Bændablaðið - 22.06.2017, Side 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
Laugardaginn 10. júní frumsýndi
Askja nýjan Benz GLA og að lok-
inni frumsýningu fékk ég dísil-
bílinn með kraftmestu vélinni til
prufuaksturs yfir helgina.
Þegar ég hef hugsað um Benz þá
hefur verðið verið í hærra lagi, enda
eðlilegt þar sem að nafnið eitt og sér
hefur alltaf staðið fyrir gæði, góða
endingu og áreiðanleika.
Verðið kom á óvart
Fyrirfram hafði ég haldið að verðið
væri miklu hærra, en sökum stöðu
gengis sem aldrei hefur verið hag-
stæðara kostar ódýrasti GLA dísil-
bíllinn með 109 hestafla vél frá
4.660.000, en bíllinn sem ég prófaði
var með 177 hestafla vél og kostar
6.040.000. Einnig er í boði bensín
GLA bílar sem eru frá 122 hestöfl
og upp í 381 hestafl og kosta frá
4.420.000 upp í 9.010.000.
Einstaklega hljóðlátur og
þægilegur í akstri
Eins og venja er hjá mér þá prófaði
ég bílinn eitthvað yfir 100 km bæði
á slitlagi og á malarvegi. Þegar
bíllinn er keyrður á slitlagi heyrist
nánast ekkert umhverfishljóð
inni í bílnum og greinilegt að
bíllinn er vel hljóðeinangraður. Á
lausum malarvegi heyrðist aðeins
steinahljóð upp undir bílinn, en ég
verð að viðurkenna að þessi bíll er
sennilega sá hljóðlátasti sem ég hef
keyrt á malarvegi sé tekið mið af
veghljóði á malarvegi.
Þó að hjólbarðarnir séu ekki
með mikla fjöðrun (lágur prófíll)
þá var fjöðrunin skemmtileg á
malarveginum og fann maður
lítið fyrir djúpum holunum sem
á veginum voru. Á hlykkjóttum
malbikuðum vegi beitti ég bílnum
svolítið vel í beygjunum og var
tilfinningin ekkert ósvipuð og
að keyra kraftmikinn sportbíl á
skemmtilegum beygjukafla, svo vel
lá bíllinn á malbikinu.
Eyðslan lítil miðað við stóra vél
Eins og með flesta bíla sem ég
prófa þá skipti ég akstrinum upp í
innanbæjarakstur og langkeyrslu, en
fyrstu 30 km voru innanbæjar og var
eyðsla mín 7,8 lítrar miðað við 100
km á meðalhraða upp á 30. Næstu
50 km voru í blönduðum akstri á
meðalhraðanum 47 og var eyðslan
þá 7,0 lítrar, að lokum ók ég rúma
20 km á meðalhraða upp á 78 og
var þá eyðslan 4,6 lítrar. Sjálfur á
ég beinskiptan bíl með 178 hestafla
vél sem eyðir töluvert meiru.
Skemmtileg sjálfskipting og
valmöguleikar á krafti vélarinnar
Sjálfskiptingin er sjö þrepa og finnur
maður nánast ekkert fyrir því þegar
bíllinn skiptir um þrep nema maður
sé með kraft vélarinnar stilltan á
Sport stillinguna sem er afgerandi
kraftmesta og snarpasta stillingin á
vélinni, en í boði eru fimm stillingar
sem stilla saman vél og skiptingu
(Eco, Comfort, Individual, Sport
og Offroad). Með stillt á offroad
stillinguna birtist á skjánum í
mælaborðinu góðar upplýsingar
um halla á bílnum, bæði til hliðar
og fram og aftur.
Talandi um upplýsingaskjáinn
þá er gott að lesa upplýsingar af
skjánum og myndin skörp. Þegar
bakkmyndavélin er á sést ofan
á toppinn á dráttarkróknum sem
auðveldar mikið þegar bakkað er
að kerrutengi.
Fann aðeins tvo ókosti
Í nánast alla staði var ég ánægður og
hrifinn af bílnum.
Plúsar:
Það er gott fótapláss, góð sæti
(hef að vísu aldrei verið hrifinn
af leðursætum), hliðarspeglar eru
ekki stórir, en sýna vel aftur fyrir
bílinn.
Mínusar:
Farangursrýmið mætti vera stærra
en er samt stærra en ég hafði
ímyndað mér áður en ég opnaði
afturhlerann. Stærsti ókosturinn
er að í bílnum er ekkert varadekk,
bara rafmagnspumpa og þéttiefni
til að setja í dekk (eitthvað sem
nánast allir sem ég hef séð klúðra
þegar þeir reyna að nota).
Heilt á litið er þetta fínn
fjórhjóladrifinn „jepplingur“ á afar
hagstæðu verði. Hægt væri að skrifa
mikið í viðbót um þennan bíl, en fyrir
áhugasama þá er hægt að nálgast
nánari upplýsingar um Benz GLA á
vefsíðunni www.askja.is.
Benz GLA 220 d 4MATIC. Myndir / HLJ
Bakkmyndavélin er góð og afar þægilegt er að bakka að kerru með henni
þar sem það sést á endann á króknum fyrir miðri mynd.
hliðar og fram og aftur.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Stillingatakkarnir fyrir sætin eru á
Hæð 1.494 mm
Breidd 1.804 mm
Lengd 4.523mm
Helstu mál og upplýsingar