Bændablaðið - 11.05.2017, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Enn er hart tekist á um raflínu-
lagnir á Íslandi og erfiðlega hefur
gengið að sætta sjónarmið þeirra
sem vilja halda áfram lagningu
loftlína og hinna sem vilja fremur
leggja raflagnir í jörðu. Þetta kann
þó að vera að breytast.
Íslensk stjórnvöld og yfirstjórn
orkumála í landinu munu á
endanum neyðast til þess að taka
tillit til vaxandi andstöðu við
lagningu loftlína, hvort sem þeim
líkar það betur eða verr. Þar spilar
ferðaþjónustan og tilfinning fyrir
náttúrufegurð stóra rullu sem og
einföld skynsemi þegar rætt er um
rekstrar- og afhendingaröryggi á
raforku. Þar eru íslensk stjórnvöld
alls ekki sér á báti því hafin er vinna
af miklum krafti víða um lönd við að
skipta út loftlínum fyrir jarðstrengi.
Forsendurnar eru þær sömu, eða ört
vaxandi andstaða við loftlínur.
Í Evrópu eru flest háspennu jafn-
straumsverkefni (HVDC) tengd
þróun í innleiðingu á endurnýjanlegri
orku. Þar er aðallega um að ræða
lagningu jarð- og sæstrengja, en
nokkuð er þó talað um skort á sam-
ræmdum reglum í álfunni. Staðan
í Evrópu er þó allt önnur en t.d. í
Bandaríkjunum þar sem einkarekin
raforkufyrirtæki hafa ráðið ferðinni
með lagningu loftlína. Þar hafa menn
forðast að leggja jarðstrengi vegna
arðsemissjónarmiða fyrirtækjanna
sjálfra.
Enginn nýr sannleikur
Í október 2013 greindi Bændablaðið
frá þróun raflagnamála í Frakklandi
þar sem umfangsmiklar áætlanir
voru um að leggja háspennustrengi
í jörðu í stað þess að hengja þá í risa-
vaxin möstur með tilheyrandi sjón-
mengun. Í þessari grein, sem skrifuð
var af Ólafi Valssyni, kom fram að
kostnaður við lagningu jarðstrengja
með allt að 400 megawatta flutnings-
getu væri orðinn sambærilegur og
við loftlínulögn. Þessar upplýsingar
voru þá þvert á fullyrðingar framá-
manna í orkugeiranum á Íslandi sem
fundið höfðu raflínulögn í jörðu flest
til foráttu. Þar var mikill kostnaður
umfram loftlínulögn sagður helsti
þröskuldurinn, en viðhorfin eru
þó greinilega ört að breytast, jarð-
strengjunum í hag.
Kostir jarðstrengja
vinna verulega á
Þegar litið er á kosti og galla
rafstrengja er þar oftast tvennt efst
á baugi. Það er hærri stofnkostnaður
en sagður er við loftlínur og minni
flutningsgeta nema til komi sérstök
kæling á strengjum. Hvorugt þarf þó
í raun ekki að vera vandamál, sér í
lagi ef horft er á íslenskar aðstæður.
Kostirnir eru helstir þeir að
sjónmengun hverfur að mestu við
lagningu jarðstrengja og viðhald
verður hverfandi miðað við loftlínur.
Hvorutveggja hefur þegar sýnt
sig hérlendis. Varðandi viðhald,
þá hefur lagning jarðstrengja á
sumum svæðum á Vestfjörðum,
Norðurlandi og á Austfjörðum til
dæmis komið í veg fyrir nær árlegt
stórtjón á raflínum vegna snjóflóða
og orkutruflana af völdum veðurs,
ísingar og seltu. Erfiðleikar við
bilanaleit í jarðstrengjum hafa líka
verið nefndir, en einnig þar kann
vandamálið brátt að verða að engu.
ABB komið með lausn á
bilanaleit í jarðstrengjum
Einn óumdeildur galli við lagningu
jarðstrengja fram að þessu hefur
verið að á milli spennistöðva getur
verið mjög erfitt að staðsetja bilanir
sem kunna að koma upp á strengj-
unum. Þar hefur ekki dugað að fikra
sig meðfram strengjunum sem eru
undir yfirborði jarðar og leita bilunina
uppi eins og hægt er að gera varðandi
loftlínur. Ekki gengur heldur að grafa
niður á strengina hér og þar í von um
að hitta á bilunina. Nú kann að verða
breyting á þessu með jarðstrengjabil-
analeitartækni alþjóðafyrirtækisins
ABB sem eykur öryggi í rekstri slíkra
raforkukerfa.
Tæknimenn ABB hafa í mörg
undanfarin ár reynt að finna leiðir
til að staðsetja bilanir í jarðstrengj-
um. Nú hafa þeir í samvinnu við
viðskiptavini fyrirtækisins og ýmsar
vísindastofnanir dottið niður á lausn
sem kynnt var fyrr á þessu ári. Er
hún kölluð „Earth fault locating
technology“ en fyrirtækið var verð-
launað fyrir þessa tækni þann 25. jan-
úar á viðskiptaráðstefnu í Tampere.
Var þeim veitt svokölluð „Network
Initiative of the Year“ verðlaun, eða
uppgötvun ársins.
Finnar í stórsókn við að skipta út
loftlínum með jarðstrengjum
Í Finnlandi stendur nú yfir endur-
skipulagning á raforkukerfinu upp á
milljónir evra. Það felst að verulegu
leyti í að jarðstrengir leysi loftlínur af
hólmi í takt við finnska löggjöf. Það
hefur kallað á alveg nýjar aðferðir
við bilanaleit sem gerði slíka leit ekki
erfiðari en þekkist varðandi loftlín-
ur. Nýja aðferð ABB byggir að því
er virðist frá leikmannssjónarhóli á
að staðsetja bilanir með því að mæla
spennumismun á mörgum tíðnisvið-
um (multifrequency).
Fjölmörg fyrirtæki hafa verið að
reyna að leysa vandann við bilana-
leit á jarðstrengjum m.a. með því
að reyna að staðsetja útleiðni með
mælingum en það hefur ekki reynst
auðvelt. Aðferð ABB þykir því mik-
ilvægt skref í þessum fræðum.
ABB hefur í meira en fjóra ára-
tugi verið leiðandi á sviði starfrænn-
ar tækni og smíði ýmiss konar raf-
magnsstýringa bæði fyrir lágspennu-
og háspennukerfi. Hefur fyrirtækið
sett upp 70.000 stýrikerfi um allan
heim og 70 milljón stýritæki. Þar eru
í raun allar iðngreinar undir, ekki síst
raforkuiðnaður og einnig matvæla-
iðnaður.
Varð til við samruna ASEA og
Brown Boveri
Byggir fyrirtækið á meira en 130 ára
sögu, en það er með starfsemi í yfir
100 löndum og með um 132.000
starfsmenn. Byggingariðnaður, sam-
göngur, raforkudreifing og vindorka
taka til sín meirihlutann af umfangi
ABB. Fyrirtækið eins og það er í
dag varð í raun til 1988 við samruna
ASEA í Svíþjóð og Switzerland BBC
sem áður hér Brown Boveri og er
betur þekkt nafn hérlendis. Bæði fyr-
irtækin voru áður ein þekkt ustu raf-
magns- og rafeindafyrirtæki í Evrópu.
Við samrunann varð til gríðarlega
öflug samsteypa.
Margar uppgötvanir hafa komið
frá fyrirtækinu á orkusviði á undan-
förnum árum. Má þar t.d. nefna það
sem kallað er „hybrid DC breaker“
sem kynntur var 2012 og mætti
kannski kalla „blendingsjafnara“.
Þarna er um að ræða eins konar
straumbreyti eða spennujafnara
fyrir háspennu jafnstraumsspennu
(HVDC). Fram til þess tíma höfðu
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
FRÉTTASKÝRING
Mikil raforkumannvirki með línum sem hengd eru í há möstur og lagðar þvers og kruss um fallega náttúru valda sífellt meiri andstöðu. Þar er bæði um að ræða andstöðu vegna sjónrænnar
mengunar og ótti við rafsvið í kringum háspennulagnirnar. Krafan um jarðstrengi verður því æ háværari eins og í Skandinavíu, þýskalandi, Frakklandi og víðar í Evrópu. Mynd / ABB
Lagning jarðstrengja og háspenntra jafnstraums-
kerfa komin í forgang víða um Evrópu
– Á Íslandi virðast menn ætla að ríghalda í loftlínulagnir þrátt fyrir mikil mótmæli
Jarðstrengir ryðja sér nú til rúms í stað loftlína sem þykja ekki mikið
augnayndi.
Háspennu-jafnstraumsjarðstrengir, eða svokallaðir HVDC-strengir.
Í Sjanghæ í Kína var lagður 500 kílóvolta og 17 km XPLE strengur í sérstök-
um lagnagöngum. Hann er sagður fyrsti og lengsti innanborgarstrengurinn
af þessari stærð og var lagður vegna heimssýningarinnar í Sjanghæ 2010.
Það er ýmsum aðferðum beitt við að leggja háspennulínur í jörð.