Bændablaðið - 11.05.2017, Page 7

Bændablaðið - 11.05.2017, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Árnesingakórinn verður með styrktar- tónleika til styrktar hjúkrunar deildunum Fossheimum og Ljósheimum á Selfossi í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi laugar- daginn 20. maí kl. 16.00. Á efnisskránni eru bestu lög kórsins úr 50 ára sögu Árnesingakórsins í Reykjavík eins og popplög, gömul og ný dægurlög og íslensk og erlend lög. Gunnar Ben stjórnar kórnum og undirleikari er Bjarni Þ. Jónatansson. Miðapantanir eru á netfanginu kor@kor. is. Miðaverð er 3.000 krónur, börn 4 til 12 ára greiða 500 krónur og frítt er fyrir börn yngri en 4 ára. Þá er rétt að geta þess að kórinn verður með 50 ára afmælistónleika sína í Langholtskirkju miðvikudaginn 17. maí kl. 20.00. Með kórn- um þar syngur Valgerður Guðnadóttir sópran. Miðapantanir á kor@kor.is /MHH Árnesingakórinn 50 ára: Með styrktartónleika á Borg í Grímsnesi og afmælistónleika í Langholtskirkju MÆLT AF MUNNI FRAM Þ jóðin fylgdist gapandi yfir nýleg-um fréttum af Filippusi prinsi og hertoga af Edinborg. Blessaður öðlingurinn ákvað nú nýverið, að „stíga til hliðar“ eins og við Íslendingar nefnum það þegar embættis- og stjórnmálamenn okkar víkja úr embætti, sem oftast er vegna óvænts andsteymis í starfi ellegar þrýstings frá þjóðinni sjálfri. En Filippus blessaður ákvað að hætta opinberum emb- ættisfærslum sakir elli. Eitthvað reyndust fréttir brogaðar af þessu tiltæki Filippusar, var jafnvel álitið að Pusi væri allur fyrir einhverjum árum. Andlátsfregnir af Filippusi reyndust sem betur fer stórlega ýktar, en blessaður hertoginn verður nefni- lega 96 ára þann 10. júní næstkomandi. Þónokkrir af hagyrðingum Bændablaðsins fundu sig knúna til yrkinga vegna þessara misvísandi fregna af stöðu Filippusar. Skarphéðinn Ásbjörnsson sendi mér símavísu, leitandi sannleikans: Í asagangi erilsins er ég af visku snauður, og spyrja verð, hvort Pusi prins sé pottþétt ekki dauður? En Hjálmar Freysteinsson læknir, og sveitungi Skarphéðins, eyðir allri óvissu um tilveru Filippusar: Dauft er í höllu drottningar, dagurinn gleðisnauður. Filippus orðinn algert skar þótt ekki sé hann nú dauður. Í ljósi ofanskráðra vísna verða efn- istök þáttarins ofurlítið „ellibleik“. Guðmundur Böðvarsson, afabróðir Guðmundar Böðvarssonar, skálds á Kirkjubóli í Hvítársíðu, orti í hárri elli: Hér á velli hófst oft leikur heyrðist skellihláturinn. Nú er elliblærinn bleikur búinn að hrella þanka minn. Friðrik Jónsson póstur, kenndur við Kraunastaði í Aðaldal, orti þá nokkuð við aldur: Margt er það sem manni brást og maður reyndi að vona, það er ekki um það að fást, þetta fór nú svona. Guðrún Árnadóttir frá Oddsstöðum orti á áliðinni ævi: Manndómsára þrýtur þrek, þokast sár um veginn. Tímans bára brýtur sprek, breikkar skárinn sleginn. Guðmundur Sigurðsson útvarpsmaður dvaldi um skeið á sjúkrahúsi. Til aldraðs manns í næsta rúmi orti Guðmundur: Nálgast grand og neyðarstand, nálykt andar blærinn. Beislar fjandinn bleikan gand bak við landamærin. Nóttin herjar nær og fjær, nestið ber ég glaður. Innan skerja ákaft rær uppheims ferjumaður. Þótt Guðmundur Kamban skáld létist fyrir aldur fram, eða 57 ára, þá var sem hann sæi feigðina fara að: Þegar við mér gröfin gín og gengur sól að viði, láttu ekki Drottinn ljós til mín, lof mér að sofa í friði. Þegar fregnin um víg Guðmundar Kambans barst til Íslands, þá orti Jón skáld Þorsteinsson á Arnarvatni, þá orðinn blindur, þessa vísu, sem jafnframt er talin hans síðasta vísa: Heyr mig Loki Hvítássbani, hvar er mistilteinn? Fá mér blindum fimmtán Dani fyrir Kamban einn. 177 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Árnesingakórinn, sem verður með 50 ára afmælistónleika 17. maí og styrktartónleika 20. maí. LÍF&STARF 60 ára afmæli Tónlistarskóla Rangæinga Tónlistarskóli Rangæinga fagnar 60 ára afmæli sínu á árinu en glæsilegir afmælistón- leikar voru haldnir í Hvolnum á Hvolsvelli mánudaginn 1. maí. Markmið og stefna skólans er að nemendur hans stefni allir í átt að því að ljúka fullgildum áfangaprófum frá skólanum. Hvort heldur sem þeir hyggjast gera tónlistina að lífsviðurværi og/eða njóta hennar sem lífsfyllingar. Þrettán kennarar starfa við skólann og nem- endur hans eru 289, 170 í einkanámi og 119 í forskóla. Upphaf Tónlistarskóla Rangæinga má rekja til þess að Björn Fr. Björnsson sýslumaður hratt stofnun hans í framkvæmd um áramótin 1955–56, vel studdur af sýsluskrifara sínum, Pálma Eyjólfssyni, og fleira hugsjónafólki í hér- aði. Fyrsti kennarinn kom akandi með mjólkur- bílnum frá Selfossi, Guðmundur Gilsson, ungur og þá nýráðinn org- anisti, kórstjóri og tónlistarskólastjóri þar á bæ. Allir lögðust á eitt að þetta gæti gengið og fyrsti hópurinn taldi hátt í 30 nemendur. /MHH Kristjana Laufey Adolfsdóttir spilaði og söng nokkur frumsamin lög, virkilega vel gert hjá henni. foreldrar þeirra. Þau spiluðu Maja átti lítið lamb. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson. Sigríður Aðalsteinsdóttir, skólastjóri tónlistarskólans, ávarpaði gesti við upphaf 60 ára afmælistónleikanna og sá um að kynna atriði nemenda.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.