Bændablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
08017, Strákur 10011, Fossdal
10040, Kústur 10061, Lúður
10067, Sólon 10069, Dropi 10077,
Neptúnus 10079, Úranus 10081,
Bætir 10086 og Úlli 10089. Þessi
naut standa öll vel við fyrri dóm og
breyttust lítið í mati nú. Það er því
óþarfi að fjölyrða um kosti þeirra
og galla sem áður hafa verið raktir.
Sex nautsfeður
Nautsfeður til notkunar næstu
mánuði verða sex talsins. Það eru
Strákur 10011, Lúður 10067, Dropi
10077, Úranus 10081, Úlli 10089
og Gýmir 11007. Ekkert þessara
nauta er samfeðra sem breikkar
notkunargrundvöllinn og hamlar
gegn skyldleikarækt eins og kostur
er.
Notkun óreyndra nauta
Eins og gjarnan vill verða þegar
góð og öflug reynd naut koma til
notkunar dvínar áhugi á notkun
óreyndra nauta.
Á síðustu mánuðum hefur notkun
óreyndra nauta sigið niður á við og
er það miður. Kynbótaskipulagið
gerir ráð fyrir jafnri notkun reyndra
og óreyndra nauta og því hlutfalli
er mikilvægt að halda til þess að
geta prófað óreyndu nautin með
viðunandi hætti auk þess að halda
uppi fjölda þeirra. Við verðum líka
að hafa í huga að meðal þeirra er
að finna bestu valkostina hverju
sinni. Miklar erfðaframfarir sýna
okkur glöggt að með hverri kynslóð
aukast gæði gripanna og því ljóst
að naut sem fæðast í dag taka þeim
eldri fram í flestum ef ekki öllum
þáttum. Það er einnig brýnt að notuð
séu sem flest ungnaut á hverju og
einu búi eða eins mörg og bústærð
leyfir. Þetta dreifir áhættunni og
gerir afkvæmaprófanir dreifðari
og betri.
Erfðaframfarir
Við skulum nú aðeins líta á
hvernig gengur í ræktunarstarfinu.
Erfðaframfarir eru birtar hér á
þremur myndum sem sýna framfarir
í nokkrum völdum eiginleikum. Á
þeim má glöggt sjá gríðarmiklar
framfarir í afurðagetu sem og
öðrum eiginleikum. Framfarir
í júgurgerð hafa einnig verið
stórstígar á undanförnum árum og
í raun er að sjá framfarir í öllum
eiginleikum nema frjósemi. Þar er
því miður hægt og bítandi að síga á
ógæfuhliðina án þess að um neinar
hamfarir sé ræða. Hins vegar eru
ákveðnar viðvörunarbjöllur farnar
að hringja og tímabært að skoða á
hvern hátt er hægt að snúa þessari
þróun við. Fagráð hefur um nokkra
hríð rætt möguleika á því að styrkja
mat á þessum eiginleika.
Eins og staðan er í dag byggir
kynbótamat fyrir frjósemi eingöngu
á bili milli burða. Þetta þýðir að
áreiðanlegt mat kemur mjög seint
inn eða ekki fyrr en notkun á
viðkomandi nauti hefur verið hætt.
Kosturinn við bil á milli burða er
hins vegar ótvírætt sá að þetta er
einhver best mælanlegi eiginleiki
sem völ er á hvað frjósemi varðar.
Hins vegar er full ástæða til að
skoða aðra þætti í frjósemi og má
þar velta upp ýmsum mælikvörðum
eins og bili frá burði til síðustu
sæðingar eða bili frá fyrstu til
síðustu sæðingar svo eitthvað sé
nefnt.
Sá galli er á gjöf Njarðar
að mælikvarðar sem byggja á
sæðingagögnum eru ekki eins
áreiðanlegir og bil milli burða.
Þetta á ekki síst við hér þar sem
notkun heimanauta er allmikil og
víðtæk. Í alltof mörgum tilvikum
er ekki vitað hvort síðasta sæðing
sé raunverulega síðasta sæðing fyrr
en það er staðfest með burði. Þarna
þarf því að meta kosti og galla hinna
mismunandi mælikvarða á frjósemi
og skoða vel hversu áreiðanlegir
þeir eru áður en endanlegar
ákvarðanir um breytingu á mati á
frjósemi verða teknar.
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Það er erfitt að rækta salat á jafn
norðlægum breiddargráðum
og Ísland er, vegna þess að
þar eru stuttir dagar og lítil
birta frá miðjum september
og fram í miðjan apríl en lágur
náttúrulegur ljósstyrkur er
helsti takmarkandi þáttur fyrir
vetrarræktun í gróðurhúsum.
Því er viðbótarlýsing nauðsynleg
til að viðhalda jafnri uppskeru
yfir árið og gæti gert innflutning
frá suðlægari breiddargráðum
óþarfan yfir vetrartímann. En
að hausti og vetri er erfitt að fá
rauðan lit á rautt salat og því eru
fullnægjandi leiðbeiningar vegna
vetrarræktunar á salat ekki til og
þarfnast frekari þróunar.
Tilraun með salat var gerð
veturinn 2014, í tilraunagróðurhúsi
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Reykjum og plöntur voru ræktaðar
undir topplýsingu frá háþrýsti-
natríumlömpum (HPS) og / eða undir
LED ljósi. Ljósameðferð sem skilaði
góðum rauðum lit á salati með góðri
uppskeru var alltaf undir HPS og
síðustu viku undir LED ljósum.
Salat var rauðara þegar LED ljós er
notað í lokin en það borgar sig ekki
að nota LED ljós á fyrri hluta, því að
áhrif þess á salatið eyðast ef seinna
er notað HPS ljós og rauði liturinn
var jafnvel minni í samanburði við
plöntur sem fengu bara HPS ljós.
Tvöfalt meira kWh þurfti með
eingöngu HPS ljós í samanburði við
eingöngu LED ljós sem skilaði hæstu
uppskeru en uppskera með eingöngu
LED var um ¼ minni (Stadler, 2015).
Í framhaldstilraun var því lagt
upp með tvær spurningar. Fyrsta
spurning, er hægt að auka uppskeru
salats undir LED ljósi með því að
auka kWh og einnig hækka hitastig
og fá samt hagkvæma orkunýtingu
og orkusparnað (tilraun A). Og
önnur spurning er hvort blönduð
lýsing, HPS og LED ljóss, skili jafn
mikilli uppskeru með rauðan lit í
samanburði við eingöngu HPS ljós
og auki orkusparnað (tilraun B).
Verkefnisstjóri var Christina
Stadler og verkefnið var unnið í
samstarfi við salatbændur og styrkt
af Sambandi garðyrkjubænda.
Tilraunaskipulag
Tilraun með rautt salat (cv.
Carmoli) var gerð veturinn 2016,
frá byrjun október til byrjun
nóvember (tilraun A) og frá miðjum
nóvember til miðs desember
(tilraun B), í tilraunagróðurhúsi
Landbúnaðarháskóla Íslands að
Reykjum. Plöntur voru ræktaðar í
NFT rennu í fjórum endurtekningum
undir topplýsingu frá háþrýsti-
natríumlömpum (HPS) og / eða undir
LED ljósi í 18 klst. Daghiti var einni
gráðu meiri í LED klefa í samanburði
við HPS klefa og stig af μmol var
27 % hærri við LED í tilraun A. Í
tilraun B var stig af μmol og hita
(daghiti 19 °C og næturhiti 15 °C)
milli meðferðir eins.
Tilraun A:
1. HPS 120 W/m2, (Philips peru,
600 W), 132 μmol/m2/s, 19 /
15°C (dag / nótt); 800 ppm CO2
2. LED (Fiona lighting, 80 % rauð,
20 % blá), 167 μmol/m2/s, 20 /
15°C (dag / nótt); 800 ppm CO2
Tilraun B:
1. HPS 120 W/m2, (Philips peru,
600 W), 132 μmol/m2/s, 19 /
15°C (dag / nótt); 800 ppm CO2
1. HPS 96 W/m2 (Philips peru,
600 W) + LED (Fiona lighting,
80 % rauð, 20 % blá), 136 μmol/
m2/s, 19 / 15°C (dag / nótt); 800
ppm CO2
Salatplöntur fengu næringu með
dropavökvun. Plöntuþéttleiki var 68,
40, 28 eða 22 plöntur á fermetra,
eftir eina, tvær, þrjár eða fjórar vikur
eftir gróðursetningu. Í tilraun A og
B voru áhrif ljósmeðferð á uppskeru
og á rauðan lit prófuð og framlegð
reiknuð út.
Niðurstöður og umræða
Í tilraun A var uppskera af salati eftir
27 daga meiri hjá plöntum undir HPS
ljósi (mynd 1). Í lok vaxtartímabils
fengust 121 g/haus uppskeru við
HPS ljósi en 108 g/haus við LED
ljósi. Uppskera minnkaði því um
meira en 10 % þegar plöntunar voru
ræktað undir LED. Í tilraun B var
uppskera af salati nánast sambærileg
milli notkunar á HPS (122 g/haus) og
LED (115 g/haus) ljósa og eingöngu
með HPS ljósi.
Hærra númer samsvarar salati
við meiri rauðan lit. Eingöngu LED
ljós skilaði betri rauðum lit á salatið
í samanburður við eingöngu HPS ljós.
Hins vegar var rauði liturinn aðeins
meiri þegar bætt var LED ljós við
HPS ljós (mynd 2).
Rafmagnsnotkun var 37 % minni
við LED ljós miðað við HPS ljós í
tilraun A. Nýting kWh í uppskeru
var marktækt hærri samanborið við
notkun af HPS ljósi (mynd 3). Hins
vegar var uppskera á kWh nánast eins
milli meðferða í tilraun B.
Einum sólarhring lengra
vaxtarskeið væri nauðsynlegt við
LED ljós og við samhliða notkun á
HPS og LED ljósum til að fá sömu
uppskeru eins og við ræktun undir
eingöngu HPS ljósi. Eingöngu
notkun af LED ljósi myndi leiða
til örlítið hærri framlegðar. Jafnvel
þó að framlegð minnkaði um 50 %
samhliða notkun á HPS og LED
ljósum miðað við notkun eingöngu
með HPS ljósi. Hins vegar eru þessar
niðurstöður mjög háðar verði á LED
ljósum og þarf því að dæma varlega.
Ályktun
Það virðist vera að fullnægjandi
rauður litur og á sama tíma góða
uppskeru sé ekki hægt að fá við
lýsingu með HPS lampar og / eða
LED.
Frá gæða- og hagkvæmnis-
sjónarmiði er ekki mælt með því að
nota LED ljós miðað við núverandi
stöðu. Frekari rannsóknir um áhrif
LED lýsingu á grænmeti eru þörf.
Tilraunir með LED frá
mismunandi fyrirtækjum þurfa að fara
fram áður en endalegar niðurstöður
og ráðleggingar varðandi notkun á
LED ljósum er hægt að gefa. Haldið
verður áfram með tilraunir við LED
ljós í tilraunahúsi LbhÍ. Gerð verður
jarðarberjatilraun við LED ljós frá
fyrirtæki Philips í samanburður við
HPS ljós í haust/vetur 2017/2018
og niðurstöður verður kynntar í
Bændablaðinu þegar þær liggja fyrir.
Heimildaskrá
Stadler, C., 2015: Áhrif LED
lýsingar á vöxt, uppskeru og
gæði gróðurhúsasalats að vetri.
Lokaskýrsla, Rit LbhÍ nr. 61, ISSN
1670-5785, 52 bls.
Mynd 1: Uppskera af salati í tilraun A og B eftir mismunandi ljósmeðferðir.
Mynd 2: Rauði liturinn á rauðu salati fjórum vikum eftir útplöntun eftir mis-
Mynd 3: Nýting kWh í uppskeru á rauðu salati fjórum vikum eftir útplöntun
Christina Maria Stadler
auðlinda- og
umhverfsideild LbhÍ
christina@lbhi.is
Salatræktun undir LED ljósi