Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 27

Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 fyrir orkukerfið. Þær takmarki það rafmagn sem bíllinn eða geymarnir draga til sín við hleðslu, miðað við aflgetu raflagna á staðnum. Ef reynt er að ná meiri orku í einu út úr rafstrengjunum en þeir eru hannaðir fyrir, þá ofhitna þeir og geta valdið eldsvoða. Hann segir að það sé því í raun rangt að tala um hleðslutæki fyrir raf- bíla, því þau eru einungis að skammta hleðsluna í takt við það rafmagn sem hægt er að ná út úr raforkukerfinu. Óskar segir þó engan mun á að setja upp svona „hleðslutæki“ og að stinga rafbíl beint í samband. Tækinu er einfaldlega stungið í samband við rafkerfið sem fyrir er. „Það sem gerist þegar rafbíll er settur í samband við hleðslutækið er að tölva bílsins sendir frá sér merki í hleðslutækið og spyr í raun hversu afkastamikið tækið sé. Tækið gefur þá upp hver rafstraumsgetan er, t.d. með upplýsingum um að hægt sé að hlaða á 32 amperum í gegnum einn fasa inn á bílinn. Þá gerir tækið mælingu á bílnum og athugar m.a. hvort ein- hver útleiðsla sé í bílnum. Um leið og grænt ljós kemur á samskiptin milli bíls og hleðslutækis hefst rafhleðslan inn á bílinn. Síðan stýrir búnaður í bílnum hleðslunni miðað við gefnar upplýsingar frá hleðslutækinu. Það sem þarna þarf að hafa í huga er að raflögnin að tækinu sé nógu burðug og sver til að geta mætt þörf bílsins sem á að hlaða. Aðalhættan við uppsetningu þessara tækja er að menn átta sig ekki á því að það þarf yfirleitt að setja sverari streng að tækinu en að sambærilegum tengli. Það er vegna þess að verið er að hlaða á fullu álagi í kannski sex til sjö klukkustundir. Í gegnum strenginn fer því mikill straumur á þessum tíma og of grannir rafstrengir geta hitnað mjög mikið.“ Óskar segir að upplýsingar um sverleika strengja sem nauðsynlegir séu komi fram í leiðbeiningum með tækjunum. Það vilji þó stundum skorta á að menn lesi vel allar leiðbeiningar þegar þeir kaupa ný tæki. – Menn virðast vera að hugsa rafhleðslustöðvar á sveitabæjum sem eins konar bensínstöðvar til að þétta hleðslunetið fyrir rafbíla. Verða menn þá ekki líka að hafa í huga að hleðslan tekur langan tíma og að þá sé nauðsynlegt að til staðar sé aðstaða fyrir þá sem vilja láta hlaða bíla sína? „Rafhleðslutæki á sveitabæjum nýtast ekki fyrir neinn nema að fólk geti stoppað þar í einhvern tíma. Þetta er ekki eins og að setja bensín á bíl.“ Hraðhleðslustöðvar með 100 km millibili „Við erum nú að setja upp hraðhleðslustöðvar í Staðarskála, á Blönduósi og í Varmahlíð. Þetta eru tæki sem eru ekki ósvipuð bensíndælum að stærð og um tveir metrar á hæð. Þau kosta líka tæpar 3 milljónir króna stykkið. Þær hlaða inn á bílinn með jafnspennu en ekki með riðstraum eins og litlu heim- ilisstöðvarnar. Þá taka þau til sín gríðarlega orku, eða 160 amper í gegnum þriggja fasa streng. Slíkt afl er alls ekki fyrir hendi á öllum sveitabæjum. Svona hraðhleðslustöðvar hafa ekkert að gera á staði utan hring- vegarins eða þéttbýlis. Menn hafa ekkert með svona hraðhleðslustöðv- ar að gera á sveitabæjum. Þar geta menn verið með minni stöðvar sem geta fullhlaðið rafmagnsbíl á 10 tímum eða skemur. Slíkt gæti verið mjög sniðugt á bæjum sem bjóða upp á gistiþjónustu.“ Orka náttúrunnar í fararbroddi „Sem stendur er Orka náttúrunnar leiðandi í uppsetningu hraðhleðslu- stöðva í þéttbýlisstöðvum í kringum Reykjavík. Þar er líka verið að stefna á að setja upp hraðhleðslustöðvar með um 80 til 100 km millibili við hringveginn. Það verður gert í sumar.“ Þá hyggjast rekstraraðil- ar í Kerlingarfjöllum koma upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Þar eru menn einkum að horfa á mark- aðstækifæri og jákvæða ímynd. Ýmsir ferðaþjónustubændur munu vera að hugsa á svipuðum nótum. Hröð þróun í hönnun rafbíla Í þessu sambandi verða menn líka að hafa í huga hvernig rafbílarn- ir eru útbúnir. Þar má t.d. nefna Volkswagen Golf sem hefur verið mjög vinsæll. Hann getur einungis hlaðið á 16 amperum um einfasa streng á riðspennu. Hann getur hreinlega ekki tekið við meiri orku í einu. Það tekur því allt að átta klukkustundir að hlaða slíkan bíl. Nissan Lif er með stærri raf- geyma. Hann er hægt að hlaða að hámarki á 32 amperum og það tekur um 5 klukkustundir að hlaða hann frá 0 og upp í 100%. Það er þó stöðugt verið að stækka geymana í rafbílunum til að auka drægnina. Um leið geta þeir tekið við meiri hleðslustraum. Þannig var nýlega kynntur Renault Zoe. Hann getur tekið þrisvar sinnum 32 amper og er með 22 kílówatta lithium – ion batterí og á að komast um 210 km á hleðslunni. Þú getur fullhlaðinn hann í þriggja fasa stöð sem getur skilað 32 amperum á tveim til þrem klukkustundum. Slíkur bíll getur líka nýtt sér hraðhleðslustöðvarnar. Þá fara að koma inn bílar með 300 km drægni. Á slíkum bílum getur maður treyst því að komast frá Reykjavík austur í sveit og til baka án þess að þurfa að stoppa til að hlaða bílinn á leiðinni. Opel Ampera með 500 km drægni Smábílinn Opel Ampera er einn af þessum nýju bílum sem Óskar nefnir. Hann er gefinn upp með að hámarki 500 km drægni og er ekki nema 7,3 sekúndur að ná hundrað km hraða. Hámarkshraði þessa bíls er 150 km á klukkustund. Með 240 volta hleðslutæki tekur það um 9,5 klukkustundir að fullhlaða raf- geymana. Á hraðhleðslustöðvum væri hægt að ná 145 km drægni á 30 mínútum. Þessi bíll er líka í boði á Bandaríkjamarkaði. Sagt er að hægt sé að hlaða hann á 110 volta kerfinu sem þar er almennt notað, en slíkt tekur óheyrilegan tíma. Kannski mun þróunin í rafbílunum leiða til þess að Bandaríkjamenn neyðist til að skipta úr 110 voltum í mun hagkvæmara 240 volta orkukerfi. Helsti galli við þennan bíl verður líklega verðið. Frost ekki vandamál „Hér á landi verður yfirleitt ekki það mikið frost að það skipti verulegu máli varðandi rafbílana. Þá er líka hægt að vera með bílana í sambandi yfir nótt og kveikja á miðstöðinni í gegnum síma tímanlega áður en lagt er af stað. Bíllinn er því orðin heitur þegar tekið er úr sambandi og lagt af stað. Því er ekki verið að eyða orku af geymum í upphafi ökuferð- ar til að hita rýmið í bílnum. Þetta kallar á aðeins öðruvísi hugsun,“ segir Óskar. Þetta er reyndar líka þekkt varð- andi bensín og dísilbíla. Þar er hægt að tengja hitakerfi bílanna við heim- ilisrafmagn og fjarstarta bílunum tímanlega áður en lagt er af stað. Stærð geymanna ræður hleðslutíma Hversu lengi er verið að hlaða á rafgeyma í þessum hraðhleðslu- stöðvum? „Það fer allt eftir stærð gey- manna. Fyrir tveim til þrem árum voru algengir bílar á markaðnum með 24 kílówattstunda (kWst) raf- geymum. Nú er Nissan t.d komin með 30 kílówattstunda geyma og á næsta ári eru menn að tala um bíla með 45 til 50 kWst rafgeyma. Geymarnir eru því stöðugt að stækka til að fá meiri akstursdrægni. Um leið þarf öflugri hleðslu- tengingar.“ Einfaldar hleðslustöðvar ekki dýrar Hver er kostnaðurinn við stöðv- ar sem líklegar eru til notkunar á sveitabæjum sem bjóða upp á gistingu? „Verðið getur verið í kringum 100 þúsund krónur fyrir utan virðis- aukaskatt fyrir stöð til að hlaða einn bíl. Síðan eru líka til stærri stöðvar sem eru hugsaðar fyrir fyrirtæki og geta hlaðið tvo bíla í einu. Þær eru útbúnar með kortalesara þannig að eigandi stöðvarinnar getur selt raf- magn inn á rafbíla þeirra sem eru handhafar slíkra korta. Svona stöðv- ar kosta um 400 þúsund krónur fyrir utan virðisaukaskatt.“ – Er ekki allt eins sniðugt að vera bara með ódýrari stöðvarnar og selja orkuna á föstu verði líkt og gert er fyrir notkun á tjaldstæðum? „Það er mjög sniðug leið. Þá kostar ein hleðsla bara ákveðna upp- hæð burtséð frá því hvort menn taka lítið eða mikið. Það mætti líka hugsa sér að hver klukkustund í hleðslu kostaði ákveðna upphæð. Vandamálið í öllum þessum vangaveltum er þó að það eru ekki nema 1.200 hreinræktaðir rafbílar í landinu á móti 240 þúsund bílum sem nota aðra orkugjafa en rafmagn. Enn sem komið er er drægnin ekki næg til að fólk taki rafbíla almenn fram yfir aðra bíla. Menn vilja t.d. geta komist á Selfoss og til baka án þess að þurfa að eyða tíma til að hlaða bílinn líka. Þá eru raf- bílarnir líka talsvert dýrari en aðrir bílar. Enn sem komið er treystir fólk því ekki á að komast til baka ef það fer á rafbílunum út fyrir þéttbýlið. Óskar segir að á næstu misser- um og árum muni margt breytast í umhverfinu til hagsbóta fyrir raf- bílanotkun. Þróun bílanna sjálfra sé á fullri ferð, framboðið að aukast sem og þjónustan við bílana. Áhuginn fyrir að kaupa slíka bíla muni því líklega fara ört vaxandi. Þá sé Ísland í mjög góðri stöðu hvað hreina orku varðar til nota á raf- bíla sem muni draga úr innkaupum Íslendinga á jarðefnaeldsneyti. Fullt af tækifærum „Það eru fullt af tækifærum í raf- bílavæðingunni þótt enn séu raf- bílarnir fáir og ekki þurfi að búast við að fjárfesting í hleðslustöðvum skili sér mjög hratt inn. Ég held að fyrir marga bændur geti þetta verið mjög sniðugt, eink- um þá sem eru í ferðaþjónustu. Svo ekki sé talað um bændur sem fram- leiða sitt eigið rafmagn úr bæjar- læknum,“ segir Óskar Gústavsson. /HKr. Smábíllinn Opel Ampera er einn af þessum nýju rafbílum sem er á leið á markaðinn og er með meiri drægni en algengast hefur verið. Hann á að komast um 500 kílómetra á einni hleðslu. Litsýn er eitt þeirra fyrirtækja sem flytur inn og selur hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Þar er um að ræða einfasa hleðslustöðvar frá Besen- Group í Kína. Samkvæmt heimasíðu Besen – Group er fyrirtækið með um 16 ára reynslu í smíði rafhleðslustöðva, einkum fyrir kínverskan markað. Þá er fyrirtækið í samstarfi við fyr- irtæki í þessum geira í Evrópu og Bandaríkjunum. Magnús Guðmundsson, raf- eindavirki í Litsýn, segir að þegar sé búið að flytja inn fjölmargar hleðslustöðvar frá Besen. Það eru einkum einstaklingar sem hafa verið að kaupa þær og þá ekki síst þeir sem hafa verið að fá Volvo-bíla og bíla frá Bandaríkjunum. Þá segir hann nokkuð um að fólk hafi verið að kaupa hleðslubúnað í stað bún- aðar sem átti að fylgja bílunum en hafði verið stolið úr þeim einhvers staðar á leiðinni til landsins. Verðið á hleðslustöðvunum frá Besen er frá 62.900 til 94.900 og uppfylla þær allar IP 55 staðalinn. Þær eru frá 10 og 32 ampera. Þær er hægt að fá bæði með innstungum fyrir bíla eins og Nissan Leaf og WV Golf. /HKr. Litsýn með hleðslustöðvar frá Besen Rafbílar frá Volkswagen hafa verið vinsælir hér á landi. Hér er VW-Golf-GTE rafbíll. Rafbílar frá Tesla hafa þótt einna mest spennandi í augum bílaáhugamanna. í framleiðslu rafhleðslustöðva fyrir bíla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.