Bændablaðið - 22.06.2017, Síða 48

Bændablaðið - 22.06.2017, Síða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017 „Við keyptum jörðina árið 1998 en þá var hér rekið kúabú. Bjuggum með kýrnar til ársins 2005 en skiptum þá yfir í hrossarækt og tamningar og höfum rekið tamningastöð síðan,“ segja Birna og Sigurgeir í Varmalandi. „Keyptum vatnsgöngubretti fyrir hesta árið 2012 og tökum við hrossum í þjálfun fyrir fólk. Þurrkklefa fengum við svo árið 2016 en í honum er víbragólf, heitur blástur og infra- rautt ljós.“ Býli: Varmaland. Staðsett í sveit: Sæmundarhlíð í Skagafirði. Ábúendur: Birna M. Sigurbjörns- dóttir og Sigurgeir F. Þorsteinsson. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum þrjú börn: Hannes Brynjar, Jón Helga, Sonju Sigurbjörgu og tvö barnabörn, Viktoríu Huld og Kötlu Dís. Tveir hundar, Gormur og Snotra. Stærð jarðar? Jörðin er 400 ha en 200 ha innan girðingar og ræktað land 27 ha. Gerð bús? Hrossarækt og sauðfé. Fjöldi búfjár og tegundir? Um 50–60 hross og 90 kindur, svo eru alltaf um 20 hross í tamningu á hverjum tíma. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Farið á fætur um kl. 6.30, hirðing á skepnum, mokað og gefið. Svo er tekið til við tamningar og að setja hross á vatnsbrettið. Dagurinn endar svo á að gefa kvöldgjöfina og moka. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Vorið er alltaf skemmtilegur tími og einnig haustið, að fara í göngur og ragast í fé. Einnig er mjög gaman að heyja í góðum þurrki en jafn leiðinlegt í óþurrki. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Með svipuðu sniði en vonandi að temja meira fyrir okkur sjálf. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Okkur finnst að forustan mætti vera beittari og við bændur vera sýnilegri í fjölmiðlum og í samfélagsumræðunni. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Vel ef rétt er á málum haldið. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Innanlandsmarkaður er okkar markaður og að honum eigum við að hlúa sérstaklega en teljum að tækifærin séu víða því varan sem við bjóðum er svo góð. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur og smá grænmeti. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjöt. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar hryssan okkar, Þokkadís frá Varmalandi, fór í fyrstu verðlaun með 8,50 fyrir hæfileika 8,07 fyrir byggingu og 8,33 í aðaleinkunn. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Tómatsalat með marglitum tómötum og orkukaka Þetta sumarlega salat er einfalt að gera en er ótrúlega gott. Það er hægt að vera með tómatana í öllum stærðum og litum. Til að skerpa á bragðinu er gott að salta aðeins tómatana. Sumir tómatarnir eru skornir þunnt, en aðrir í bita og báta. Tómatsalat með marglitum tómötum, mozzarella og basiliku › 500 g blandaðir þroskaðar tómatar, (mismunandi stærðir og litir) › Sjávarsalt og fersk malaður svartur pipar › Smá oregano (þurrkað) › Rauðvíns- eða balsamikedik › Jómfrúarólífuolía › 1 hvítlaukur, skrældur og rifinn fínt › 1 ferskur rauður chili Aðferð Setjið hluta af tómötunum í stóra skál og stráið oregano yfir. Gerið dressingu, með einum hluta af ediki á móti þremur hlutum olíu, hvítlauk og chili. Blandið hluta af tómötunum saman við dressinguna – nægilega mikið til að það þeki vel. Þetta er frábært tómatasalat, sem er algjörlega ljúffengt að borða eitt og sér. Það er líka gott að borða með sneiðum af mozzarellaosti (gott að rífa niður og blanda með smá rjóma eða einhverju grilluðu brauði). Orkukaka með jarðarberjum og sykurpúðum › 4 súkkulaði-orkustykki › 2 msk. smjör (eða kókosolía) › 1 lítill þroskaður avókadó › 4 msk. kakóduft › 4 msk. hlynsíróp eða agavesíróp › 1 msk. kókosolía (2 msk ef sleppt er smjöri fyrir botninn) › Um það bil 20 jarðarber › Valfrjálst: dökkt súkkulaði brætt með smá kókosmjólk; bræðið súkkulaðið og þynnið út með kókosmjólk til að mýkja það við stofuhita. Aðferð Skerið orkustykkin niður og setj- ið í matvinnsluvél. Myljið í mat- vinnsluvélinni og bætið tveimur matskeiðum af bræddu smjöri eða kókosolíu saman við. Setjið blönduna í form (fjögur lítil eða eitt stærra) Gerið „mousse-fyllingu“ með því að blanda avókadó, kakódufti, sætuefni og kókosolíu saman í matvinnsluvél. Fylliið formin með orkustykkja- blöndunni með „mousse-blöndunni“ og efst á toppinn fara jarðarberin. Skreytið með súkkulaði- og kókosblöndunni – og jafnvel sykurpúðum ef á að fara í óhollustuna. Valfrjálst: hitið smá brætt súkkulaði, bætið kókosmjólk við (gott er að hita hana örlítið í potti eða örbylgjuofn fyrst). Bætið blöndunni ofan á berin og á milli til að fá aukinn sælkerabrag á kökuna! Sykurpúðar › 1 og 1/4 bolli vatn, skipt í tvo hluta › 1/2 bolli jarðarberjamauk (frosin marin jarðarber) › 4 blöð matarlím (gelatín) › 3 bollar sykur › 1 og 1/4 bolli ljóst kornsíróp › 1/3 bolli flórsykur › 1/3 bolli maísenamjöl › Ferskt jarðarberjamauk gerir þessa sykurpúða að himneskri bombu sem bráðnar í munninum. Þið þurfið að geyma sykurpúðana í að minnsta kosti 8–10 klukkustundir áður en hægt er að klippa þá niður í kubba, svo það er góð hugmynd að gera þetta kvöldið áður en borðhald verður. 1. Undirbúið pönnu með því að klæða hana með álpappír, plastfilmu eða bök- unarpappír. Yfirborðið er úðað með fitu eða ögn af olíu. 2. Setjið ½ bolla af vatni og jarðar- berjamauki (gott að nota frosin ber) í hrærivélaskál. Leggið matarlímið í bleyti í að minnsta kosti fimm mínútur. 3. Setjið hinn hluta vatnsins (¾ bolla af vatni), síróp og sykur í meðalstóran pott yfir meðalháan hita. 4. Hrærið í blöndunni til að leysa upp sykurinn og setjið kjöthitamæli ofan í. 5. Leyfið blöndunni að sjóða án þess að hræra þar til hún nær 121 gráðu á hitamæl- inum. Hellið þessu saman við matarlímið sem búið er að kreista vatnið úr og setjið í hrærivélina. Passið að matarlímið og maukið sé vel blandað saman. 6. Verið varkár, þar sem sírópið er mjög heitt. 7. Hækkaðu hitann þar til blandan er orðin loftmikil og frauðkennd (um 10 mínútur). Helltu sykurpúðablöndunni á pönnuna með filmunni sléttri ofan á. Látið þetta hvíla við stofuhita í að minnsta kosti tíu klukkustundir. 8. Blandið saman flórsykur og korn- sterkju (maísenamjöli) saman og dreifið yfir. 9. Daginn eftir. Takið álpappír, plastfilm una eða smjörpappírinn af púðunum og stráið smá flórsykurs- og kornsterkjudufti ofan á. Klippið púðana í bita með skærum. Geymið púðana í þurrum, loftþéttum umbúðum á þéttum, þurrum stað. Ekki má geyma þá í kæli eða á mjög rökum stað. Ef púðarnir blotna upp gæti verið nóg að strá smá meira dufti yfir. Skreytið kökur eða borðið beint. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Varmaland

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.