Bændablaðið - 11.05.2017, Síða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Háskólinn á Hólum
Hagnýtt háskólanám
• Ferðamálafræði
• Stjórnun ferðaþjónustu og móttaka gesta
• Viðburðastjórnun
• Fiskeldisfræði
• Reiðmennska og reiðkennsla
Tækifærin eru í okkar greinum
Hólaskóli -
Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is
Háskólasamfélag með langa sögu
Hólar í Hjaltadal er í senn mikill
sögustaður og útivistarparadís.
Háskólinn á Hólum er lítill en
öflugur háskóli sem sinnir kennslu
og rannsóknum á sviði ört
vaxandi atvinnugreina.
w
w
w
.h
ol
ar
.is
Samstarf hrossabænda og Landgræðslunnar:
Fjallað um Hagagæði á ÍNN
Börnin voru vel ríðandi og hver sýningarhópur var með sérstakt þema, t.d. indíánar. Myndir /MHH
HROSS&HESTAMENNSKA
Bjarni Maronsson, verkefnisstjóri Hagagæða (starfsmaður Land-
græðslunnar) og Sveinn, formaður Félags hrossabænda.
Mynd / Áskell Þórisson
Í byrjun síðustu viku var
sjónvarpsþáttur um verkefnið
„Hagagæði“ sendur út hjá ÍNN.
Þátturinn er mjög athyglisverður
og lýsir vel metnaðarfullum
tilraunum hrossabænda um
að bæta nýtingu beitarlands
í samstarfi við Landgræðslu
ríkisins.
Þátturinn um hagagæði er hluti
af þáttaröðinni Græðum landið
sem Áskell Þórisson stýrir, en hann
sér einnig um kvikmyndatöku og
vinnslu.
Hagagæði er verkefni á vegum
Landgræðslunnar og Félags
hrossabænda. Verkefninu er ætlað að
tryggja sjálfbæra nýtingu beitarlands,
velferð hrossa, auka ábyrgð
landnotenda, sem vörslumanna
lands og að auka umhverfisvitund
landeigenda og landnotenda. Finna
má þáttinn á slóðinni http://www.
inntv.is/Horfa_a_thaetti/Graedum_
landid/?play=215668489
Tengist gæðastýringunni
Árið 2000 hófst gæðastýring í
hrossarækt. Hún tekur á þáttum,
sem lúta að áreiðanleika ætternis
og uppruna hrossanna, velferð
þeirra og verndun landgæða. Félag
hrossabænda og Fagráð í hrossarækt
áttu frumkvæði að gæðastýringu í
hrossarækt og þátttaka í henni er
valkvæð. Markmið landnýtingarþáttar
gæðastýringarinnar eru m.a. að
tryggja sjálfbæra nýtingu beitarlands,
að tryggja velferð hrossa og auka
ábyrgð landeigenda sem vörslumanna
lands.
Hrossabændur hafa oft legið
undir ámæli fyrir ofnýtta haga og
landníðslu. Sú umræða var áberandi
á árunum milli 1990 og 2000 í kjölfar
mikillar fjölgunar hrossa í landinu.
Könnun á ástandi hrossahaga, sem
gerð var sumrin 1995 og 1996,
benti til þess að beitarástand á
stórum svæðum væri óviðunandi
hjá 254 aðilum. Þá voru gerðar
athugasemdir við ástand og nýtingu
lands í vörslu 522 aðila. Árið 1996
var hrossafjöldinn sá mesti sem verið
hefur í landinu, eða rúm 80 þúsund
hross, og hafði fjölgað um tæp 30
þúsund frá árinu 1980. Síðan hefur
hrossum fækkað og samkvæmt þeim
tölum sem fyrir liggja eru þau nú
rúmlega 70 þúsund.
Til að taka enn betur á þessum
málum var tekið upp náið samstarf
milli Félags hrossabænda og
Landgræðslu ríkisins í verkefni sem
nefnt hefur verið „Hagagæði“ og
snýst um landnýtingu og úttektir á
hrossahaga. Tilgangurinn er:
• Að tryggja sjálfbæra nýtingu
beitarlands.
• Að tryggja velferð hrossa.
• Að auka ábyrgð landnotenda,
sem vörslumanna lands.
• Að auka umhverfisvitund
landeigenda og landnotenda.
Landgræðsla ríkisins stýrir
verkefninu Hagagæði og annast
úttektir lands. Sérfræðingar
Landgræðslunnar í beitarmálum sjá
um starfsþjálfun og samræmingu
mats þeirra er vinna að úttektunum
og setja þeim nánari vinnureglur um
flokkun lands í úttektareiningar sem
eru:
1. Ræktað land.
2. Úthagi.
3. Geymsluhólf fyrir brúk-
unarhross.
4. Stóðhestahólf.
5. Afréttir.
Úttekt fer fram á tímabilinu 15. ágúst
til 15. nóvember ár hvert. Jörð skal
vera snjólaus þegar úttekt fer fram.
/HKr.
Hestafjör á Selfossi
Hið árlega Hestafjör Hestamanna-
félagsins Sleipnis var haldið
í Sleipnis höll inni að
Brávöllum á
Selfossi sunnu-
daginn 30. apríl.
Ungir félagar
Sleipnis sýndu
fáka sína og riðu
munsturreið auk
þess sem ýmis
s k e m m t i a t r i ð i
verða í boði. Fjörið
tókst einstaklega
vel, flottir knapar
og full stúka af
áhorfendum sem
fylgdust með
u p p r e n n a n d i
knöpum. /MHH
Knapar og hestar voru vel
voru þeir allir háir í loftinu sem
sátu hesta sína og tóku þátt í
hestafjörinu.
Ólafur Ívar veifar hér til áhorfenda eftir vel heppnaða sýningu.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300