Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 4

Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Alls 536 hross voru flutt úr landi á fyrsta fjórðungi ársins. Er þetta yfir meðalútflutningi síðustu fimm ára samkvæmt upplýsingum frá WorldFeng, upprunaættbók Íslenska hestsins. Á sama tíma í fyrra höfðu 564 yfirgefið landið, 492 árið 2015 og 464 árið 2014. Hrossin voru flutt til fjórtán landa. Flest fóru til Þýskalands, 274 talsins. Þá fóru 114 hross til Svíþjóðar og önnur 107 til Sviss, 79 til Danmerkur og 43 til Austurríkis. Útflutt fyrstu verðlaunahross eru þrjátíu talsins, tólf stóðhestar og átján hryssur. Hæst dæmdu hrossin eru Freyr frá Vindhóli (8,43), Stefnir frá Ketilsstöðum (8,38), Sökkull frá Dalbæ (8,38), Flygill frá Horni I (8,37), Duld frá Ytra-Dalsgerði (8,25) og Katla frá Blönduósi (8,25) /ghp Fundað í Þingborg fimmtudaginn 18 kl. 20.30: Hættan af innflutningi á ferskum matvælum Deilt hefur verið um innflutning á ferskum matvælum til landsins, hvort hann skuli leyfður, í hvaða mæli og með hvaða takmörkun- um. Á fundi sem haldinn verður í Þingborg fimmtudagskvöldið 11. maí kl. 20.30 munu sérfræðingar í smitsjúkdóma- og veirufræðum fara yfir stöðuna. Mikilvægt er að þessi umræða byggi á rannsóknum og upplýsingum eins og þær geta bestar orðið. Á þessum fundi flytja erindi sérfræðingar í fremstu röð til þess að gera grein fyrir þeim hættum sem það hefur í för með sér að flytja fersk matvæli til landsins. Karl G. Kristinsson er prófess- or og yfirlæknir á sýklafræðideild Landspítalans. Erindi hans nefnist „Stafar lýðheilsu Íslendinga hætta af innflutningi á ferskum matvælum?“ Vilhjálmur Svansson er dýralæknir og veirufræðingur á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, Hans erindi nefnist: „Núverandi sjúkdómastaða er auðlegð sem okkur ber að verja.“ Fundurinn verður haldinn í Þingborg fimmtudaginn 18. maí klukkan 20.30. Fundurinn er öllum opinn og eru allir boðnir velkomnir til hans. Fundarstjóri er Ögmundur Jónasson. „Það er góður gangur í þessu og allt hefur gengið að óskum,“ segir Snorri Snorrason, bóndi á Krossum í Dalvíkurbyggð. Hann og Brynja Lúðvíksdóttir, kona hans, reka sauðfjárbú með tæp- lega 380 kindur og voru hátt í hundr- að þeirra bornar í byrjun vikunnar. „Hér er allt á fullu en nær hámarki nú næstu daga,“ segir Snorri. Fjárhús Snorra og Brynju eru á Stóru- Hámundarstöðum, skammt utan við Krossa. Það hefur borið til tíðinda að tvær kindur hafa borið fjórum lömbum, hin fyrri um miðja síðustu viku og hin á sunnudag. Þá eru þrjár ær þrí- lembdar. Allt eru þetta sæðingarlömb að sögn Snorra, en hann segir að árangur af sæðingum virðist ætla að verða góður þetta vorið. Snjóléttur vetur að baki Utanverður Eyjafjörður er ekki beint snjóléttasta svæði landsins og því er Snorri afar kátur með veðrið sem í boði hefur verið undanfarið, þar sem sólskin og hiti hafa verið í aðalhlutverki. Vanalega hefur snjór verið yfir svæðinu á þessum árstíma. „Það skiptir verulegu máli, veður af þessu tagi gerir að verk- um að flestar ærnar bera úti, það er þægilegra fyrir alla, bæði menn og skepnur,“ segir hann og bætir við að hægur vandi sé að koma fénu inn við versnandi veður svo sem spá gerir ráð fyrir. „Kindurnar hafa verið meira og minna úti í allan vetur, hér hefur verið opið, enda óvenju góður og snjóléttur vetur að baki.“ /MÞÞ Snorri, bóndi á Krossum í Dalvíkurbyggð, ánægður með sauðburðinn: Ágætis frjósemi þetta vorið FRÉTTIR Á bænum Krossum í Dalvíkurbyggð er frjósemin í fjárstofninum greinilega í góðu lagi. Þar hafa tvær ær borið fjór- um lömbum og hér er önnur þeirra. Þá voru þrjár þrílembur búnar að bera nú í vikubyrjun. Mynd / Brynja S. LúðvíksdóttirVilhjálmur Svansson. Myndir / HKr. Ögmundur Jónasson. Karl G. Kristinsson. - Jóhanesson, fjármála- og efnahagsráðherra og Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Mynd / ghp „Ef það er einhver stétt í landinu, með fullri virðingu fyrir öðrum atvinnustéttum, sem er meðvituð og hefur meiri hagsmuni af því að ýta undir umhverfisvernd og passa upp á landið til lengri tíma litið þá eru það bændur. Og þeir kunna það alveg,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, sem undirritaði samstarfsyfirlýs- ingu sex ráðherra ríkisstjórnar- innar um gerð aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum. Markmið áætlunarinnar er að Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt Parísarsamningnum í loftslagsmálum til 2030 með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu koldíoxíðs úr andrúmslofti. Í samstarfsyfirlýsingunni segir að helstu tækifæri til að draga úr losun liggi í samgöngum, sjávarútvegi, landbúnaði og landnotkun. Útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði er um 750 þúsund tonn CO2- ígilda árið 2014 eða um 16% af heildarútstreymi Íslands samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands „Ísland og loftslagsmál“ sem kom út í febrúar. Þar kemur fram að helstu leiðir til að draga úr losun frá landbúnaði séu bætt fóðrun búfén- aðar til að draga úr framleiðslu met- ans, loftþétt geymsla búfjáráburðar, metangasgerð úr mykju og aukin notkun búfjáráburðar á kostnað til- búins köfnunarefnisáburðar. Fleiri rannsóknir æskilegar Þorgerður Katrín segir nóg af sóknartækifærum liggja í landbúnaði til að mæta kröfum um minnkun útstreymis í landbúnaði og nefnir í því sambandi sérstaklega tækniþróun. „Öll þessi tækniþróun skiptir bændur líka máli og þeir knýja, á grundvelli sinnar reynslu og þekkingu, fram þessa tækniþekkingu.“ Höfundar skýrslu Hagfræði- stofnunar nefna skort á innlendum rannsóknum á útstreymi frá land- búnaði og landnotkun. Þorgerður Katrín segir að ljóst sé að gerð aðgerðaráætlunarinnar muni ýta undir frekari rannsóknir. „Það er mín skoðun, eftir að hafa farið bæði yfir styrkveitingar og framlög til rann- sókna, að fleiri rannsókna í landbún- aði er æskileg, hvort sem það tengist útblæstri eða öðru. Ég tel að hlutverk m.a. Landbúnaðarháskóla Íslands muni aukast. Hann hefur verið að standa sig vel en það má gera enn betur, og þá einnig í samvinnu við hagsmunaaðila.“ Verkefnisstjórn og sex faghópar vinna aðgerðaráætlunina, en settur verður upp samráðsvettvangur þar sem fulltrúum haghafa og stjórnarandstöðu verður boðið að taka sæti. Aðgerðaráætlunin á að liggja fyrir í lok ársins. /ghp Samstarfsyfirlýsing um aðgerðir í loftslagsmálum undirrituð: Tækifæri til að minnka útstreymi í landbúnaði Aðalfundur umhverfisverndar- -samtakanna Landverndar fer fram laugardaginn 13. maí nk. kl. 10-14.30 í Frægarði í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Á fundinum verður auk almennra aðalfundarstarfa kynnt drög að stefnumörkun um vindorkuver, fjallað um strandhreinsiverkefnið Hreinsum Ísland og kynntar niðurstöður í hugmyndasamkeppni um framtíð Alviðru í Ölfusi. Eftir fundarslit mun dr. Árni Bragason landgræðslustjóri flytja erindi. Þá verður nýr formaður Landverndar kosinn, en Snorri Baldursson hyggst ekki gefa áfram kost á sér. Hann hefur gegnt for- mennsku síðan 2015. Auk þess verða fjórir stjórnarmenn kjörnir í stað þeirra sem gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Allir kjörgengir félagsmenn geta boðið sig fram á fundinum. Eftir fundinn verður nýju sjálf- boðaliðaverkefni Landverndar, Græðum Ísland, hleypt af stokk- unum við Þjófafoss í Þjórsá. /ghp Aðalfundur Landverndar á laugardag: Nýr formaður kjörinn Stefnir frá Ketilsstöðum, knapi Bergur Jónsson. Útflutningur á fyrsta ársfjórðungi: 536 hross úr landi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.