Bændablaðið - 11.05.2017, Page 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
fyrir orkukerfið. Þær takmarki það
rafmagn sem bíllinn eða geymarnir
draga til sín við hleðslu, miðað
við aflgetu raflagna á staðnum. Ef
reynt er að ná meiri orku í einu út úr
rafstrengjunum en þeir eru hannaðir
fyrir, þá ofhitna þeir og geta valdið
eldsvoða.
Hann segir að það sé því í raun
rangt að tala um hleðslutæki fyrir raf-
bíla, því þau eru einungis að skammta
hleðsluna í takt við það rafmagn sem
hægt er að ná út úr raforkukerfinu.
Óskar segir þó engan mun á að
setja upp svona „hleðslutæki“ og að
stinga rafbíl beint í samband. Tækinu
er einfaldlega stungið í samband við
rafkerfið sem fyrir er.
„Það sem gerist þegar rafbíll er
settur í samband við hleðslutækið er
að tölva bílsins sendir frá sér merki
í hleðslutækið og spyr í raun hversu
afkastamikið tækið sé. Tækið gefur þá
upp hver rafstraumsgetan er, t.d. með
upplýsingum um að hægt sé að hlaða
á 32 amperum í gegnum einn fasa
inn á bílinn. Þá gerir tækið mælingu
á bílnum og athugar m.a. hvort ein-
hver útleiðsla sé í bílnum. Um leið og
grænt ljós kemur á samskiptin milli
bíls og hleðslutækis hefst rafhleðslan
inn á bílinn. Síðan stýrir búnaður í
bílnum hleðslunni miðað við gefnar
upplýsingar frá hleðslutækinu.
Það sem þarna þarf að hafa í huga
er að raflögnin að tækinu sé nógu
burðug og sver til að geta mætt þörf
bílsins sem á að hlaða. Aðalhættan við
uppsetningu þessara tækja er að menn
átta sig ekki á því að það þarf yfirleitt
að setja sverari streng að tækinu en
að sambærilegum tengli. Það er vegna
þess að verið er að hlaða á fullu álagi
í kannski sex til sjö klukkustundir.
Í gegnum strenginn fer því mikill
straumur á þessum tíma og of grannir
rafstrengir geta hitnað mjög mikið.“
Óskar segir að upplýsingar um
sverleika strengja sem nauðsynlegir
séu komi fram í leiðbeiningum með
tækjunum. Það vilji þó stundum skorta
á að menn lesi vel allar leiðbeiningar
þegar þeir kaupa ný tæki.
– Menn virðast vera að hugsa
rafhleðslustöðvar á sveitabæjum
sem eins konar bensínstöðvar til að
þétta hleðslunetið fyrir rafbíla. Verða
menn þá ekki líka að hafa í huga að
hleðslan tekur langan tíma og að
þá sé nauðsynlegt að til staðar sé
aðstaða fyrir þá sem vilja láta hlaða
bíla sína?
„Rafhleðslutæki á sveitabæjum
nýtast ekki fyrir neinn nema að fólk
geti stoppað þar í einhvern tíma. Þetta
er ekki eins og að setja bensín á bíl.“
Hraðhleðslustöðvar með
100 km millibili
„Við erum nú að setja upp
hraðhleðslustöðvar í Staðarskála,
á Blönduósi og í Varmahlíð. Þetta
eru tæki sem eru ekki ósvipuð
bensíndælum að stærð og um tveir
metrar á hæð. Þau kosta líka tæpar
3 milljónir króna stykkið. Þær hlaða
inn á bílinn með jafnspennu en ekki
með riðstraum eins og litlu heim-
ilisstöðvarnar. Þá taka þau til sín
gríðarlega orku, eða 160 amper í
gegnum þriggja fasa streng. Slíkt
afl er alls ekki fyrir hendi á öllum
sveitabæjum.
Svona hraðhleðslustöðvar hafa
ekkert að gera á staði utan hring-
vegarins eða þéttbýlis. Menn hafa
ekkert með svona hraðhleðslustöðv-
ar að gera á sveitabæjum. Þar geta
menn verið með minni stöðvar sem
geta fullhlaðið rafmagnsbíl á 10
tímum eða skemur. Slíkt gæti verið
mjög sniðugt á bæjum sem bjóða
upp á gistiþjónustu.“
Orka náttúrunnar í fararbroddi
„Sem stendur er Orka náttúrunnar
leiðandi í uppsetningu hraðhleðslu-
stöðva í þéttbýlisstöðvum í kringum
Reykjavík. Þar er líka verið að stefna
á að setja upp hraðhleðslustöðvar
með um 80 til 100 km millibili
við hringveginn. Það verður gert í
sumar.“
Þá hyggjast rekstraraðil-
ar í Kerlingarfjöllum koma upp
hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Þar
eru menn einkum að horfa á mark-
aðstækifæri og jákvæða ímynd.
Ýmsir ferðaþjónustubændur munu
vera að hugsa á svipuðum nótum.
Hröð þróun í hönnun rafbíla
Í þessu sambandi verða menn líka
að hafa í huga hvernig rafbílarn-
ir eru útbúnir. Þar má t.d. nefna
Volkswagen Golf sem hefur verið
mjög vinsæll. Hann getur einungis
hlaðið á 16 amperum um einfasa
streng á riðspennu. Hann getur
hreinlega ekki tekið við meiri orku
í einu. Það tekur því allt að átta
klukkustundir að hlaða slíkan bíl.
Nissan Lif er með stærri raf-
geyma. Hann er hægt að hlaða að
hámarki á 32 amperum og það tekur
um 5 klukkustundir að hlaða hann
frá 0 og upp í 100%.
Það er þó stöðugt verið að stækka
geymana í rafbílunum til að auka
drægnina. Um leið geta þeir tekið
við meiri hleðslustraum. Þannig var
nýlega kynntur Renault Zoe. Hann
getur tekið þrisvar sinnum 32 amper
og er með 22 kílówatta lithium – ion
batterí og á að komast um 210 km
á hleðslunni. Þú getur fullhlaðinn
hann í þriggja fasa stöð sem getur
skilað 32 amperum á tveim til þrem
klukkustundum. Slíkur bíll getur
líka nýtt sér hraðhleðslustöðvarnar.
Þá fara að koma inn bílar með
300 km drægni. Á slíkum bílum
getur maður treyst því að komast
frá Reykjavík austur í sveit og til
baka án þess að þurfa að stoppa til
að hlaða bílinn á leiðinni.
Opel Ampera með 500 km drægni
Smábílinn Opel Ampera er einn
af þessum nýju bílum sem Óskar
nefnir. Hann er gefinn upp með að
hámarki 500 km drægni og er ekki
nema 7,3 sekúndur að ná hundrað
km hraða. Hámarkshraði þessa bíls
er 150 km á klukkustund. Með 240
volta hleðslutæki tekur það um
9,5 klukkustundir að fullhlaða raf-
geymana. Á hraðhleðslustöðvum
væri hægt að ná 145 km drægni á 30
mínútum. Þessi bíll er líka í boði á
Bandaríkjamarkaði. Sagt er að hægt
sé að hlaða hann á 110 volta kerfinu
sem þar er almennt notað, en slíkt
tekur óheyrilegan tíma. Kannski
mun þróunin í rafbílunum leiða til
þess að Bandaríkjamenn neyðist
til að skipta úr 110 voltum í mun
hagkvæmara 240 volta orkukerfi.
Helsti galli við þennan bíl verður
líklega verðið.
Frost ekki vandamál
„Hér á landi verður yfirleitt ekki það
mikið frost að það skipti verulegu
máli varðandi rafbílana. Þá er líka
hægt að vera með bílana í sambandi
yfir nótt og kveikja á miðstöðinni í
gegnum síma tímanlega áður en lagt
er af stað. Bíllinn er því orðin heitur
þegar tekið er úr sambandi og lagt
af stað. Því er ekki verið að eyða
orku af geymum í upphafi ökuferð-
ar til að hita rýmið í bílnum. Þetta
kallar á aðeins öðruvísi hugsun,“
segir Óskar.
Þetta er reyndar líka þekkt varð-
andi bensín og dísilbíla. Þar er hægt
að tengja hitakerfi bílanna við heim-
ilisrafmagn og fjarstarta bílunum
tímanlega áður en lagt er af stað.
Stærð geymanna ræður
hleðslutíma
Hversu lengi er verið að hlaða á
rafgeyma í þessum hraðhleðslu-
stöðvum?
„Það fer allt eftir stærð gey-
manna. Fyrir tveim til þrem árum
voru algengir bílar á markaðnum
með 24 kílówattstunda (kWst) raf-
geymum. Nú er Nissan t.d komin
með 30 kílówattstunda geyma og
á næsta ári eru menn að tala um
bíla með 45 til 50 kWst rafgeyma.
Geymarnir eru því stöðugt að
stækka til að fá meiri akstursdrægni.
Um leið þarf öflugri hleðslu-
tengingar.“
Einfaldar hleðslustöðvar ekki
dýrar
Hver er kostnaðurinn við stöðv-
ar sem líklegar eru til notkunar
á sveitabæjum sem bjóða upp á
gistingu?
„Verðið getur verið í kringum
100 þúsund krónur fyrir utan virðis-
aukaskatt fyrir stöð til að hlaða einn
bíl. Síðan eru líka til stærri stöðvar
sem eru hugsaðar fyrir fyrirtæki og
geta hlaðið tvo bíla í einu. Þær eru
útbúnar með kortalesara þannig að
eigandi stöðvarinnar getur selt raf-
magn inn á rafbíla þeirra sem eru
handhafar slíkra korta. Svona stöðv-
ar kosta um 400 þúsund krónur fyrir
utan virðisaukaskatt.“
– Er ekki allt eins sniðugt að
vera bara með ódýrari stöðvarnar
og selja orkuna á föstu verði líkt og
gert er fyrir notkun á tjaldstæðum?
„Það er mjög sniðug leið. Þá
kostar ein hleðsla bara ákveðna upp-
hæð burtséð frá því hvort menn taka
lítið eða mikið. Það mætti líka hugsa
sér að hver klukkustund í hleðslu
kostaði ákveðna upphæð.
Vandamálið í öllum þessum
vangaveltum er þó að það eru ekki
nema 1.200 hreinræktaðir rafbílar
í landinu á móti 240 þúsund bílum
sem nota aðra orkugjafa en rafmagn.
Enn sem komið er er drægnin
ekki næg til að fólk taki rafbíla
almenn fram yfir aðra bíla. Menn
vilja t.d. geta komist á Selfoss og til
baka án þess að þurfa að eyða tíma
til að hlaða bílinn líka. Þá eru raf-
bílarnir líka talsvert dýrari en aðrir
bílar. Enn sem komið er treystir fólk
því ekki á að komast til baka ef það
fer á rafbílunum út fyrir þéttbýlið.
Óskar segir að á næstu misser-
um og árum muni margt breytast í
umhverfinu til hagsbóta fyrir raf-
bílanotkun. Þróun bílanna sjálfra
sé á fullri ferð, framboðið að
aukast sem og þjónustan við bílana.
Áhuginn fyrir að kaupa slíka bíla
muni því líklega fara ört vaxandi.
Þá sé Ísland í mjög góðri stöðu hvað
hreina orku varðar til nota á raf-
bíla sem muni draga úr innkaupum
Íslendinga á jarðefnaeldsneyti.
Fullt af tækifærum
„Það eru fullt af tækifærum í raf-
bílavæðingunni þótt enn séu raf-
bílarnir fáir og ekki þurfi að búast
við að fjárfesting í hleðslustöðvum
skili sér mjög hratt inn.
Ég held að fyrir marga bændur
geti þetta verið mjög sniðugt, eink-
um þá sem eru í ferðaþjónustu. Svo
ekki sé talað um bændur sem fram-
leiða sitt eigið rafmagn úr bæjar-
læknum,“ segir Óskar Gústavsson.
/HKr.
Smábíllinn Opel Ampera er einn af þessum nýju rafbílum sem er á leið á
markaðinn og er með meiri drægni en algengast hefur verið. Hann á að
komast um 500 kílómetra á einni hleðslu.
Litsýn er eitt þeirra fyrirtækja sem
flytur inn og selur hleðslustöðvar
fyrir rafbíla. Þar er um að ræða
einfasa hleðslustöðvar frá Besen-
Group í Kína.
Samkvæmt heimasíðu Besen –
Group er fyrirtækið með um 16 ára
reynslu í smíði rafhleðslustöðva,
einkum fyrir kínverskan markað.
Þá er fyrirtækið í samstarfi við fyr-
irtæki í þessum geira í Evrópu og
Bandaríkjunum.
Magnús Guðmundsson, raf-
eindavirki í Litsýn, segir að þegar
sé búið að flytja inn fjölmargar
hleðslustöðvar frá Besen. Það eru
einkum einstaklingar sem hafa verið
að kaupa þær og þá ekki síst þeir
sem hafa verið að fá Volvo-bíla og
bíla frá Bandaríkjunum. Þá segir
hann nokkuð um að fólk hafi verið
að kaupa hleðslubúnað í stað bún-
aðar sem átti að fylgja bílunum en
hafði verið stolið úr þeim einhvers
staðar á leiðinni til landsins.
Verðið á hleðslustöðvunum frá
Besen er frá 62.900 til 94.900 og
uppfylla þær allar IP 55 staðalinn.
Þær eru frá 10 og 32 ampera. Þær
er hægt að fá bæði með innstungum
fyrir bíla eins og Nissan Leaf og
WV Golf. /HKr.
Litsýn með hleðslustöðvar frá Besen
Rafbílar frá Volkswagen hafa verið vinsælir hér á landi. Hér er VW-Golf-GTE
rafbíll.
Rafbílar frá Tesla hafa þótt einna mest spennandi í augum bílaáhugamanna.
í framleiðslu rafhleðslustöðva fyrir
bíla.