Bændablaðið - 11.05.2017, Side 6

Bændablaðið - 11.05.2017, Side 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.200 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgarar kostar 5.100 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Efnahagskerfi heimsins snýst alla daga um að leiðrétta misgengi á milli raun- verðmæta og tilbúinna platverðmæta í formi vaxta. Vegna smæðar kerfisins á Íslandi hafa stjórnvöld haft í hendi sér að milda helstu vankantana en gera það ekki. Seðlabanki Íslands er á góðri leið með að vera búinn að éta upp allan efnahags- bata þjóðarinnar á síðustu árum vegna hárra stýrivaxta og þjónkunar við erlenda og inn- lenda fjárfesta og fjárglæframenn. Dæmið um afleikinn gagnvart aflandskrónueigend- um er aðeins eitt af mörgum. Spyrja má hvort bankinn sé ekki í raun kominn í þrot þar sem búið er að eyða á tveim árum fjár- munum sem hefðu dugað til að endurnýja allt vegakerfi landsmanna eða byggja nýjan Landspítala og ýmislegt annað. Vandséð er hvernig stjórn ríkisins ætlar að framfylgja framkvæmdaáætlunum sínum ef Seðlabankinn fær áfram með aðgerðum sínum að eyðileggja efnahagskerfið innan frá. Brátt verða engin önnur úrræði tiltæk en að blóðmjólka almenning með stóraukn- um sköttum til að standa straum af stefnu Seðlabankans. Áhrif ofurhárra stýrivaxta Seðlabankans á gengi krónunnar muna að óbreyttu rústa ferðaþjónustunni í landinu, þessari nýj- ustu stoð íslenska efnahagslífsins. Þetta er miklu stærra mál en það hvort hækkaður verður virðisaukaskattur á þessa grein til jafns við aðrar atvinnugreinar. Að óbreyttu getur þetta varla endað öðruvísi en með nýrri efnahagskollsteypu. Ofan á allt þetta hefur viðskiptabönkunum verið leyft átölulaust að framleiða rafkrónur og græða á því gríðarlegar upphæðir sem teknar eru m.a. úr vösum almennings. Svo hrópa menn húrra yfir að bankar sem eru í eigu ríkisins greiði hluta af þessum eignaupptökum af almenningi til baka inn í ríkissjóð í formi arðgreiðslna. Til að gera málin enn verri fá fjárfestar að vaða uppi með hömlulausum uppkaupum á íbúðarhúsnæði sem síðan er leigt út á glæpsamlegum kjörum, sem engar fjölskyldur fá staðist til lengdar. Engar tilraunir virðist eiga að gera til að koma böndum á þessa vitfirringu. Með hrikalegri óstjórn í fjölda ára er verið að heimila bankakerfinu og fjármála- mönnum að leggja íslenskt þjóðfélag í rúst aftur og aftur. Þetta eru engin ný sannindi þó þeir sem völdin hafa haft virðist ekki vilja kannast við þessa mynd. Þar nægir að vitna í höfund sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna, Thomas Jefferson, en hann varð þriðji forseti Bandaríkjanna 4. mars árið 1801. Hann varaði við því að afhenda einkabönkum valdið til að gefa út gjald- miðil þjóðarinnar. Þetta sagði hann í bréfi sem hann sendi bóndanum, skipasmiðnum og stjórnmálamanninum John Taylor í maí árið 1816. „Ef bandaríska þjóðin leyfir einkabönkum nokkurn tíma að stjórna útgáfu þjóðargjaldmiðilsins, fyrst með verðbólgu, síðan með verðhjöðnun, þá munu bankarnir og einkafyrirtækin sem vaxa upp í kringum þá svipta fólkinu öllum þeirra eigum þar til börnin þeirra vakna heimilislaus í landinu sem forfeður þeirra byggðu. Ég tel að staða bankanna sé hættulegri frelsi okkar en óvinaherir.“ Jefferson sagði líka að nauðsynlegar aðgerðir þyrfti að gera til að taka þetta vald frá bönkunum og koma því aftur til fólksins. „Til þeirra sem eignirnar tilheyra.“ Það er áhugavert að velta fyrir sér áhyggjum Thomas Jefferson sem hann hafði af yfirgangi bankakerfisins fyrir 201 ári síðan. Höfum við virkilega ekkert lært? /HKr. Sama tuggan ÍSLAND ER LAND ÞITT Mynd / HKr. Auðhumla, samvinnufélag íslenskra kúa- bænda, stóð fyrir kynnisferð til Noregs fyrr í mánuðinum. Nokkrum aðilum var boðið að taka þátt í ferðinni og gerði ég það fyrir hönd Bændasamtakanna. Tilgangur ferðarinn- ar var að kynna sér mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnaðinn í Noregi og hvernig mark- aðurinn er skipulagður þar í landi. Ferðin kom meðal annars til vegna orða ráðherra landbúnaðarmála þess efnis að það væri horft til norska fyrirkomulagsins, þegar hún kynnti hugmyndir að breytingum á starfsskilyrðum mjólkurframleiðslunnar hérlendis í mars síðastliðnum. Fyrsti viðkomustaður var Landbúnaðar- háskólinn að Ási. Þar er nýlegt rannsóknafjós sem kostaði 3,5 milljarða íslenskra króna. Byggingin er mjög fullkomin og hægt að framkvæma þar fjölbreyttar rannsóknir tengd- ar kúabúskap. Þar er meðal annars gjafaróbót sem vigtar allt fóður í hverja kú. Hægt er að skoða meltanleika fóðursins ásamt fleiri gögnum sem tengjast fóðruninni. Sömuleiðis er nákvæmur tæknibúnaður til að fylgjast með mjöltum og öðru sem hefur þýðingu við rannsóknir. Tíföld framleiðsla miðað við Ísland En að markaðnum í Noregi. Mjólkur- framleiðslan er um það bil 10 sinnum meiri en hér heima. Framleiðendur eru um 8.300 en meðalbúið er mun minna, eða 25 mjólk- urkýr og ársframleiðslan að jafnaði um 170 þúsund lítrar. Helstu aðilar sem koma að mjólkurfram- leiðslunni eru fyrirtækið TINE, Búnaðarstofan (Landbruksdirektøratet) og TINE Råvarer. Síðastnefnda félagið annast söfnun mjólkur, gæðaeftirlit og fleiri innviðaverkefni tengd mjólk áður en hún kemur til vinnslu í afurða- stöðvum. Félagið sækir mjólk til nær allra bænda í Noregi en vegalengdir í landinu eru miklar. Sem dæmi er fjarlægð frá Osló til nyrstu hluta landsins svipuð og fjarlægðin frá Osló til Rómar. TINE sjálft er samvinnufélag kúabænda í Noregi. TINE er gríðarlega stórt fyrirtæki og hefur mikla umsetningu og er með stóran hluta markaðarins. Fyrirtækið má bera saman við Mjólkursamsöluna á Íslandi þó það sé margfalt stærra. Í Noregi eru þó fleiri en TINE í mjólkurvinnslu, stærstir þeirra eru Synnøve Finden, Q-meierierne, Normilk og Rørosmeieriet. Einnig eru enn minni aðilar sem falla undir skilgreiningu sem heimavinnsla. Aðilar á mjólkurmarkaði í Noregi eru alveg í sömu stöðu og þeir sem starfa á Íslandi. Í fyrirlestri fulltrúa norsku búnaðar- stofunnar kom fram að markaðurinn fyrir mjólk og mjólkurafurðir í Noregi er mjög skipulagður. Í gildi eru samningar á milli Búnaðarstofunnar og TINE Råvarer, sem sér um að sækja mjólk alls staðar á landinu, til að skilja á milli söfnunar og vinnslu mjólkur. Einnig eru samningar við TINE um verkefni sem fyrirtækið annast til að tryggja birgða- stýringu og framboð allra mjólkurvara allt árið um kring um allan Noreg. TINE Råvarer er sjálfstæð rekstrareining og veitir ráðgjöf um mjólkurgæði, sér um öll flutningatæki, á alla mjólkurtankana og sér um að borga bændunum fyrir framleidda mjólk. Þar gildir umsamið verð til bænda, með svipuðum hætti og verðlagsnefnd ákveður hér á Íslandi. Það er einnig samið um verð til allra afurðastöðva, þannig að TINE kaupir á nákvæmlega sama verði eins og allar minni vinnslurnar, líkt og hérlendis. Árlega er samið um það milli ríkis og bænda um hvaða verð skuli greitt til bænda. Um leið er samið um hvað verðið skuli vera til mjólkuriðnaðarins sem kaupir mjólk til frekari vinnslu. Þá gildir verðmiðlunarkerfi sem er eins konar pottur. Það er dreginn ákveðinn aura- fjöldi af verði hvers mjólkurlítra og lagður í púkkið. Öll fyrirtæki sem kaupa hráefni af TINE Råvarer eru skyldug til þátttöku í verðmiðlunarkerfinu, sem virkar þannig að mjólkurvinnslufyrirtækin fá ýmist greitt eða þurfa að greiða, eftir því hvaða vörur eru framleiddar úr mjólkinni sem um ræðir og hvaða verðþol þær hafa á markaði. Kerfið tekur einnig að hluta tillit til ólíkra svæða í Noregi og er ekkert ósvipað því fyrirkomulagi sem notað er á Íslandi. Þessi verðjöfnun, eða framlegðarskipting, er samkvæmt opinberri gjaldskrá og mun flóknari en á Íslandi. En kerfið er fyrirsjáanlegt þar sem breytingar eru sjaldgæfar. Tilgangurinn að ná jafnvægi á markaðnum Mjólkurframleiðslu í Noregi er stýrt með kvótakerfi og stutt við framleiðslu hjá bænd- um eins og á Íslandi. Stuðningsaðferðir eru þó fjölbreyttari og stuðningurinn er að hluta mismunandi eftir svæðum í Noregi. Það er alveg klárt að tilgangurinn með þessu öllu saman er að ná jafnvægi á markaðnum, ná sem bestu verði til neytenda og sem hæstu verði til bænda. Það er alltaf gagnlegt að kynna sér hlutina frá fyrstu hendi. Þó ég hafi skoðað þessi mál talsvert við gerð búvörusamninganna þá bætti ferðin heilmiklu við og var mjög gagnleg. Reynslan af henni undirstrikar að víða í heim- inum sjá menn færi í því að skipuleggja mark- aði með búvörur til að ná ákveðinni bestun milli framleiðenda annars vegar og neytenda hins vegar. Niðurstaðan er hagræðing og hag- kvæmni fyrir alla aðila. Það hefur tekist í Noregi og einnig hér á Íslandi. Þriggja milljarða hag- ræðing síðustu ára í íslenskum mjólkuriðnaði hefur skilað sér að einum þriðja til bænda og að tveimur þriðju til neytenda. Þeir sem vilja snúa því á haus þurfa að færa betri rök fyrir því en hingað til hafa komið fram. Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands sindri@bondi.is Hvað skilar árangri? Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Ásgerður María Hólmbertsdóttir amh@bondi.is – Sími: 563 0303 – augl@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Anna Kristín Ólafsdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.