractors er fram-
leiðsluheiti á dráttar vélum
frá Daedong Industrial
Co. Ltd., sem er með
höfuðstöðvar í Daegu
í Suður-Kóreu. Kioti
mun vera nokkuð þekkt
merki bæði í Evrópu og í
Bandaríkjunum.
Daedong Industry eða
Jin-ju, Kyungsangnamdo
var stofnað árið 1947 og á
því 70 ára afmæli á þessu
ári. Fyrirtækið óx jafnt og
þétt og hefur um árabil verið
meðal leiðandi fyrirtækja í
þjónustu við landbúnað á heims-
vísu og selur framleiðslu sína í
yfir 30 löndum.
Það hóf framleiðslu á mótorum
árið 1949. Fyrirtækið hefur hlot-
ið fjölda viðurkenninga og verð-
launa í gegnum tíðina og var m.a.
valið einn af helstu stuðnings-
aðilum vetrarólympíuleikanna
í PyeongChang í Suður-Kóreu
árið 2018.
Kioti-merkið aðallega til
útflutnings
Auk dráttarvéla framleiðir
Daedong ýmiss konar aukabún-
að til notkunar í landbúnaði.
Notar fyrirtækið Kioti-nafnið
einkum á vélar sem framleiddar
eru til útflutnings. Tækin bera
einnig önnur heiti eins og Farm
Tanakaya, Landix og Landpower.
Hefur framleitt fyrir önnur
fyrirtæki
Daedong var um tíma í
samstarfi við New Holland og
umframleiðslu á Kioti Kubota.
Þá hafa merki eins og Cub Cadet
og Bob Cat verið framleidd hjá
Deudong
Kioti dráttarvélar eru
framleiddar með allt að 110
hestafla mótorum (82 kW), en
síðan allt niður í 24,5 hestöfl
(18,2 kW), eða alls 43 mis-
munandi gerðir. Flaggskipið
er Kioti PX1153PC sem er
110 hestöfl.
Fjöldi dótturfélaga
Dótturfélög Daedong eru
nokkur, en þau eru:
Daedong Metals Co., Ltd., sem
framleiðir grindur og burðarvirki
í dráttarvélar og önnur ökutæki.
Daedong Gear Co., Ltd.
sérhæfir sig í drifbúnaði og
skiptingum fyrir landbúnaðar-
og iðnaðartæki sem og í skip og
ýmislegt annað.
Hankuk Chain Industrial Co.
Ltd. framleiðir margvíslegar keðj-
ur í færibönd lyftara og fleira.
Daedong Training Center er
með lúxusaðstöðu til að þjálfa
umboðsmenn, starfsmenn og
notendur búnaðar Daedong.
Daedong-USA, Inc. er fram-
leiðslu- og dreifingarfyrirtæki
félagsins í Bandaríkjunum og er
með höfðustöðvar í Wendell
í Norður-Karolínu.
Daedong KIOTI Europe
er með aðsetur nærri
Rotterdamhöfn í Hollandi.
Það sér um þjónustu við
yfir 500 dreifingaraðila í
30 Evrópulöndum.
Daedong China er stað-
sett í Anhui-héraði. Það var
sett á fót 2007 og sérhæfir
sig í framleiðslu á samstæðum,
ekki síst fyrir hrísgrjónafram-
leiðslu. Hefur það verið í örum
vexti og er eitt af best þekktu
vörumerkjunum í þessum geira
í Kína. /HKr.
Kioti – sléttuúlfurinn
frá Suður-Kóreu
Kranavatn hjá 15 milljónum
manna í 27 ríkjum Bandaríkja-
manna er mengað af eitruðum
efnum sem einnig eru þekkt
sem PFC og PFA. Þau eru m.a.
talin geta valdið krabbameini,
sjúkdómum í skjaldkirtli og
veikingu á ónæmiskerfi manna.
Þetta kemur m.a. fram í nýlegri
tilkynningu EWG hópsins (The
Environmental Working Group)
sem er áhugamannasamtök um
rannsóknir og aukna upplýsingagjöf
um heilsusamlegra umhverfi fólks.
Þau segja að neysla kranavatns
í litlum mæli á þeim stöðum sem
samtökin hafa kortlagt geti verið
skaðleg fólki.
„Það er merkilegt að ríkasta land
heims geti ekki tryggt þegnum sínum
öruggt drykkjarvatn sem hefur ekki
langvarandi neikvæð áhrif á heilsu
manna,“ segir Bill Walker, sem er
ein þeirra sem stendur að tilkynn-
ingunni.
Hættuleg efni í matvælaumbúðum
og á steikarpönnum
PFC efni hafa þá eiginleika að vera
vatnshrindandi og fráhrindandi
efni og er þess vegna mikið notað
við framleiðslu á margvíslegum
vörum. Það er m.a að finna í frá-
hrindandi húð á steikarpönnum, úti-
vistarfatnaði, matvælaumbúðum og í
eldvarnarkvoðu. Þessi efnasambönd
eru útlistuð á ensku sem „PFASs, eða
per- and polyfluoralkyl substances.“
Þá eru þau líka nefnd PFC sem stend-
ur fyrir „perfluorinated chemicals“.
Almenningur þekkir vel
eiginleika þessara efna í húðuðum
steikarpönnum sem hindra viðloðun.
Einnig í vatnshrindandi efnum
í útivistarfatnaði, í gólfteppum
sem hrinda frá sér óhreinindum, í
pokum utan um örbylgjupopp og í
margvíslegum öðrum umbúðum utan
um matvæli. Þessi efni er oft einnig
að finna í húðsnyrtivörum og ýmsum
öðrum vörum.
Lítið gert til að upplýsa
fólk um hættuna
EWG samtökin og Northeastern
University hafa kortlagt upplýs-
ingar sem teknar eru úr opinberum
gögnum um útbreiðslu EPA meng-
unar frá verksmiðjum, herstöðvum
flughersins, almennum flugvöll-
um og æfingasvæðum slökkviliða.
Þrátt fyrir gögn um aukinn fjölda
tilvika sem sýna hættulega mengun
af þessum toga, þá segja samtök-
in að engar reglur hafi verið sett-
ar um leyfilegt innihald þessara
efna í drykkjarvatni. Þá séu 25 ár
síðan Umhverfisverndarstofnun
Bandaríkjanna (US EPA) hafi
úrskurðað drykkjarvatn sem hættu-
legt samkvæmt lögum um öryggi
drykkjarvatns.
Mest mengun frá her og iðnaði
Samkvæmt kortlagningu EWG
hefur PFA mengunin mælst mest
frá sameiginlegri herstöð, landhers
og flughers (Joint Base McGuire-
Dix-Lakehurst ) nærri Trenton
í New Jersey. Þar voru mæld
580.000 ppt gildi af PFA efnum í
grunnvatni mælt (ppt = billjónustu
hlutar í einingu). Í grunnvatni
nærri stöðvum flughersins í
Dover í Delawer mældust 270.000
einingar.
Af 47 þekktum svæðum þar
sem staðfest hefur verið PFA
mengun eða grunur er um slíkt,
eru 21 þeirra á vegum hersins
og 20 eru iðnaðarsvæði. Þá eru
7 æfingasvæði slökkviliða. Á
sumum svæðunum er um fjölþætta
mengun eiturefna að ræða.
Samkvæmt gögnum Sjúkdóma-
varnarmiðstöðva Bandaríkjanna
(Centers for Diescese Control
and Preventation - CDC), þá hafa
rannsóknir sýnt að nær allir íbúar
landsins hafa eitthvað af PFC eða
tengdum efnum í líkama sínum.
Magn þess sem fannst í
hóprannsókn á 2.094 einstaklingum
sem gerð var á árunum 2003 til
2004 var þó ekki talið í þeim
mæli að það hafi verið hættulegt
viðkomandi fólki. Reyndar fundust
fjögur afbrigði af PFC efnum í
fólkinu, eða PFOS, PFOA, PFHxS
og PFNA. Ekki kemur þó fram
hvar hættumörkin liggja hvað
varðar innihalda efnanna í blóði
manna. /HKr.
Efnamengað kranavatn hjá 15
milljónum Bandaríkjamanna
– Efni sem m.a. eru notuð í matvælaumbúðir í hernaði og á steikarpönnur
Grunnvatn í Bandaríkjunum er víða talið mengað af PFC efnum sem eru talin geta verið skaðleg heilsu manna. Mest
Þaðan berst mengunin svo í grunnvatn. Þá innihalda margvíslegar matvælaumbúðir líka slík efni.
UTAN ÚR HEIMI
Svæði þar sem PFC efni hafa fundist í drykkjarvatni eru merkt með rauðu.
Efnin eru m.a. notuð til að minnka
Uppbygging PFC.