Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 12

Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 FRÉTTIR Umhverfisdagur Hruna- mannahrepps 12. maí Verslunin Veiðisport á Selfossi fagnaði 30 ára afmæli sínu þriðjudaginn 2. maí með því að bjóða viðskiptavinum sínum upp á kaffi og afmælisköku, ásamt 30% afslætti á vörum. Verslunin selur allt það helsta sem við kemur veiði. Hjónin Hrefna Halldórsdóttir og Ágúst Morthens eiga verslunina og hafa staðið vakt- ina þar í þessi 30 ár. Veiðisport er til sölu, ef ekki næst að selja fyrir haustið verður starfseminni hætt. /MHH Ágúst og Hrefna voru hress eins og alltaf þegar þessi mynd var tekin af þeim á 30 ára afmælisdeginum, 2. maí 2017. Mynd / MHH Veiðisport 30 ára Umhverfisdagur Hrunamanna- hrepps verður haldinn föstudaginn 12. maí. Dagurinn byrjar á að nem- endur Flúðaskóla og leikskólans Undralands taka virkan þátt í til- tektinni á Flúðum og verður hafist handa kl. 10.20 og nánasta umhverfi skólanna hreinsað. Klukkan 16.00 hefst svo gamli góði rusladagurinn undir styrkri stjórn ruslamálaráð- herra, Sigmundar Brynjólfssonar. Safnast verður saman við Félagsheimilið og ruslapokar og einnota hanskar verða á staðnum. „Skorað er á alla íbúa sveitarfélagsins að fjarlægja allt rusl af umráðasvæði sínu og stuðla þannig að því að fallegi hreppurinn okkar líti enn betur út og verði okkur öllum til sóma. Umhverfisnefnd Hrunamannahrepps mælist til að eigendur fyrirtækja og fólk á lögbýlum noti tækifærið og hreinsi til í kringum starfsemi sína og jarðir. Gaman væri að landeigendur tíni rusl með vegum fyrir sínu landi“, segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Í lokin er þátttakendum síðan boðið í grillveislu í Lækjargarðinum á Flúðum. /MHH Teljari settur upp við Gullfoss Teljari hefur verið settur upp við Gullfoss en hann telur alla þá sem fara um göngustíginn sem liggur frá Gullfoss kaffi og niður að stiga. Mælirinn er færanlegur og er ætlað að gefa upplýsingar um fjölda fólks á friðlýstum svæðum á vegum Umhverfisstofnunar. Samkvæmt mælingum lögðu ein milljón og tvö hundruð þúsund manns leið sína upp að Gullfossi á síðasta ári, að því er fram kemur í frétt á vef Umhverfisstofnunar. /MÞÞ Dráttarvélarisinn John Deere útnefnir Íslyft sem umboðsaðila á Íslandi: Valið úr hópi nokkurra fyrirtækja Markaðsmiðstöð dráttarvéla- framleiðandans John Deere á svæði 2 í Mannheim í Þýskalandi sendi frá sér yfirlýsingu 30. mars. Þar var því lýst yfir að Íslyft ehf. sé frá og með þeim degi umboðsaðili fyrirtækisins á Íslandi. Þar segir einnig að Íslyft hafi verið valið úr hópi nokkurra fyrirtækja sem skoðuð voru. Fyrirtækið hafi verið valið vegna góðrar sögu á markaði og reynslu af þjónustu með vörur fyrir landbúnað og til annarra nota. Íslyft muni því annast alla sölu- og varahlutaþjónustu fyrir John Deere á Íslandi. Þá segir að með beintengingu og aðstoð frá John Deere muni Íslyft geta veitt þjónustu í hæsta gæðaflokki til að sinna þörfum núverandi og framtíðar viðskiptavina John Deere á Íslandi. Íslyft er með aðstöðu í Vesturvör 32 í Kópavogi. Fyrirtækið er m.a. þekkt fyrir sölu gaffallyftara frá Linde og á skotbómulyfturum frá Merlo. Einnig hefur fyrirtækið annast sölu á ýmiss konar rekstrarvörum. Þá hefur Íslyft annast sölu á Goupil rafbílum með góðum árangri. /HKr. – Nánar um nýja umboðið á bls. 24 John Deere er aðallega í eigu Bandaríkjamanna en eignarhaldið er mjög dreift og nær m.a. til Þýskalands. Stærstu hluthafarnir eiga þar samt ekki meira en í kringum 7% eignarhlut. Þar er líka að finna tvö af þekktustu nöfnun- um í fjármálaheiminum, þá Bill Gates með 7,5% hlut og fjár- festirinn Warren Buffet, sem einnig er með 7,5% hlut. Báðir hafa átt sína hluti í John Deere mjög lengi. John Deere framleiðir vélar og tæki á mjög fjölbreyttu sviði. Þungavinnuvélar eru þar á meðal en þær eru þó ekki seldar utan Bandaríkjanna. Það eru hins vegar dráttarvélarnar, golfbílar og fleira. John Deere er með um 70% hlutdeild í dráttarvélasölunni í Bandaríkjunum og leiðandi í Evrópu og á fleiri mörkuðum víða um heim. Fyrirtækið eyðir á hverjum degi ársins um 5 milljónum dollara í þróunarvinnu. Eins og hjá fleiri dráttarvéla- og vinnuvélaframleiðendum dró úr sölunni hjá John Deere í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Hefur t.d. verið töluverður samdráttur í nettó- sölu síðastliðin þrjú ár, eða úr rúm- lega 36 milljörðum dollara 2014 í 26,6 milljarða á síðasta ári. Þrátt fyrir samdrátt er hagnaður á öllum póstum nema í sölu á jarðýtum og öðrum þungavinnuvélum sem og á sölu tækja fyrir skógariðnaðinn. Virðist þar vera nokkur sam- svörun við þróun og stöðu hjá þungavinnuvélarisum á borð við Caterpillar. Það fyrirtæki er samt stærra í sniðum með 35,7 milljarða dollara sölu á síðasta ári á móti 52,1 milljarði dollara 2014, en var að skila nokkru tapi í fyrra. Til samanburðar bætti japanski risinn Komatsu aftur á móti stöðu sína á heimsvísu milli áranna 2014 og 2015 í jenum talið. Heldur dró úr sölu hjá þeim í fyrra en spáð er aukningu fram á næsta ár. John Deere, eða Deere & Company, er síðan að skila talsvert betri árangri en flestir aðrir vinnuvélaframleiðendur sem skráðir eru í S&P 500 vísitölunni og er þar á pari við meðalvísitölu. Þá hyggst John Deere gera sig mjög gildandi í umhverfismálum og kynnti t.d. í ársbyrjun stóra dráttarvél knúna rafmagni. Þá er mikil áhersla lögð á að mæta kröfum um aukna sjálfbærni í landbúnaði. /HKr. Með Bill Gates og Warren Buffet sem stærstu einstaka hluthafa Milljarðamæringurinn Bill Gates, stofnandi Microsoft, á 7,5% hlut í John Deere-samsteypunni. Hann var lengi vel ríkasti maður heims með metn- - gerðarmála og hefur tilkynnt að hann muni gefa 95–99% eigna sinna til slíkra mála áður en hann deyr. Mynd / Hörður Kristjánsson Deere, en hann var nú í mars talinn annar ríkasti maður heims með eignir upp á 78,7 milljarða dollara. John Deere er með mjög breiða framleiðslulínu og dráttarvélar af öllum stærðum. Þessi mynd var tekin á sýningu í Hannover 2015. Mynd /HKr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.