Bændablaðið - 22.06.2017, Síða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Ohio er hluti af miðvesturríkj-
um Bandaríkjanna og er land-
búnaður ein af sjö meginstoðum
atvinnu lífsins. Fylkið er með sér-
stæða sögu ofsóttra trúarhópa,
þýskra innflytjenda og meiri
háttar þurrkun mýrlendis, en
sömuleiðis samtíð sem reynir á
íbúa.
Höfuðstöðvar landbúnaðar-
ráðuneytis Ohio (Ohio Farm
Bureau) eru í Columbus, höf-
uðborg 11,6 milljón íbúa Ohio-
ríkis, sem árið 1803 varð 17 ríki
Bandaríkjanna.
Á einni af skrifstofum ráðu-
neytisins má finna líflegan og
þverpólitískan vettvang skoðana-
skipta í kringum hringlaga skrif-
borð þakið hljóðnemum, enda um
útvarpsstöð ráðuneytisins að ræða.
Talsmaður ráðuneytisins og reglu-
legur þáttastjórnandi, Joe Cornelly,
hjálpaði mér að fá yfirsýn yfir land-
búnað ríkisins, þar á meðal land-
fræðilega sýn.
Umfangsmesta ræktun
sojabauna, korns og hveitis til
fóðureldis
Í vesturhluta Ohio má finna
umfangsmestu ræktun sojabauna,
korns og hveitis til fóðureldis fyrir
nálæga svína- og nautgriparækt, en
austurhlutinn eru aflíðandi hlíðar,
mjólkurbú og beitarlönd. Í norður-
hluta ríkisins er vinnsla hlynssíróps
útbreidd, en suðausturhlutinn, næst
Appalasíufjöllum, hefur minnsta
magn landbúnaðar sökum skorts á
ræktarlandi. Sáning á sér stað frá
miðjum mars syðst en milt loftslag
ríkisins gerir miðjan apríl að raun-
hæfum tíma til sáningar, sem að
öllu jöfnu er lokið í júní. Þegar Ohio
varð að ríki árið 1803 var ræktun
mest við Ohio-ána, en á síðari hluta
19. aldar hófst þurrkun mýrlendis
kennt við Miklu svörtu mýrina og
skapaði eitt stærsta og gjöfulasta
ræktarland ríkisins. Veður hefur
alla tíð verið ein helsta ógn við
bændur, en Joe segir aukna úrkomu
vera merki um breytt veðurfar sem
skapi bændum aukin vandræði og
kalli á tryggingar til að mæta meiri
háttar áföllum og tekjutapi.
Annar áhrifavaldur er orku-
verð, vegna áhrifa á verð á elds-
neyti, áburði og skordýraeitri, en
aukin jarðgasvinnsla í austurhluta
ríkisins hefur lækkað orkukostn-
að bænda. Þróun erfðabreyttra
tegunda segir hann hafa leitt af sér
aukna uppskeru, allt að fjórfalda,
betri plöntur, en einnig mikla verð-
hækkun á fræjum. Sömuleiðis hafði
markaðsverð á korni áhrif á verð-
lagningu ræktarlands, líkt og þegar
ekra undir kornrækt fór úr 2000$ í
18.000$, en verðhrun fylgdi upp
úr 1980. Offjárfestingar og tilheyr-
andi lántaka átti þátt í að grisja úr
röðum bænda en þeir betur settu
gátu keypt ræktarlönd á brunaút-
sölu. Síðustu 3–4 ár hafa einkennst
af lækkandi verði og tæpri afkomu
fyrir helstu afurðir, líkt og korn
og soja, en hafði 6–8 ár fyrir það
einkennst af háu verði sem gerði
bændum betur kleift að standast
núverandi niðursveiflu. Varðandi
neikvæða umræðu um landbúnað
byggð á hugmyndinni um völd
stórfyrirtækja, segir hann tölurn-
ar, í dag um 88% af býlum, sýna
að ríkjandi rekstrarform í Ohio sé
fjölskyldurekið býli, þótt vissulega
geti slík býli verið stór.
Eitt af mikilvægustu málefnum
fyrir bændur er skattalegs eðlis og
birtist í CAUV áætlun, sem miðar
að því að skattleggja lönd bænda
samkvæmt landbúnaðargildi í stað
markaðsgildis. Afraksturinn er
lægri skattbyrði og tilraun til að
halda í landbúnaðarsvæði frammi
fyrir þrýstingi húsnæðismarkaðar.
Varðandi pólitíska afstöðu
bænda í Ohio sagði hann þá sveifl-
ast og ekki bundna við neinn flokk.
Bændur ríkisins hafi ávallt verið
fremur íhaldssamir, en ríkjandi
stuðningur þeirra við Trump hafi
verið afleiðing þess að bændum
þóttu stefnur demókrata, heimssýn
og gildi Hillary og Obama ekki hafa
samræmast þeirra eigin.
Þúsund milljarða króna
landbúnaður
Þótt raddir þeirra hafi ekki fundið
víðan hljómgrunn utan miðvest-
urríkjanna, eru efnahagsleg áhrif
landbúnaðar ríkisins gríðarleg. Eitt
af sjö störfum Ohio er undir land-
búnaði komið, og verðmæti helstu
afurða er mælt í milljörðum dollara,
líkt og 1,2 milljarðar dollara eggja-
iðnaður (120 milljarðar ísl. kr.), 2
milljarða dollara sojabaunaiðnaður,
1,9 milljarða dollara korniðnaður
ásamt mjólk, nautgripum og svína-
rækt, sem samanlagt skapa um 2,3
miljarða dollara.
Landbúnaður ríkisins skilar
meira en 10 miljörðum dollara til
hagkerfisins, eða sem svarar um
þúsund milljörðum íslenskra króna
miðað við gengi dollars í dag. Skýrt
er að stefna ráðamanna ríkisins
styður líka við bakið á einum mik-
ilvægasta iðnaði þess.
Auk þess má geta að Ohio er 27.
stærsta efnahagssvæði heims með
rúmlega 526 milljarða dollara verga
landsframleiðslu árið 2015 (um
52,6 þúsund milljarðar íslenskra
króna), samkvæmt tölum Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins (IMF). Kemur
ríkið þar næst á eftir olíuríkinu
Sádi-Arabíu og var efnahagslega
öflugra en Argentína.
Hinar Miklu svörtu mýrar
Á þungbúnum morgni í marsmánuði
ók ég frá Columbus til norðvest-
urs, eftir hraðbrautum framhjá
úthverfum og stórverslunum, þar
til ríkisvegur 31 leiddi mig í gegn-
um hreinræktuð landbúnaðarhéröð
hinna Miklu svörtu mýrlenda.
Smábæir urðu smærri,
bandarískum fánum og kirkjum
fjölgaði, bílarnir voru stærri og
misbrúnir akrar þöktu landslagið
eins og bútasaumsteppi.
Við endann á fáförnum
vegslóða skammt frá Arlington
í Hancock-sýslu, stendur 800
ekru býli Johns Motter, korn- og
sojabaunabónda, sem situr í stjórn
sojabaunaráðsins (Ohio Soybean
Council), hagsmunasamtaka miðuð
að rannsóknum og hagsmunagæslu
ræktenda.
Inni í vélahúsinu er 1987 árgerð af
John Deer 4450 traktor ásamt búnaði
sem John gerir kláran fyrir vorið, en
á veturna má finna margan bóndann
á kaffispjalli á matsölustöðum
smábæja og kyrrlátt andrúmsloft
ræður ríkjum.
John rekur ættir sínar 13
kynslóðir aftur til Þýskalands og
Sviss, er þriðja kynslóð bænda í
sýslunni, en fyrir fimm kynslóðum
yfirgaf langalangafi hans Amish-
trúarhópinn. sem er enn fjölmennur
í Hancock-sýslu. Amma Johns
tók við býlinu þegar afi hans lést
af mæðusótt og gekk í öll störf á
fjölbreyttu býli, en faðir hans tók
við eftir að hafa snúið heim úr
seinni heimsstyrjöld. John hafði
frá þriggja ára aldri ákveðið að
feta í fótspor föður síns, sem lést á
miðjum aldri í vinnuslysi á býlinu.
Að loknu háskólanámi í búvísindum
hóf John eigin búskap sem færðist
frá svína- og nautgriparækt yfir
í korn og sojabaunir, sem eru ein
helsta uppskera í Ohio. Ræktun
erfðabreyttra tegunda hefur farið
vaxandi, sem hann telur til bóta, þó
með mikilli hækkun á frækostnaði.
Því fleiri eiginleika sem fræin hafa,
því dýrari. Þannig borga bændur
ekki aðeins fyrir aukna uppsprettu,
heldur eiginleika sem eru vörn
gegn mögulegri vá skordýra eða
veðurskilyrða. Verð á sojabaunum
og ræktarlandi byrjaði að falla fyrir
5 árum og leiddi til gjaldþrots margra
bænda sem voru hátt skuldsettir
vegna kaupa á dýru ræktarlandi.
Afurðaverðið er enn lágt og
segir hann hagnað bænda vera
milli 1–2%, sem sé ósjálfbært til
langs tíma og muni reynast ungum
bændum erfiðast, þrátt fyrir aðgengi
að sterku lánskerfi fyrir bændur
(Farm Credit System). Það sé aukin
notkun á sojabaunum í ýmsum
iðnaði, þar á meðal bílsætum, en
mesta magn sojabauna fer í fóður,
bíodísil og matarolíu. Sojaolía hefur
undanfarna áratugi glatað ríkjandi
markaðsstöðu vegna kröfunnar
um fituminni matarolíur, en með
þróun erfðabreyttra tegunda sem
innihalda mun lægra fituinnihald,
er stefnt á að endurheimta fyrri
stöðu. Tafir vegna reglugerða um
erfðabreytt matvæli standa þó enn
í vegi fyrir áætlanir bænda um
víðtæka ræktun. Hins vegar segir
hann tilvonandi byggingu stórrar
sláturstöðvar í Michigan muni auka
eftirspurn á sojabaunum í fóður og
vaxandi eftirspurn á heimsmarkaði
tengd aukinni kjötneyslu vaxandi
millistéttar kallar á aukna fóðurþörf,
og hefur afurðaverð farið hækkandi.
Helstu vandamál bænda varðandi
ræktun segir hann vegna aukinnar
úrkomu og hita. Nú sé sáð fyrr, en
bleyta geti seinkað uppskeru. Pressan
á að sitja ekki auðum höndum meðan
traktorar nágranna halda út á akra
segir hann oft leiða til snemmbúinnar
sáningar. Jarðvegurinn sé þungur
og leirkenndur, upprunninn frá
framburði ísaldarjökla, sem skapar
þörf á að plægja.
Darwin og Dúfan fræga
Við endann á sojabaunaakri Johns
Motter tekur við smár en þéttur
skógur á landareign nágrannans.
Svavar Jónatansson skrifar um Ohio sem er sjöunda stærsta efnahagssvæðið í Bandaríkjunum:
Presturinn Darwin E. Wilson. Myndir / Svavar Jónatansson
Mount Victory er smábær með um
600 íbúa, en bærinn er skorinn í
sundur af járnbrautarteinum.