Bændablaðið - 11.05.2017, Síða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Aðalfundur Búnaðarsambands
Suður-Þingeyinga var haldinn á
Kiðagili í Bárðardal nýverið. Vel
var mætt, 28 fulltrúar af 30 komu
á fundinn auk formanns félagsins
og Unnsteins, verkefnastjóra
Heimaslóðar.
Á fundinum ríkti frábær andi
og líflegar umræður í nefndum
segir í frétt af fundinum á vefnum
641.is. Fyrir fundinum lágu mörg
málefni sem þurfti að leiða til lykta.
Samstaða náðist um þær ákvarðanir
sem teknar voru.
Bestu kýrnar
Á fundinum voru að venju veitt
verðlaun. Hvatningarverðlaun BSSÞ
í sauðfjárrækt og Heiðurshornið
féllu að þessu sinni í skaut þeirra
Unnar og Flosa á Hrafnsstöðum. Þá
voru veitt verðlaun fyrir bestu kýr
fæddar 2012 sem byggist á eigin
afurðum og kúadómum. Í 1. sæti var
kýrin Von frá Dæli. Í 2. sæti kýrin
Klemma frá Steinkirkju og í 3. sæti
var Sól frá Búvöllum.
Viðurkenningu fyrir ára-
tugalangt og farsælt starf á vegum
búnaðarsambandsins fékk Ingvar
Vagnssson og þá fékk viðurkenningu
Valþór Freyr Þráinsson fyrir virka
innkomu að félagsmálum bænda og
hvetjandi framgöngu í nýju starfi.
/MÞÞ
FRÉTTIR
Í svari sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur, við fyrirspurn frá
Bjarna Jónssyni, fiskifræðings
og forstöðumanns Náttúrustofu
Norðurlands vestra, um verðmæti
veiða í ám og vötnum, kemur fram
að árleg heildarumsvif gætu verið
á bilinu 14 til 17 milljarðar króna.
Bjarni Jónsson hefur sem vara-
þingmaður gert ítarlegar fyrirspurnir
í samtals 16 liðum til sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra í ljósi
stóraukinna umsvifa fiskeldis í sjó
við Ísland. Eigendur laxveiðiáa og
veiðirétthafar hafa lýst yfir miklum
áhyggjum út af því að þeir telja að
fiskur sem sleppur úr kvíum geti haft
veruleg áhrif á afkomu villtra laxa-
og silungsstofna. Ráðherra hefur nú
svarað fyrsta hluta spurninga Bjarna
sem voru í þrem liðum:
1. Hefur nýlega verið lagt mat á
verðmætasköpun sem veiði í
ám og vötnum stendur undir og
þýðingu veiða á vatnafiskum
fyrir byggð í sveitum landsins,
og ef svo er, hverjar eru
meginniðurstöður slíks mats?
Í svari ráðherra segir að slíkt mat
hafi ekki verið framkvæmt nýlega,
en Hagfræðistofnun Háskóla
Íslands vann skýrslu árið 2004 að
beiðni Landssambands veiðifélaga
um efnahagsleg áhrif lax- og
silungsveiða á Íslandi.
Stuðst við tölur frá 2004
„Sé stuðst við töflu sem þá var sett
fram, og tölur úr henni uppreiknaðar
til verðlags dagsins í dag, gætu
heildarumsvifin verið á bilinu 14
til 17 milljarðar króna. Hafa verður
fyrirvara við slíka framreikninga, en
áformað mun vera að uppfæra þessa
skýrslu og er áætlað að niðurstöður
verði kynntar fyrir lok árs.“
Í töflu Hagfræðistofnunar frá
2004 kemur fram að efnahagslegt
virði stangveiða er metið frá rúmum
7,8 til rúmlega 9 milljarða króna á
ári á þávirði.
2. Telur ráðherra að áform um
aukið laxeldi í sjó krefjist nýs
verðmæta- og áhættumats fyrir
veiði í ám og vötnum?
„Markmið laga nr. 71/2008, um
fiskeldi, er að skapa skilyrði til
uppbyggingar fiskeldis og efla
þannig atvinnulíf og byggð í
landinu, stuðla að ábyrgu fiskeldi og
tryggja verndun villtra nytjastofna.
Skal í því skyni leitast við að tryggja
gæði framleiðslunnar, koma í veg
fyrir hugsanleg spjöll á villtum
nytjastofnum og lífríki þeirra og
tryggja hagsmuni þeirra sem nýta
slíka stofna.
Ráðherra telur mikilvægt
að stuðla að ábyrgu fiskeldi og
tryggja um leið verndun villtra
nytjastofna svo sem íslenskra
villtra laxastofna. Að tilstuðlan
starfshóps um stefnumótun í fiskeldi
er vinna hafin við gerð áhættumats
vegna erfðablöndunar eldislax við
íslenska villta laxstofna. Markmið
verkefnisins er að meta hve mikið
umfang eldis má vera á hverjum stað
án þess að það valdi óafturkræfum
skaða á náttúrulegum laxastofnum
vegna erfðablöndunar. Í verkefninu
eru notuð bestu fáanlegu gögn um
hlutfall sleppinga, áhrifa hafstrauma,
fjarlægð áa og stofnstærð laxa í
ám auk erfðasamsetningar villtra
stofna. Tilgangur verkefnisins er
að leitast við að gera stjórnvöldum
betur kleift að stýra þróun fiskeldis.
Hafrannsóknastofnun annast
framkvæmd verkefnisins. Að
öðru leyti vísast til svars við 1. lið
fyrirspurnarinnar.“
3. Hvernig telur ráðherra að
haga beri umgengni um þá
auðlind sem villtir íslenskir
laxfiskar eru og varðveislu
erfðauðlindar þeirra til
framtíðar?
„Ráðherra telur mikilvægt að stuðla
að ábyrgu fiskeldi og tryggja um leið
verndun íslenskra villtra laxastofna
í samræmi við markmið laga um
fiskeldi. Þetta beri að gera með
öflugu opinberu eftirliti auk innra
eftirlits rekstraraðila. Gæta þarf þess
að fiskeldisfyrirtæki fari í einu og
öllu eftir reglum um eldisaðferðir,
sjúkdómsvarnir, sníkjudýr og
búnað. Gerð og framkvæmd
framangreinds áhættumats er
liður í ábyrgu fiskeldi. Meta þarf
niðurstöður slíks áhættumats
og eftir atvikum bregðast við ef
niðurstöður kalla á slík viðbrögð.
Jafnframt gerð áhættumats þarf að
sinna vöktun í ám og vötnum vegna
mögulegrar göngu eldislax upp í
íslenskar ár, þannig að fyrir liggi
eins réttar upplýsingar um umfang
slysasleppinga og göngumynstur
eldislax hér við land og mögulegt
er,“ segir í svari ráðherra. /HKr.
Mikil umsvif vegna veiða í ám og vötnum samkvæmt svari ráðherra:
Stangveiðin er mögulega að velta
um 14 til 17 milljörðum króna á ári
– Engin nýleg úttekt er þó til en vísað til skýrslu Hagfræðistofnunar frá 2004
... Olíur / Síur / Stýrisenda / Legur / Fóðringar /
Sæti / Drifsköft / Skinnur / Bolta / Rær / Þéttisett
/ Yfirtengi / Ljós / Bremsuborða / Stimpla / Slífar /
Pakkningasett / Barka / Púströr / Slöngur / Málningu
/ Rafgeyma / Beisliskúlur / Splitti / Suðufestingar /
Vatnsdælur / Startara / Rafala / Kúplingssett / Perur
/ Pakkdósir / Viftureimar / Spíssa / Keðjur / Stýri /
Öryggisbelti / Mæla / Gaspumpur / Pústgreinar /
Dráttapinna / Olíudælur / Takka / ofl. ofl. ofl.
Eigum og útvegum varahluti, aukahluti og
rekstrarhluti í flestar gerðir dráttavéla.
VIÐ EIGUM...
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
ON, Orka náttúrunnar, hefur í
samstarfi við N1 og fleiri aðila
bætt við þremur hlöðum fyrir
rafbíla á leiðinni milli Akureyrar
og Reykjavíkur.
Nokkrir starfsmenn ON óku á
rafmagns bílum norður til Akureyrar
frá Reykjavík í liðinni viku til að
sækja þing Samorku sem þar fór
fram. Í blíðunni norðan heiða tók
Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra
á móti ferðalöngum, en loftslagsmál
voru í brennidepli á þinginu.
Umhverfisráðherra óskaði
Orku náttúrunnar til hamingju
með áfangann og sagði orkuskipti
í samgöngum vera lykilþátt í
áætlunum stjórnvalda um samdrátt
í losun gróðurhúsalofttegunda. ON
hlaut hæstan styrk úr Orkusjóði um
áramótin til uppbyggingar innviða
fyrir orkuskipti í samgöngum.
Mikilvægt samstarf við N1
Hlöðurnar eru á þjónustustöðvum
N1 í Staðarskála í Hrútafirði og á
Blönduósi og sú þriðja var sett upp
við tengivirki RARIK og Landsnets
rétt við Varmahlíð til bráðabirgða.
Áður var komin hlaða á þjónustustöð
N1 í Borgarnesi. Hraðhleðslur eru
í öllum hlöðunum og í þeim verða
einnig hefðbundnar hleðslur. Bjarni
Már Júlíusson, framkvæmdastjóri
ON, segir að samstarfssamningur
ON við N1, sem gerður var í vetur,
hafi nú þegar sannað gildi með
því að tekist hafi að brúa þennan
fjölfarna hluta hringvegarins fyrir
sumarið.
„N1 vill bjóða viðskiptavinum
þá orkugjafa sem þeir þurfa á þjón-
ustustöðvum okkar og þetta er einn
áfangi á þeirri leið. Nú geta rafbíla-
eigendur slakað á meðan þeir hlaða
bílinn og komist norður og suður
eftir hentugleika,“ segir Eggert Þór
Kristófersson, forstjóri N1, í frétt
á vef ON.
Hringurinn opnaður rafbílum
Orka náttúrunnar hefur lýst þeim
áformum að varða allan hringveg-
inn hlöðum fyrir rafbíla á næstu
misserum. Í erindi sínu á þingi
Samorku varpaði Bjarni Már upp
korti af áformuðum staðsetning-
um. Hann sagði það velta á að ná
góðu samstarfi við heimafólk til að
finna stöðvunum hentugan stað.
Samstarf við RARIK, sem sér um
dreifingu rafmagns víðast hvar á
landsbyggðinni, hefði verið fram-
úrskarandi gott. Í Varmahlíð hefði
að auki þurft þátttöku Landsnets
sem brugðist hefði skjótt og vel við.
Það sýndi að orku- og veitufyrir-
tækin væru samhent í orkuskiptum
í samgöngum, sem væri eitt okkar
stærsta tækifæri í loftslagsmálum.
/MÞÞ
Fjórar hleðslustöðvar fyrir rafbíla
milli Akureyrar og Reykjavíkur
Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri ON, Áslaug Thelma Einarsdóttir,
forst.maður markaðs- og kynningarmála ON, Telma Sæmundsdóttir (ON),
OR og stjórnarformaður ON.
Hlöður ON eru nú 16 talsins. Þær
fyrstu voru settar upp í Reykjavík
Europe á árinu 2014. Nú spanna þær
höfuðborgarsvæðið, Suðurnesin
Akureyrar þar sem ON setti upp
tvær hlöður fyrir ári. Allar bjóða upp
á hraðhleðslu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Alls var úthlutað 79 milljónum króna til 77 verkefna úr Uppbyggingarsjóði
Norðurlands eystra. Á myndinni eru þeir styrkþegar sem viðstaddir voru
athöfn þegar styrkvilyrði voru veitt.
Unnur og Flosi á Hrafnsstöðum
hlutu Heiðurshornið