Bændablaðið - 11.05.2017, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Forsætisráðherra og umhverf-
is- og auðlindaráðherra býður
fjölmiðlum að vera viðstaddir
þegar sex ráðherrar undirrita
samstarfsyfirlýsingu um gerð
aðgerðaráætlunar í loftslags-
málum.
Tíðindakona Bændablaðsins
þiggur boðið. Í anda fundarins
þykir henni við hæfi að hjóla á
staðinn. Tjarnargata er auðvitað
steinsnar og auk þess a.m.k. 10
stiga hiti úti og sól skín í heiði.
Markmið áætlunarinnar
er að Ísland standi við skuld-
bindingar sínar gagnvart
Parísarsamningnum í loftslags-
málum. Samstarfs yfirlýsingin
leggur áherslu á samstillt átak
allra landsmanna, hvort sem þeir
teljist til stjórnvalda, atvinnulífs,
félagasamtaka og almennings.
Með jákvæða ímynd Íslands að
leiðarljósi ætla sameinuð verk-
efnisstjórn og faghópar að velja
hagkvæmar aðgerðir sem skila á
fjölþættum ávinningi. Í lok yfir-
lýsingarinnar segja ráðherrarnir:
„Það er trú okkar að heild-
stæð framtíðarsýn og vel útfærð-
ar aðgerðir sem miða að því að
draga úr losun með aðkomu sem
flestra landsmanna verði til þess
að varða leiðina til loftslagsvænni
framtíðar og styrkja græna ímynd
Íslands. Við munum leggja okkar
af mörkum til að svo megi verða.“
Sem hluti almennings í þessu
landi er fregnkonan í skýjunum
yfir afdráttarleysi ráðherranna.
Spýtt verður í lófana í umhverfis-
málum – undirskriftin er sterkt
tákn um þverpólitískan samein-
ingarmátt. Allir eiga að standa
saman að tryggja lífvænlega fram-
tíð næstu kynslóða – sameinuð
stöndum vér!
Á gírfáknum rennir hún
svipaðan spotta og allir sex ráð-
herrarnir þurfa að fara frá ráðu-
neytum sínum eða Alþingi – innan
við kílómetra löng leið.
Þegar á fundarstað er komið
er ljóst að þetta er viðhafnarfund-
ur. Fulltrúar stjórnvaldsins hafa
ákveðið að standa heiðursvörð
fyrir gesti. Ekki færri en átta
nýbónaðar bensíndrifnar kol-
bikasvartar bifreiðar eru lagðar
kringum Ráðherrabústaðinn.
Þetta er í hrópandi ósamræmi
við allt sem viðburðurinn stóð
fyrir. Það skýtur verulega skökku
við að hafa koltvísýringsspúandi
ríkisbifreiðar fyrir utan fundarstað
meðan samstarf um loftslagsmál
er skjalfest.
Blaðamannafundurinn er í
sjálfu sér lítið annað en tákn-
rænn gjörningur, markaðssetning.
Þarna er verið að vekja athygli
á verkum ríkisstjórnarinnar sem
líkleg eru til að falla í kramið
hjá almenningi. Í upphafi fundar
segir forsætisráðherra að „hlé hafi
verið gert á ríkisstjórnarfundi til
þess að ganga frá samstarfsyfir-
lýsingunni“.
Ekki ætlar fregnkonan að
leggja út af þessu misræmi
öðruvísi en með íslenskri
meginreglu:
Nýta skal veðrið. Kæru
ráðherrar, hefði ekki verið við
hæfi að standa strax við orð
yfirlýsingarinnar og koma
gangandi saman úr miðbænum
í þessum steikjandi hita og
sól, brosandi sameinuð og
umhverfisvæn. Eða, að minnsta
kosti, að sameinast í bíla. /ghp
Umhverfisvæn?
STEKKUR
,,Það var brjálað rok og mígandi
rigning, algjört rugl að vera úti í
svona veðri,“ sagði Árni Kristinn
Skúlason en hann hefur veitt
töluvert í vorbyrjun og var á
Þingvöllum fyrir fáum dögum
þegar aðrir voru bara heima
hjá sér. En stóri urriðinn hefur
verið að gefa sig og kannski mest
á ION-svæðinu.
,,Það lægði í örfáar sekúndur og
þá náði ég flugunni góða 20 metra
út, þá lét ég fluguna sökkva vel
og strippaði hratt inn. Mjög fljótt
strekktist vel á línunni og rauk línan
út með látum.
Eftir góða 60 metra roku
stoppaði fiskurinn og gat ég togað
hann nær mér, þá fann ég hve stór
fiskurinn í raun og veru var, ekkert
smá þungt kvikindi og stöngin í
keng.
Fiskurinn sýndi engin merki um
þreytu og rauk út aftur og aftur þar
til hann gaf sig á endanum, þá eftir
góðan hálftíma á! Ég tók mjög fast
á honum, bremsan í botni, en það
náði ekki að stöðva hann.
Fiskurinn reyndist 91 cm og
9 kg, mældur og vigtaður,“ sagði
Árni við baráttuna á Þingvöllum.
– Hvað er að frétta úr Brúaránni?
,,Vorveiðin í Brúará í landi Sels
hefur verið ágæt, Unnar Örn, frændi
minn, fór núna um daginn og fékk
nokkra fína urriða.
Áin hefur verið frekar vatnsmikil
og erfið en alltaf hægt að gera góða
veiði. Núna er að hlýna og bleikjan
ætti að fara að gefa sig,“ segir Árni
Kristinn, sem eyðir miklum tíma
við ána enda á hann heima þar rétt
hjá henni. Og segir veiðimönnum
þar til um veiðina stóran hluta
sumars.
Þingvallavatn:
Stóri urriðinn hefur verið að gefa sig
Uppáhalds veiðisvæði:
Elías Pétur Þórarinsson velur
Vatnsdalsá í Vatnsfirði
,,Það er ekki auðvelt að velja sér
eitt veiðisvæði sem sitt eina og
sanna uppáhald. Það er þó eitt sem
stendur klárlega upp úr hjá mér,
Vatnsdalsá í Vatnsfirði. Þaðan á
ég frábærar minningar, þá sér-
lega með föður mínum heitnum,
þar sem veiðin sjálf var þó oft
einungis aukaatriði,“ segir Elías
Pétur Þórarinsson, maður með
veiðidellu.
,,Vatnsdalsáin er í raun tvær ár.
Neðri áin rennur úr Vatnsdalsvatni
og er afskaplega stutt, eða einungis
um 700 metra löng. Á þessum stutta
kafla er þó nóg af veiðistöðum og er
í raun hægt að hitta á lax og bleikju
alls staðar, þá sérstaklega á göngu-
tíma.
Það er oft mikið stuð að vera við
fossana, neðst í ánni, þegar að stór-
ar laxagöngur skríða inn á flóðinu.
Þarna veiði ég mikið á litlar yfir-
borðsflugur og oft er hægt að sjón-
kasta á laxana en það er einmitt mín
uppáhaldsveiði.
Í efri ána gengur svo laxinn
þegar líða fer að ágúst. Hægt er að
keyra dágóðan spöl upp með ánni,
að svokallaðri smalahellu. Þaðan er
svo um 20–25 mínútna ganga upp
að efsta veiðistað sem er í fallegu
gljúfri. Örlítið neðar, í löngum og
hægum hyl sem umlukinn er háum
klettaveggjum, er oft hægt að gera
glettilega góða bleikjuveiði, þá sér-
lega fyrri part sumars.
Efri áin er nokkuð minni en sú
neðri og er í raun nokkuð svipuð
að stærð og Elliðaárnar. Þar eru
margar gullfallegar breiður sem eru
eins og hannaðar fyrir fluguveiði.
Þar líður mér best, lengst uppi í dal,
umkringdur birkitrjám og berjalyngi,
í engu símasambandi, að eltast við
lax.
Við feðgarnir tókum alltaf eina
árlega ferð í Vatnsfjörðinn og var
það ávallt hápunktur veiðisumarsins
hjá okkur báðum. Í ár verður það því
miður eingöngu hápunktur sumars
míns en þó munu nýir veiðifélagar
slást með í för og nýjar minningar
verða til og hver veit nema að
Vatnsdalsáin nái að heilla þá upp úr
skónum líkt og hún gerði svo auð-
veldlega með mig,“ segir Elías enn
fremur.
NYTJAR&VEIÐI
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Mynd / Flugubúllan
Veiðileyfin í sumar:
Kosta frá 6 til 650 þúsund
Presturinn í Árbæjarkirkju, séra
Þór Hauksson, hefur reynt núna
í nokkur ár að veiða lax en ekki
gengið sem skyldi, en veiddi
flottar bleikjur í Brekkudalsá í
fyrra.
Hann segir að þetta sé sumarið
sem hann fái maríulaxinn. Verður
spennandi að sjá hvernig það gengur
hjá honum.
Það er enn þá til veiðileyfi víða
þrátt fyrir að salan hafi gengið vel í
vetur. Bæði dýr og ódýr veiðileyfi.
Það er hægt að komast í laxveiði
fyrir 6–7 þúsund ódýrast en líka
allt upp í 600–650 þúsund daginn.
Og svo er auðvitað silungurinn
ódýrari og jafnvel laxavon eins og
á Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi.
Allt virðist benda til að Hreggnasi
verði næsti leigutaki Hafralónsá í
Þistilfirði en tilboð í ána voru opnuð
fyrir fáum dögum. Veiðifélagið er að
skoða málið en fjögur tilboð bárust
í hana.
-
Mynd / G.Bender
Bleikjuveiðin gæti bara
orðið góð í sumar
,,Þó heimilt sé að veiða í vötnum
alla mánuði ársins þá er það venj-
an að miða við að vorveiðin hefjist
þann 1. apríl.
Það sem af er vori eru ágætar
fréttir úr vorveiðinni fyrir sunnan
og austan, sjóbirtingurinn virðist
koma vel undan vetri,“ segir Bjarni
Júlíusson, staddur við Breiðafjörðinn
með stöng í hendi. Hraunsfjörðurinn
gefur oft í sumarbyrjun.
,,Þingvallavatnið opnaði með
látum, þar hefur gengið mjög vel,
þrátt fyrir kuldahretið undanfarna
daga. Annars hefur vatnaveiðin verið
frekar róleg. Af Snæfellsnesinu eru
litlar fréttir. Vötnin á Vatnaleiðinni
eiga eftir að koma sterk inn í sumar,
Baulárvallavatn, Hraunsfjarðarvatn
og Selvallavatn, þegar hlýn-
ar. En veiðimenn hafa litið við í
Hraunsfirðinum. Þar er allur ís horf-
inn, en ennþá er vatnið gríðarlega
kalt og engar veiðifréttir að hafa,“
sagði Bjarni og heldur áfram að
reyna.
Bjarni leit þar við fyrir skömmu
enda mikið af Nesinu. Hann varð
ekki var, enda lofthiti 2°C og
vatnshitinn ekki nema rúmar 3°C.
En hann telur að um leið og hitinn
fer að hækka, þá fari bleikjan að taka.
Vatnsstaðan í lóninu er óvenjulega
há miðað við árstíma, það er mun
meira í því en t.d. í fyrra.
Bjarni er bjartsýnn á sjóbleikjuna.
„Mér finnst hún vera á mikilli upp-
leið í ám hér við Breiðafjörðinn.“
Við sáum talsvert af bleikju í smáán-
um hér innarlega á nesinu í fyrra og
Hraunsfjörðurinn var óvenjulega
gjöfull. Ég er viss um að það verð-
ur mikil og góð sjóbleikjuveiði hér
í sumar,“ sagði Bjarni.
Mynd / / G.Bender
Bændablaðið
Kemur næst út
24.
maí
Mynd / ghp