Bændablaðið - 11.05.2017, Side 2

Bændablaðið - 11.05.2017, Side 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Kynnisferð fulltrúa mjólkuriðnaðarins til Noregs: Sátt ríkir í Noregi um sérlausnir í mjólkurframleiðslu og -vinnslu – segir Egill Sigurðsson formaður stjórnar Mjólkursamsölunnar og Auðhumlu Félagsmönnum í Bænda- samtökunum býðst að senda inn spurningar um búvörusamningana og framkvæmd þeirra á netfangið samningar@bondi.is. Starfsfólk BÍ svarar fljótt og vel innsendum erindum. Á bondi.is er að finna upplýsingar um samningana, reglugerðir og fleira. Forsvarsmenn Mjólkur- samsölunnar og Samtaka afurða stöðva í mjólkuriðnaði fóru í heimsókn í síðustu viku til mjólkurvöruframleiðandans Tine í Noregi. Tilgangurinn var að kynna sér fyrirkomulag á stuðningskerfinu í norskri mjólkurframleiðslu og -vinnslu í samanburði við þær breytingar sem íslensk stjórnvöld hafa boðað hér á landi. Egill Sigurðsson, bóndi á Berustöðum og formað- ur stjórnar Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar, var í hóp- ferðinni og segir að sátt ríki um fyrirkomulagið í Noregi. Skilningur sé á því að sérlausn- ir í mjólkurframleiðslu séu nauðsynlegar. Það sé margreynt að einfaldar markaðslausnir henti hvergi. „Því hafa allar þjóðir sem ætla að standa vörð um sinn land- búnað ákveðin kerfi til þess að honum verði ekki fórnað á grund- velli skammtíma hagsmuna. En stundum í umræðunni mætti halda að sérstök umgjörð um mjólkur- framleiðslu væri séríslenskt fyrir- bæri, en svo er alls ekki. Það getur verið hagur þröngra hagsmuna, eins og hér er stundum talað fyrir, að rústa því fyrirkomulagi sem unnið hefur verið eftir. Slík vegferð, án þess að gera sér grein fyrir afleiðingunum, er aðför að bændum og einnig neytendum ef horft er til framtíðar,“ segir Egill. Verslunin sátt með norska kerfið „Það vakti athygli í ferðinni að það virðist vera sátt meðal aðila úr versl- unargeiranum í Noregi með þetta kerfi bæði í kjöt- og mjólkurframleiðslu. Að mínu viti ætti einnig að vera sátt um það íslenska sem skilað hefur því sem ætlast var til, bæði til neytenda og bænda. Það hefur verið margstaðfest. Þessi kynnisferð til Noregs var farin til að kynna sér kosti og galla norska kerfisins. Í frumvarpsdrögum landbúnaðarráðherra er tekið mið bæði af norska kerfinu og reyndar einnig því hollenska. Það voru því vonbrigði að aðilar frá ráðuneytinu sáu sér ekki fært að kynna sér stað- reyndir um það kerfi sem þeir vísa til, en það eru í leiðinni ákveðin skilaboð. Megintilgangur allra þessara kerfa, bæði hér og erlendis, er að verja víðtækan þjóðarhag og er byggt á langtímasýn. Vissulega er hvergi fullkomin sátt um hvernig öllu er fyrirkomið, en það gild- ir bæði hér og annars staðar. Það er engin umræða í Noregi um að kollvarpa landbúnaðinum og fullur skilningur á sérþörfum og sérlausn- um. Það sem við sáum í þessari ferð er að norska kerfið er mun flóknara en það íslenska. Við munum í kjöl- farið fara í nákvæmari samanburð á þessum stjórnkerfum sem getur vonandi skilað uppleggi að víðtæk- ari sátt um landbúnað og mikilvægi hans fyrir land og þjóð,“ segir Egill. Tine er mjólkursamlag þeirra Norðmanna, svipað Mjólkursamsölunni íslensku. Að baki Tine standa um 11 þúsund bændur á um níu þúsund bæjum. /smh Spurt og svarað um búvörusamninga Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur afdráttarlaust mótmælt því að áætlun um vernd og orku- nýtingu landsvæða geri ráð fyrir að allt vatnasvið Skjálfandafljóts verði flokkað í verndarflokk. Í umsögn meirihluta sveitarstjórnar vegna samþykktar fyrr í apríl um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða eru vinnubrögð verkefnisstjórnar gagnrýnd, en ekki var leitað eftir samráði við sveitarstjórn Þingeyjarsveitar við gerð áætlunarinnar þrátt fyrir að fjallað hafi verið um marga virkjunarkosti innan marka sveitarfélagsins. Það sé sérlega ámælisvert, enda verði verndar- og orkunýtingaráætlun sem samþykkt er af Alþingi bindandi við gerð skipulagsáætlana sveitarfélagsins um verndar- og orkunýtingaráætlun. „Málefnið hefur bein áhrif á verksvið sveitarstjórnar, sem fer með skipulagsvald innan sveitarfélagsins. Samráðsleysi verkefnisstjórnar er í ósamræmi við eðlileg samskipti ríkis og sveitarfélaga með hliðsjón af sjálfstjórnarrétti sveitarfélaga, sem hvílir á 78. gr. stjórnarskrár,“ segir í umsögninni. Fram kemur að í 2. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011 sé kveðið á um að verkefnisstjórn eigi m.a. að leita eftir samráði við stofnanir og stjórnvöld ríkis og sveitarfélaga. Almenn heimild til að senda inn umsagnir geti ekki fallið þar undir, jafnvel þótt verkefnisstjórn hafi haldið almenna kynningarfundi þegar drög að tillögu hennar lágu fyrir vorið 2016, en á þeim komu fram fullmótaðar tillögur um flokkun virkjunarkosta. Vísar sveitarstjórn Þingeyjar- sveitar til gagnrýni á vinnubrögð verkefnisstjórnar m.a. frá Orkustofnun. Bent hefur verið á að hlutverk verkefnisstjórnar samkvæmt lögum sé að móta stefnu um nýtingu landsvæða sem virkjunarkosti en ekki sé lagagrundvöllur fyrir tillögugerð um vernd alls vatnasviðs Skjálfandafljóts með þeim hætti sem verkefnastjórn viðhefur. /MÞÞ Þingeyjarsveit: Mótmælir verndun heils vatnasviðs Nýr þáttur af „Spjallað við bænd- ur“ er aðgengilegur á bbl.is. Í þættinum eru bændurnir í Hvammi í Ölfusi sóttir heim, þau Charlotte Clausen og Pétur Benedikt Guðmundsson. Á bænum er búið með kýr, býflugur og hesta. Á síð- asta ári var nýtt fjós tekið í notkun í Hvammi en hjónin ræða aðdragand- ann að framkvæmdunum og segja frá tæknilausnum og vinnuaðferðum sem þau beita í búskapnum. Þættirnir „Spjallað við bændur“ eru framleiddir af kvikmyndafyr- irtækinu Beit fyrir Bændablaðið. Spjallað við bændur í Hvammi í Ölfusi FRÉTTIR Sá skemmtilegi atburður varð í ferð íslenskra bænda til Noregs á dögunum að í fyrsta sinn í sögu Bændaferða (Hey Iceland) var borið upp bónorð í beinni í Lysefjorden-bjórbrugghúsinu í Bergen. Brynjólfur Þór Jóhannsson fór niður á skeljarnar fyrir sína heittelskuðu, Piu Ritu Simone Schmauder, við mikinn fögnuð viðstaddra. Tilvonandi brúðhjónin eru kúabændur á bænum Kolholtshelli í Flóahreppi. – Sjá nánar um ferðina á bls. 46 og 47 Mynd / ehg Hluti af hópnum sem fór í kynnisferðina er hér í Osló með fulltrúum frá Tine. Laufey Bjarnadóttir, Stakkhamri, Jóhanna Hreinsdóttir, Káraneskoti, Þórunn Andrésdóttir, Bryðjuholti, Helle Huseby frá Tine, Sæmundur Jónsson, Árbæ, Björn frá Tine, Garðar Eiríksson, Auðhumlu , Bjarni Ragnar Brynjólfsson, SAM og Jóhannes Torfason, Torfalæk.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.