Bændablaðið - 22.06.2017, Qupperneq 46

Bændablaðið - 22.06.2017, Qupperneq 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017 Laugardaginn 10. júní frumsýndi Askja nýjan Benz GLA og að lok- inni frumsýningu fékk ég dísil- bílinn með kraftmestu vélinni til prufuaksturs yfir helgina. Þegar ég hef hugsað um Benz þá hefur verðið verið í hærra lagi, enda eðlilegt þar sem að nafnið eitt og sér hefur alltaf staðið fyrir gæði, góða endingu og áreiðanleika. Verðið kom á óvart Fyrirfram hafði ég haldið að verðið væri miklu hærra, en sökum stöðu gengis sem aldrei hefur verið hag- stæðara kostar ódýrasti GLA dísil- bíllinn með 109 hestafla vél frá 4.660.000, en bíllinn sem ég prófaði var með 177 hestafla vél og kostar 6.040.000. Einnig er í boði bensín GLA bílar sem eru frá 122 hestöfl og upp í 381 hestafl og kosta frá 4.420.000 upp í 9.010.000. Einstaklega hljóðlátur og þægilegur í akstri Eins og venja er hjá mér þá prófaði ég bílinn eitthvað yfir 100 km bæði á slitlagi og á malarvegi. Þegar bíllinn er keyrður á slitlagi heyrist nánast ekkert umhverfishljóð inni í bílnum og greinilegt að bíllinn er vel hljóðeinangraður. Á lausum malarvegi heyrðist aðeins steinahljóð upp undir bílinn, en ég verð að viðurkenna að þessi bíll er sennilega sá hljóðlátasti sem ég hef keyrt á malarvegi sé tekið mið af veghljóði á malarvegi. Þó að hjólbarðarnir séu ekki með mikla fjöðrun (lágur prófíll) þá var fjöðrunin skemmtileg á malarveginum og fann maður lítið fyrir djúpum holunum sem á veginum voru. Á hlykkjóttum malbikuðum vegi beitti ég bílnum svolítið vel í beygjunum og var tilfinningin ekkert ósvipuð og að keyra kraftmikinn sportbíl á skemmtilegum beygjukafla, svo vel lá bíllinn á malbikinu. Eyðslan lítil miðað við stóra vél Eins og með flesta bíla sem ég prófa þá skipti ég akstrinum upp í innanbæjarakstur og langkeyrslu, en fyrstu 30 km voru innanbæjar og var eyðsla mín 7,8 lítrar miðað við 100 km á meðalhraða upp á 30. Næstu 50 km voru í blönduðum akstri á meðalhraðanum 47 og var eyðslan þá 7,0 lítrar, að lokum ók ég rúma 20 km á meðalhraða upp á 78 og var þá eyðslan 4,6 lítrar. Sjálfur á ég beinskiptan bíl með 178 hestafla vél sem eyðir töluvert meiru. Skemmtileg sjálfskipting og valmöguleikar á krafti vélarinnar Sjálfskiptingin er sjö þrepa og finnur maður nánast ekkert fyrir því þegar bíllinn skiptir um þrep nema maður sé með kraft vélarinnar stilltan á Sport stillinguna sem er afgerandi kraftmesta og snarpasta stillingin á vélinni, en í boði eru fimm stillingar sem stilla saman vél og skiptingu (Eco, Comfort, Individual, Sport og Offroad). Með stillt á offroad stillinguna birtist á skjánum í mælaborðinu góðar upplýsingar um halla á bílnum, bæði til hliðar og fram og aftur. Talandi um upplýsingaskjáinn þá er gott að lesa upplýsingar af skjánum og myndin skörp. Þegar bakkmyndavélin er á sést ofan á toppinn á dráttarkróknum sem auðveldar mikið þegar bakkað er að kerrutengi. Fann aðeins tvo ókosti Í nánast alla staði var ég ánægður og hrifinn af bílnum. Plúsar: Það er gott fótapláss, góð sæti (hef að vísu aldrei verið hrifinn af leðursætum), hliðarspeglar eru ekki stórir, en sýna vel aftur fyrir bílinn. Mínusar: Farangursrýmið mætti vera stærra en er samt stærra en ég hafði ímyndað mér áður en ég opnaði afturhlerann. Stærsti ókosturinn er að í bílnum er ekkert varadekk, bara rafmagnspumpa og þéttiefni til að setja í dekk (eitthvað sem nánast allir sem ég hef séð klúðra þegar þeir reyna að nota). Heilt á litið er þetta fínn fjórhjóladrifinn „jepplingur“ á afar hagstæðu verði. Hægt væri að skrifa mikið í viðbót um þennan bíl, en fyrir áhugasama þá er hægt að nálgast nánari upplýsingar um Benz GLA á vefsíðunni www.askja.is. Benz GLA 220 d 4MATIC. Myndir / HLJ Bakkmyndavélin er góð og afar þægilegt er að bakka að kerru með henni þar sem það sést á endann á króknum fyrir miðri mynd. hliðar og fram og aftur. É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Stillingatakkarnir fyrir sætin eru á Hæð 1.494 mm Breidd 1.804 mm Lengd 4.523mm Helstu mál og upplýsingar

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.