Bændablaðið - 22.06.2017, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júní 2017
„Við keyptum jörðina árið 1998 en
þá var hér rekið kúabú. Bjuggum
með kýrnar til ársins 2005 en
skiptum þá yfir í hrossarækt
og tamningar og höfum rekið
tamningastöð síðan,“ segja Birna
og Sigurgeir í Varmalandi.
„Keyptum vatnsgöngubretti
fyrir hesta árið 2012 og tökum
við hrossum í þjálfun fyrir fólk.
Þurrkklefa fengum við svo árið
2016 en í honum er víbragólf, heitur
blástur og infra- rautt ljós.“
Býli: Varmaland.
Staðsett í sveit: Sæmundarhlíð í
Skagafirði.
Ábúendur: Birna M. Sigurbjörns-
dóttir og Sigurgeir F. Þorsteinsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við eigum þrjú börn: Hannes Brynjar,
Jón Helga, Sonju Sigurbjörgu og tvö
barnabörn, Viktoríu Huld og Kötlu
Dís. Tveir hundar, Gormur og Snotra.
Stærð jarðar? Jörðin er 400 ha en
200 ha innan girðingar og ræktað
land 27 ha.
Gerð bús? Hrossarækt og sauðfé.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
50–60 hross og 90 kindur, svo eru
alltaf um 20 hross í tamningu á
hverjum tíma.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Farið á fætur um kl. 6.30, hirðing
á skepnum, mokað og gefið. Svo er
tekið til við tamningar og að setja
hross á vatnsbrettið.
Dagurinn endar svo á að gefa
kvöldgjöfina og moka.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Vorið er alltaf
skemmtilegur tími og einnig
haustið, að fara í göngur og ragast
í fé.
Einnig er mjög gaman að heyja
í góðum þurrki en jafn leiðinlegt í
óþurrki.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Með svipuðu sniði en vonandi
að temja meira fyrir okkur sjálf.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Okkur
finnst að forustan mætti vera
beittari og við bændur vera
sýnilegri í fjölmiðlum og í
samfélagsumræðunni.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Vel ef rétt er á málum haldið.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra
búvara? Innanlandsmarkaður
er okkar markaður og að honum
eigum við að hlúa sérstaklega en
teljum að tækifærin séu víða því
varan sem við bjóðum er svo góð.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ostur og smá grænmeti.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambakjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar hryssan okkar,
Þokkadís frá Varmalandi, fór í
fyrstu verðlaun með 8,50 fyrir
hæfileika 8,07 fyrir byggingu og
8,33 í aðaleinkunn.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Tómatsalat með marglitum tómötum og orkukaka
Þetta sumarlega salat er einfalt að
gera en er ótrúlega gott.
Það er hægt að vera með tómatana
í öllum stærðum og litum. Til að
skerpa á bragðinu er gott að salta
aðeins tómatana. Sumir tómatarnir
eru skornir þunnt, en aðrir í bita og
báta.
Tómatsalat með marglitum
tómötum, mozzarella og basiliku
› 500 g blandaðir þroskaðar tómatar,
(mismunandi stærðir og litir)
› Sjávarsalt og fersk malaður svartur
pipar
› Smá oregano (þurrkað)
› Rauðvíns- eða balsamikedik
› Jómfrúarólífuolía
› 1 hvítlaukur, skrældur og rifinn fínt
› 1 ferskur rauður chili
Aðferð
Setjið hluta af tómötunum í stóra
skál og stráið oregano yfir. Gerið
dressingu, með einum hluta af ediki
á móti þremur hlutum olíu, hvítlauk
og chili. Blandið hluta af tómötunum
saman við dressinguna – nægilega
mikið til að það þeki vel.
Þetta er frábært tómatasalat, sem er
algjörlega ljúffengt að borða eitt og
sér. Það er líka gott að borða með
sneiðum af mozzarellaosti (gott að
rífa niður og blanda með smá rjóma
eða einhverju grilluðu brauði).
Orkukaka með jarðarberjum
og sykurpúðum
› 4 súkkulaði-orkustykki
› 2 msk. smjör (eða kókosolía)
› 1 lítill þroskaður avókadó
› 4 msk. kakóduft
› 4 msk. hlynsíróp eða agavesíróp
› 1 msk. kókosolía (2 msk ef sleppt er
smjöri fyrir botninn)
› Um það bil 20 jarðarber
› Valfrjálst: dökkt súkkulaði brætt með
smá kókosmjólk; bræðið súkkulaðið
og þynnið út með kókosmjólk til að
mýkja það við stofuhita.
Aðferð
Skerið orkustykkin niður og setj-
ið í matvinnsluvél. Myljið í mat-
vinnsluvélinni og bætið tveimur
matskeiðum af bræddu smjöri eða
kókosolíu saman við. Setjið blönduna
í form (fjögur lítil eða eitt stærra)
Gerið „mousse-fyllingu“ með því að
blanda avókadó, kakódufti, sætuefni
og kókosolíu saman í matvinnsluvél.
Fylliið formin með orkustykkja-
blöndunni með „mousse-blöndunni“
og efst á toppinn fara jarðarberin.
Skreytið með súkkulaði- og
kókosblöndunni – og jafnvel
sykurpúðum ef á að fara í óhollustuna.
Valfrjálst: hitið smá brætt súkkulaði,
bætið kókosmjólk við (gott er að hita
hana örlítið í potti eða örbylgjuofn
fyrst). Bætið blöndunni ofan á berin
og á milli til að fá aukinn sælkerabrag
á kökuna!
Sykurpúðar
› 1 og 1/4 bolli vatn, skipt í tvo hluta
› 1/2 bolli jarðarberjamauk (frosin
marin jarðarber)
› 4 blöð matarlím (gelatín)
› 3 bollar sykur
› 1 og 1/4 bolli ljóst kornsíróp
› 1/3 bolli flórsykur
› 1/3 bolli maísenamjöl
› Ferskt jarðarberjamauk gerir þessa
sykurpúða að himneskri bombu sem
bráðnar í munninum.
Þið þurfið að geyma sykurpúðana í
að minnsta kosti 8–10 klukkustundir
áður en hægt er að klippa þá niður í
kubba, svo það er góð hugmynd að
gera þetta kvöldið áður en borðhald
verður.
1. Undirbúið pönnu með því að klæða
hana með álpappír, plastfilmu eða bök-
unarpappír. Yfirborðið er úðað með fitu eða
ögn af olíu.
2. Setjið ½ bolla af vatni og jarðar-
berjamauki (gott að nota frosin ber) í
hrærivélaskál. Leggið matarlímið í bleyti í
að minnsta kosti fimm mínútur.
3. Setjið hinn hluta vatnsins (¾ bolla af
vatni), síróp og sykur í meðalstóran pott yfir
meðalháan hita.
4. Hrærið í blöndunni til að leysa upp
sykurinn og setjið kjöthitamæli ofan í.
5. Leyfið blöndunni að sjóða án þess að
hræra þar til hún nær 121 gráðu á hitamæl-
inum. Hellið þessu saman við matarlímið
sem búið er að kreista vatnið úr og setjið í
hrærivélina. Passið að matarlímið og maukið
sé vel blandað saman.
6. Verið varkár, þar sem sírópið er mjög
heitt.
7. Hækkaðu hitann þar til blandan
er orðin loftmikil og frauðkennd (um 10
mínútur). Helltu sykurpúðablöndunni á
pönnuna með filmunni sléttri ofan á. Látið
þetta hvíla við stofuhita í að minnsta kosti
tíu klukkustundir.
8. Blandið saman flórsykur og korn-
sterkju (maísenamjöli) saman og dreifið yfir.
9. Daginn eftir. Takið álpappír,
plastfilm una eða smjörpappírinn af púðunum
og stráið smá flórsykurs- og kornsterkjudufti
ofan á. Klippið púðana í bita með skærum.
Geymið púðana í þurrum, loftþéttum
umbúðum á þéttum, þurrum stað.
Ekki má geyma þá í kæli eða á mjög
rökum stað. Ef púðarnir blotna upp
gæti verið nóg að strá smá meira
dufti yfir.
Skreytið kökur eða borðið beint.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Varmaland