Bændablaðið - 11.05.2017, Síða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Í byrjun maímánaðar sendi Matís
frá sér fréttatilkynningu með fyr-
irsögninni Fullyrðingar um heil-
næmi íslensks sjávarfangs duga
ekki. Þar var greint frá því að
vöktunarverkefni á vegum Matís
hefði verið endurvakið, sem felst
í að fylgjast kerfisbundið með
óæskilegum efnum í íslenskum
sjávarafurðum í þeim tilgangi að
sýna fram á stöðu þeirra með til-
liti til öryggis og heilnæmis, meðal
annars fyrir útflutning.
Í tilkynningunni kemur fram að
íslenskt sjávarfang hafi lengi verið
markaðssett þannig að áhersla væri
lögð á hreinleika og heilnæmi þess.
Það dugi hins vegar skammt ef ekki
sé hægt að styðja það með vönduðum
og vel skilgreindum vísindalegum
gögnum. Helga Gunnlaugsdóttir er
faglegur leiðtogi hjá Matís. Hún
segir að ekki hafi fengist fjármagn
frá 2012 til að halda verkefninu
gangandi og því hafi hlé verið
gert á þessari gagnasöfnun sem
og útgáfu niðurstaðna á tímabilinu
2013–2016.
„Hagaðilar í sjávarútvegs-
bransanum höfðu miklar áhyggjur
af þessu af því að þeir höfðu mikið
notað niðurstöðurnar, sem voru
birtar í opnum skýrslum á vef Matís,
til að sýna fram á stöðuna. Fulltrúar
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
báðu því um fund með þáverandi
sjávarútvegsráðherra, Sigurði Inga
Jóhannssyni, í nóvember 2014 þar
sem þau lýstu yfir áhyggjum sínum
af stöðu mála,“ segir Helga.
„Starfshópur var skipaður
á vegum atvinnu- og
nýsköpunarráðuneytisins (ANR)
sem fór yfir möguleikana á því að
halda áfram vöktun á óæskilegum
efnum í íslensku sjávarfangi í
framtíðinni og lauk hann störfum í
mars 2016. Starfshópurinn skrifaði
stutta skýrslu með aðgerðarlista
og gerði kostnaðarmat fyrir
aðgerðirnar. Það var síðan lagt til
grundvallar fyrir lágmarksvöktun á
afurðum úr auðlindinni og ákveðin
upphæð sett inn í fjárlagarammann
fyrir 2017 til að standa straum af
því. Reiknað er með að svo verði
einnig næstu fjögur árin að minnsta
kosti. Eftir að fjárlagafrumvarpið
hafði verið samþykkt gerði ANR
þjónustusamning við Matís um að sjá
um verkefnastjórn og framkvæmd
þessa verkefnis til eins árs.
Verkefnið Matís hófst í mars
2017 og stefnt er að því að taka
sýni af helstu útflutningstegundum
íslensks sjávarfangs og mæla styrk
óæskilegra efna; til dæmis ýmissa
díoxín-efna, PCB-efna, varnarefna
og þungmálma.
Matvælastofnun fylgist með
landbúnaðarafurðum
Eftirlit með óæskilegum efnum
í landbúnaðarvörum er í umsjá
Matvælastofnunar. Kröfur í
reglugerð, sem byggir á tilskipun frá
Evrópusambandinu (ESB), gera ráð
fyrir reglulegum sýnatökum úr þeim.
Ingibjörg Jónsdóttir, fag-
sviðsstjóri neytendaverndar hjá
Matvælastofnun, segir að fyrst og
fremst sé fylgst með lyfjaleifum.
„Hluti sýnanna fer þó í greiningar á
aðskotaefnum eins og þungmálmum,
myglueitri, og þrávirkum lífrænum
mengunarefnum eins og díoxínlík
PCB-efni og fleirum.
Í reglugerðinni er tiltekinn
lágmarksfjöldi sýna af hverri
dýrategund og hvaða mælingar skuli
framkvæma. Núna síðustu ár hafa
verið tekin á milli 1.100 og 1.300 sýni
á hverju ári. Matvælastofnun, og áður
embætti yfirdýralæknis, hafa séð um
framkvæmdina. Niðurstöðurnar eru
notaðar til að sýna fram á heilnæmi og
öryggi íslenskra landbúnaðarafurða
og þær eru einn af lykilþáttum í
samningum og umsóknum um
markaðsleyfi til Bandaríkjanna
og fyrir tollabandalagið Eurasian
Economic Union (EAEU). Einnig
nýta sláturhús, fiskeldisstöðvar og
mjólkurstöðvar sér þessar niðurstöður
þegar leitað er að kaupendum erlendis.
Það að íslenskar vörur eru í frjálsu
flæði á Evrópska efnahagssvæðinu
byggir á því að við uppfyllum þessar
kröfur um sýnatökur og greiningar
og sendum niðurstöðurnar árlega til
ESA, eftirlitsstofnunar EFTA,“ segir
Ingibjörg.
Að sögn Ingibjargar birtast
niðurstöður árlega í Starfsskýrslu
Matvælastofnunar. Hægt er að nálgast
þær í gegnum vef stofnunarinnar,
undir útgáfa. /smh
Eftirlit með óæskilegum efnum í sjávar- og landbúnaðarafurðum:
Mikilvægt vegna markaðs setningar
á erlendum mörkuðum
– Fjármagn fékkst á ný til vöktunar á efnum í íslenskum sjávarafurðum
Aðalfundur Félags sauðfjárbænda á Vestfjörðum:
Vill fá réttlátari skiptingu á
svæðisbundnum stuðningi
Aðalfundur Félags sauðfjárbænda
á Vestfjörðum haldinn að
Reykhólum 7. apríl 2017
skorar á sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra að nota
það svigrúm sem skapast á næsta
ári með auknu fjármagni til
svæðisbundins stuðnings, til að ná
fram réttlátari útdeilingu fjárins
en hráar tillögur Byggðastofnunar
gera.
Fundurinn áréttar fyrri ályktanir
Vestfirðinga að Vestfirðir allir falli
undir ákvæði um svæðisbundinn
stuðning, enda er sauðfjárrækt að
öðru jöfnu mikilvægari eftir því sem
norðar dregur þar sem norðlæg lega
dregur úr möguleikum til hvers konar
ræktunar. Enda hefur byggðaþróun
á Vestfjörðum verið sú neikvæðasta
á landinu.
Þá segir í ályktun fundarins
að ekki verði gerð ríkari krafa
um fjárfjölda en í fyrri samningi
varðandi svæðisbundinn stuðning.
Enda hafi sú breyting komið fram
eftir að samningurinn hafði farið í
almenna atkvæðagreiðslu og kynnt
hafði verið aukið fjármagn til
svæðisbundins stuðnings.
Fundurinn telur eðlilegt að
ákvæðið um Árneshrepp gildi
einnig um bæi þar sem samgöngur
eru sambærilegar eða lakari en við
Árneshrepp.
Einnig skorar fundurinn á stjórnir
B.Í. og L.S. að leggja málinu lið
til að ná fram réttlátari skiptingu
fjárins. /HKr.
Matarauður Íslands er nýtt
heiti á verkefni sem áður hét
Matvælalandið Ísland. Það heyrir
undir sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra og snýst um mat-
vælaframleiðslu, matarmenningu
og matarferðaþjónustu á Íslandi.
Í tilkynningu frá Brynju Laxdal,
verkefnisstjóra Matarauðs Íslands,
kemur fram að Matvælalandið Ísland
reyndist frátekið. „Matarauður
Íslands er með tilvísun í matvælaauð-
lindina og hliðarafurðir hennar og
hefur skírskotun í matarmenningu
og stolt. Matur er öflugt markaðsafl
og mikilvægt að nýta aukinn áhuga á
matarferðaþjónustu með því að setja
aukinn slagkraft í uppbyggingu og
markaðssetningu þeirrar matarsér-
stöðu sem hver landshluti býr yfir. Á
þessu ári er gert ráð fyrir að rúmlega
tvær milljónir erlendra ferðamanna
sæki Ísland heim og ef hver ferða-
maður dvelur að meðaltali í 7 daga
og borðar tvisvar á dag má reikna
með að daglega bætist 77.000 mál-
tíðir við neyslu Íslendinga.“
Að skapa fjölbreyttari
atvinnutækifæri
„Tilgangur verkefnisins er að skapa
fjölbreyttari atvinnutækifæri í tengsl-
um við matvælaiðnað og matarferða-
þjónustu um land allt í sátt við sjálf-
bæra þróun og vilja heimamanna.
Sömuleiðis verður unnið að því að
efla jákvæða ímynd og vitund um
íslenskar afurðir og staðbundna mat-
armenningu hér innanlands.
Samvinna og þekkingaryfirfærsla
eru drifkraftar nýsköpunar og
framþróunar. Hugsunin hjá
stjórnvöldum er því að vinna þvert
á greinar tengdum matvælum til
að ná fram samlegðaráhrifum.
Matvælageirinn tengist til dæmis
orku-, umhverfis-, heilbrigðis- og
ferðageiranum. Búið er að móta
stefnu og er verið að vinna að því
að stilla upp byrjunarverkefnum.
Orðræðan um íslensk matvæli
þarf að hverfast um stolt og þekk-
ingu enda búa Íslendingar við þau
skilyrði að geta framleitt gæðavör-
ur í sátt við sjálfbæra þróun. Við
þurfum hins vegar að gæta vel að
stöðugleika gæða og bregðast við
aukinni gæða- og umhverfisvitund
neytenda í matvælum. Aukin krafa
er um lífræna ræktun, rekjanleika
og upprunavottun og meiri ásókn er
í svæðisbundin matvæli sem gefa af
sér minna sótspor.
Verkefninu lýkur í desember 2021
og er Brynja Laxdal verkefnastjóri
þess. Í verkefnastjórn Matarauðs
Íslands sitja Páll Rafnar Þorsteinsson
formaður og Baldvin Jónsson fyrir
hönd atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytisins, Hanna Dóra Hólm
Másdóttir fyrir innanríkisráðuneytið
og Ásborg Ósk Arnþórsdóttir fyrir
hönd umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins. Eftir er að skipa einstak-
linga í samráðshóp verkefnisins sem
ætlað er að vera verkefnastjórn og
verkefnastjóra til ráðgjafar,“ segir
í tilkynningunni frá Matarauði
Íslands. /smh
Matvælalandið Ísland
verður Matarauður Íslands
Góð afkoma hjá Jötni
vélum á síðasta ári
Fyrirtækið Jötunn vélar ehf. var
á síðasta ári rekið með tæplega
70 milljóna króna hagnaði fyrir
skatta að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá félaginu.
Jötunn er umboð fyrir fjölda
tækja og búnaðar fyrir landbúnað og
verktaka, m.a. hinar frægu Massey
Ferguson dráttarvélar Hagnaður
eftir skatta var 55,4 milljónir
króna. Þetta er umtalsverð aukning
hagnaðar frá rekstrarárinu 2015 en
veltuaukning milli ára var tæplega
20%. Heildartekjur fyrirtækisins
námu rúmlega 2,8 milljörðum króna
í fyrra en 2,4 milljörðum árið 2015.
Kraftur í landbúnaðinum
„Við erum mjög ánægð með
þennan árangur á síðasta ári.
Þetta endurspeglar þann kraft og
uppbyggingu sem er í landbúnaði á
Íslandi um þessar mundir. Fjárfesting
í landbúnaði er vaxandi, bæði eru
bændur að ráðast í endurnýjun
tækja eftir samdráttarskeið en
einnig eru vaxandi nýfjárfestingar
í landbúnaði, mismiklar þó eftir
einstökum greinum,“ segir Finnbogi
Magnússon, framkvæmdastjóri
Jötuns.
Dráttarvélasala enn að aukast
Sala nýrra dráttarvéla varð nánast
engin við efnahagshrunið en hefur
hægt og bítandi náð sér á strik á
nýjan leik. Finnbogi telur þann
markað enn eiga eftir að vaxa. Í fyrra
voru 150 nýjar dráttarvélar seldar
hér á landi og er markaðshlutdeild
Jötuns í dag um 50%.
„Okkur tókst að komast í gegnum
hrunárin í krafti fjölþættrar þjónustu
okkar og höfum markvisst verið
að byggja fyrirtækið upp, meðal
annars með öflugum verslunum á
Akureyri og Egilsstöðum. Kjarni
okkar starfsemi er þjónusta við
landbúnaðinn, líkt og verið hefur
frá upphafi, og koma um 90% tekna
félagsins þaðan.“
Finnbogi segir ljóst að land-
búnaðurinn njóti góðs af auknum
ferðamannastraumi. „Spurn eftir
matvælum hefur aukist ár frá ári að
undanförnu. Það hafa líka skapast
ný atvinnutækifæri í ferðaþjónustu
til sveita að undanförnu og það eflir
þær til búsetu. Allt styður þetta hvert
annað og okkar hlutverk er að veita
landbúnaði og sveitunum sem besta
og víðtækasta þjónustu, og styðja við
framþróun og uppbyggingu,“ segir
Finnbogi.
FRÉTTIR
Brynja Laxdal er verkefnisstjóri Matarauðs Íslands. Mynd / smh
Matís hefur gert þjónustusamning við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið
um að vakta óæskileg efni í sjávarfangi. Myndir / BBL
Kröfur í reglugerð, sem byggir á tilskipun frá Evrópusambandinu, gera
ráð fyrir eftirliti með óæskilegum efnum í landbúnaðarvörum.