Bændablaðið - 22.06.2017, Side 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Birgir Þórðarson á Öngulsstöðum
tilkynnti á aðalfundi Sögufélags
Eyfirðinga sem haldinn var fyrir
nokkru að hann léti af stjórnarsetu
sökum aldurs.
Birgir tók fyrst sæti í stjórn
Sögufélagsins árið 1976 og hefur
þjónað félaginu óslitið síðan,
ýmist sem formaður, ritari eða
meðstjórnandi. Þess má geta að
Sögufélag Eyfirðinga var stofnað
27. júní 1971. Skortir því ekki nema
fáein ár upp á að Birgir hafi setið
í stjórn félagsins frá upphafi. Fyrir
þetta þökkuðu aðalfundargestir með
miklu lófaklappi.
Ábúendatal Stefáns á lokametrum
Þá varð fundarmönnum tíðrætt
um hið mikla ábúendatal Stefáns
Aðalsteinssonar sem hlotið hefur
nafnið, Eyfirðingar framan Glerár
og Varðgjár, og áformað er að
komi út í fimm bindum. Nú hillir
undir verklok sem væntanlega
verða í haust en þá þarf sannkallað
Grettistak til að koma verkinu á
prent – sem ætti nú samt ekki að vaxa
okkur Eyfirðingum í augum, bentu
ýmsir á, og höfðu þá í huga framtak
Skagfirðinga við að varðveita sögu
sína – og eru þeir þó umtalsvert færri
en við, sögðu fundarmenn hver við
annan.
Að loknum venjulegum
aðalfundarstörfum tók við erindi
Gunnars Jónssonar en hann hefur
undanfarin ár lagt nótt við dag að
safna heimildum um Eyjafjarðarsveit
og skráningu þeirra í gagnagrunn.
Hvatti Gunnar þá í útsveitum til
að fara að fordæmi sínu og hefja
skipulagða söfnun heimilda. Var
gerður góður rómur að máli hans.
Félögum hefur fækkað
Að lokum skal þess getið að félögum
í Sögufélagi Eyfirðinga hefur fækkað
umtalsvert. Þó er ekki vitað um
nema einn einstakling sem hefur
bráðlifandi sagt sig úr félaginu og
segir það sína sögu um hið ágæta
rit Súlur, sem um þessar mundir er
ritstýrt af Birni Teitssyni, og er helsta
skrautfjöðurin í hatti félagsins – en
þess má geta að konur setja að þessu
sinni sterkan svip á ritið.
Staðreyndin er hins vegar sú að
stjórninni hefur illa tekist að bera sig
eftir nýjum félögum. Í frétt frá stjórn
félagsins segir að hún vilji nú nota
tækifærið og bjóða öllum sem unna
eyfirskum fróðleik að gerast félagar
í Sögufélagi Eyfirðinga og fá ársrit
félagsins, Súlur, heimsendar en ritið
kemur út árlega. Hægt er að hringja
í síma 462-4024 eða setja nafn,
heimili og kennitölu á netfangið,
gudps@simnet.is. /MÞÞ
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Sigtryggur V. Herbertsson
ábyrgðarmaður í
bútækni
sigtryggur@rml.is
Bætt afköst og vinnuumhverfi
við slátt með því að bakka
Íslenskir bændur eru sífellt að leita
leiða til að auka afköst og þægindi
við slátt og er sala á stórum
sláttuvélum alltaf að aukast.
Svokölluð fiðrildi eru einnig að
verða algengari og algengari hjá
stærri bændum og verktökum. Það
er margt sem spilar inn í eins og
hraði, vinnslubreidd, lögun stykkja
og ökumaður.
Samanburðarrannsókn
Árið 2012 gerði Finnska
rannsóknarsofan TTS rannsókn á
vinnuhagræði við slátt afturábak
og var notað til verksins Valtra með
Twintrac bakkkeyrslubúnaði og Elho
sláttuvélum. Helstu niðurstöður
voru að 13% munur var á hversu
fljótlegra var að slá afturábak en
hluti af því var að vinnslubreidd
sláttuvéla nýttist betur og beygjur
tóku mun styttri tíma. Það sem var
samt mest sláandi við niðurstöðurnar
var álag á ökumanninn, við það að
hafa yfirsýn yfir allt sláttuborðið
minnkaði sá tími sem ökumaður
sneri upp á bakið úr 20% í 0% í
beinni keyrslu og úr 25% niður í
5% þegar verið var að beygja.
Flestir framleiðendur sláttuvélasetta bjóða upp á bakkkeyrslusett, og þó að Valtra séu mest að auglýsa og selja
að aftan til að minnka vinnutap í beygjum. Beygjur að aftan gefa mun minni
beygjuradíus á sláttuvélinni og afturdekkin elta sláttugárann.
Sögufélag Eyfirðinga:
Birgir á Öngulsstöðum úr stjórninni eftir 41 árs setu
formaður, ritari eða meðstjórnandi.
Amazon kaupir
Whole Foods
– Kaupverðið nemur um 1.370 milljörðum króna
Þann 16. júní var greint frá
því að Amazon væri að kaupa
bandarísku verslanakeðjuna
Whole Foods fyrir 13,7 milljarða
dollara, eða sem nemur um 1.370
milljörðum íslenskra króna.
Þetta þýðir að Amazon býður um
42 dollara fyrir hvern af þeim 318,9
milljón hluta eins og skráningin var
í apríl. Viðskipti með hlutabréf í
Whole Foods stöðvuð í kauphöllum
þegar hluturinn stóð í 32,77
dollurum. Í fréttum kom fram að inni
í samningunum yrðu skuldir Whole
Foods Market Inc. Þótt kaupverðið
sé um 9 dollurum hærra á hlut en
fékkst í síðustu viðskiptum fyrir
kaupin, þá er það samt umtalsvert
lægra en þegar gengi félagsins var
hæst. Á árunum 2012 til 2015 voru
bréf í Whole Foods að seljast á 50
dollara á hlut.
Stofnað í Texas 1978
Whole Foods var stofnað í Texas
árið 1978 og er með um 27%
markaðshlutdeild meðal hágæða
matvælaverslana í Bandaríkjunum.
Það er með um 460 verslanir í
Bandaríkjunum, Kanada og í
Bretlandi. Þar er aðal áherslan lögð
á sölu á lífrænum og vistvænum
afurðum sem og tilbúnum réttum.
Starfsmenn verslanakeðjunnar eru
um 87.000 og í fyrra seldi fyrirtækið
vörur fyrir um 16 milljarða dollara.
Þekkt meðal íslenskra bænda
Íslenskir bændur þekkja Whole
Foods af góðu einu og þar hefur
m.a. verið selt af og til í gegnum
tíðina íslenskt lambakjöt, skyr, smjör
og fleira.
Stofnandinn verður áfram
forstjóri
Fram kom í tilkynningu frá Whole
Foods að verslanirnar yrðu áfram
reknar með óbreyttu sniði. Þá
mun John Mackey, sem er einn af
stofnendum Whole Foods, áfram
halda stöðu sinni sem forstjóri
fyrirtækisins og höfuðstöðvarnar
verða áfram í Austin í Texas. Hann
segir að þessi viðskipti gefi tækifæri
til að hámarka virði fyrirtækisins fyrir
hluthafana. Einnig muni viðskiptin
tryggja framlengingu á þeirri sýn
stofnendanna að bjóða aðeins upp
á hágæða vöru, reynslu, þægindi og
nýjungar fyrir viðskiptavini.
Jeff Bezos, forstjóri Amazon,
segir að milljónir manna elski
Whole Foods Market vegna þess
að hann bjóði einungis upp á bestu
og náttúrulegustu lífrænu matvælin
á markaðnum. Þá hafi Whole Foods
gert það skemmtilegt að borða
heilsusamlega fæðu.
Ráðgert er að öllum formsatriðum
vegna kaupanna verði lokið fyrir
árslok 2017. /HKr.
UTAN ÚR HEIMI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!