Bændablaðið - 22.06.2017, Page 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
en sýnt hefur verið fram á að gæði
mjólkurfitunnar versna er líður á
mjaltaskeiðið og mjólkin verður því
viðkvæmari fyrir meðhöndlun. Þá
lenda margir með mjaltaþjóna í því
að gefa lágmjólka kúm of oft heimild
til mjalta innan sólarhringsins og
þær eru því hugsanlega mjólkaðar
oftar en tvisvar á dag þrátt fyrir að
skila ekki nema 10-12 lítrum á dag.
Hlutfallsleg innblöndun lofts, og þar
með pískun mjólkurinnar, í þessa fáu
mjólkurlítra er miklu meiri en hjá
kúm sem skila að lágmarki 8 lítrum
við hverjar mjaltir.
Hvað er til ráða?
Þegar horft er til þeirra þátta sem
hafa megináhrif á magn FFS í mjólk
þá má gróflega flokka þá í þrennt:
tæknilega þætti, líffræðilega þætti og
bústjórnarlega þætti.
Í fyrsta lagi þarf að útiloka tæknilegu
þættina, sem er nokkuð einföld aðgerð
og fljótleg. Flestir bændur vona yfirleitt
að ástæður aukins magns FFS í mjólk
megi skýra með tækninni, enda oftast
auðvelt að laga slíkt. Því miður er þó
vandinn oftar en ekki bundinn við aðra
áhrifaþætti eða samspil margra þátta.
Það er þó afar mikilvægt í upphafi að
skoða og útiloka tæknilega þætti sem
geta haft sundrandi áhrif á fitukúlur
mjólkur.
Hér má nefna atriði eins og að
mæla loftblöndun inn í mjólkina og
skoða hvort einhversstaðar séu t.d.
loftlekar eða bilaðar dælur sem geta
pískað mjólkina á leið hennar frá
spenaendanum út í mjólkurtank.
Þá er alltaf kostur að forkæla
mjólkina og kæla hratt niður. Þetta
gerir fitukúlurnar stöðugri og
lípasinn vinnur heldur ekki hratt og
vel við lágan hita.
Þegar við horfum til kúnna
sjálfra er mikilvægt að þær fái
gott fóður sem eykur líkurnar
á því að kýrnar geti framleitt
mjólkurfitu af góðum gæðum, þ.e.
fitu sem þoli meðhöndlun betur.
Ennfremur er mikilvægt að tryggja
að mjólkurtankurinn kæli rétt og að
hrærukerfið sé rétt stillt.
Í öðru lagi þarf að skoða hvort
það sé eitthvað sem bendi til þess
að fóðrið sé að hafa neikvæð áhrif
á gæði mjólkurinnar og geri hana
viðkvæma fyrir tækninni sem notuð
er við mjaltir eða kælingu.
Í þriðja og síðasta lagi þarf svo
að skoða bústjórnarlega þætti. Hér
má sérstaklega nefna tvo þætti.
Annars vegar samþjöppun á burði
sem gerir það að verkum að á
búinu verða á sama tíma margar
kýr sem eru komnar langt inn í
mjaltaskeiðið. Þessar kýr skila
frá sér mjólk af verri gæðum og
því gætu þær í sameininingu haft
neikvæð áhrif á FFS. Hins vegar
eru þá þeir sem eru með mjaltaþjóna
og láta þá mjólka kýr sínar allt of
oft með áðurnefndum áhrifum á
mjólkurgæði kúa í lágri nyt sem og
neikvæðum áhrifum á mjólkurgæði
kúa sem eru komnar langt inn í
mjaltaskeiðið.
Snorri Sigurðsson
Mjólkurgæðasviði SEGES
sns@seges.dk
DO YOU LOVE CLEANING?
AÞ-Þrif is looking for people
to work in Selfoss.
PROFESSIONALISM
GOOD SERVICE
HONESTY
Punctual and efficient individual, between
the age of 20–40 years old with driving
license and no criminal record.
Must speak english and/or icelandic.
Challenging work in a multicultural environment.
If you are interested, please apply via
www.ath-thrif.is or email: gerda@ath-thrif.is
Hrossabændur - hestamenn!
Vantar hross til slátrunar á næstu vikum.
Forðist biðlista í haust.
Bjóðum tímabundið hækkað verð!
Sláturpantanir í síma 480 4100.
Sláturfélag Suðurlands
Selfossi
Losað um innflutningsbann á kjöti á milli Bandaríkjanna og Kína:
Snýst um milljarða dollara tekjur fyrir
bandarískan nautakjötsútflutning
– Kínverjar flytja í staðinn inn fulleldaðan kjúkling fyrir veitingahús og vinnslur
Bandarísk stjórnvöld reyna nú
að opna fyrir sölu á nautakjöti
til Kína eftir innflutningsbann
sem sett var á þar í landi í kjölfar
kúariðu sem kom upp á búum í
Evrópu og Bandaríkjunum 2003.
Bandaríkjamenn svöruðu því með
banni á innflutningi á kjúklingum
frá Kína.
Viðskiptateymi Donalds Trump
Bandaríkjaforseta með Wilbur Ross
viðskiptaráðherra í fararbroddi
hefur þegar stigið ákveðin skref til
að leysa þessa deilu að því er fram
kom á fréttasíðu USA Today fyrir
skömmu. Ljóst er að þetta skiptir
bandaríska nautgripabændur mjög
miklu máli, en árið 2003 var flutt út
nautakjöt frá Bandaríkjunum fyrir
3 milljarða dollara, eða sem svarar
um 300 milljarða íslenskra króna.
Útflutningsverðmætið hrapaði niður
í 1,1 milljarð dollara á árinu 2004 í
kjölfar innflutningsbanns Kínverja
samkvæmt tölum Food Safety News.
Kínverjar kveiktu vonir sl. haust
Bandaríski nautakjötsiðnaður-
inn hefur róið að því árum saman
að enduropna markaðinn í Kína.
Verulegur árangur náðist í september
á síðasta ári þegar kínversk stjórn-
völd lýstu yfir áhuga á að aflétta
innflutningsbanninu, en án þess þó
að tiltaka tímasetningu. Í kjölfar-
ið hófust viðræður um tæknilegar
útfærslur mögulegrar afléttingar
bannsins.
Bandaríkjamenn aflétta banni
á kjúklingainnflutningi
Það sem talið er geta liðkað fyrir
þessum viðskiptum sem möguleika
er vilyrði bandarískra yfirvalda fyrir
innflutningi á fullelduðum kjúkling-
um frá Kína sem tilkynnt var um fyrir
skömmu. Bandarískir kjötframleið-
endur hafa fagnað þessari ákvörðun,
enda telja þeir að Kínverjar séu
viljugir til að eyða enn meiru fyrir
innflutt kjöt frá Bandaríkjunum auk
kjöts frá Ástralíu og Brasilíu.
Heimild til að selja kínverskt
kjúklingakjöt í Bandaríkjunum
mun geta haft umtalsverð áhrif
á samkeppni með slíkar afurðir
á heimsvísu að mati Jim Sumner,
formanns viðskiptaráðs með
kjúklingakjöt og egg. Þess má
geta að Kínverjar lokuðu einnig
fyrir innflutning á kjúklingum frá
Bandaríkjunum 2015 í kjölfar ótta
við fuglaflensu.
Það vakti enn frekari væntingar í
málinu að skoðunarmenn frá banda-
ríska landbúnaðarráðuneytinu gáfu
kínverskum kjúklingasláturhúsum
grænt ljós eftir skoðunarferð þangað
í maí. Töldu þeir tryggt að matvæla-
öryggismál í sláturhúsunum væru
eins og best væri á kosið.
Þrátt fyrir afléttingu á innflutn-
ingsbanni á fullelduðu kjúklingakjöti
frá Kína, verður það ekki á boðstól-
um í verslunum fyrir almenning.
Það verður einungis flutt inn fyrir
veitingastaði og kjötvinnslur og þá
sem hráefni í ýmsa rétti eins og súpur.
Mjög strangar reglur munu áfram
gilda um allan innflutning á kjúklingi
frá Kína og hann mun aðeins fara inn
á sérstaklega skilgreindan markað,
að sögn Jim Sumners.
Nokkur gagnrýni hefur verið á
þessi áform og hefur verið bent á
að vinnslan í Kína sé ekki alltaf sem
sýnist. Það sýni m.a. ítrekuð tilfelli á
fuglaflensusmiti. Þá séu merkingar
um uppruna og annað ekki alltaf eins
og kröfur gera ráð fyrir.
Milljarða dollara viðskipti í húfi
Greinilegt er að mikill þrýstingur
er af hálfu nautakjötsútflytjenda í
Bandaríkjunum á að liðkað verði
til fyrir innflutningi á kínverskum
kjúklingi. Enda er til mikils að vinna
ef hægt væri að hífa þann útflutning
í fyrra horf og auka útflutningstekjur
á nautakjöti um 2 milljarða dollara.
Þær tekjur gætu jafnvel orðið enn
meiri í ljósi stóraukins innflutnings
Kínverja á nautakjöti á síðustu
árum.
„Þetta er nokkuð sem við
höfum misst af í mörg ár og höfum
verið að reyna að vinna aftur á
síðastliðnum 13 árum,“ segir Kent
Bacus, yfirmaður alþjóðaviðskipta
og markaðsaðgengis hjá National
Cattlemen's Beef Association. /HKr.
Bandaríkjamenn vonast til að vinna aftur markað fyrir nautakjöt í Kína upp
á milljarða dollara.
Kínversk kjúklingasláturhús hafa
fengið grænt ljós á sína starfsemi
Hér má nefna atriði eins og að mæla loftblöndun inn í mjólkina og skoða
hvort einhvers staðar séu t.d. loftlekar eða bilaðar dælur sem geta pískað
mjólkina á leið hennar frá spenaendanum út í mjólkurtank.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta